HVERNIG ERU FRAMLÖGIN NOTUÐ?
Prentuð rit á stafrænni öld
1. APRÍL 2026
Í hvað grípur þú þegar þú vilt lesa Biblíuna eða eitthvert rita okkar? Mörg okkar grípa ekki lengur í bók eða blað heldur í snjallsíma eða spjaldtölvu. Þú ert að öllum líkindum að lesa þessa grein í slíku tæki. Við erum svo þakklát fyrir að ritin okkar skuli vera aðgengileg á jw.org og JW Library-appinu.
Hvað liggur að baki breytingunni yfir í stafrænt form? Margir vottar kjósa frekar stafræn gögn vegna þægindanna og alls sem hægt er að gera með snjalltækjunum. Og þó að við bjóðum áfram rit í boðuninni leggjum við nú aðaláherslu á að hefja samræður.
Af þeim sökum prentum við nú 60 prósent færri rit en við gerðum fyrir tíu árum. Árið 2015, áður en JW Library-appið var komið í almenna notkun, voru flestar prentvélar okkar látnar ganga á tvöföldum vöktum, alls 16 klukkustundir á sólarhring, og sumar voru látnar ganga á næstum þreföldum vöktum til að mæta eftirspurninni. Núna ganga flestar prentvélarnar okkar á einfaldri vakt.
Við erum ekki ein um það að prenta minna. Margar óháðar rannsóknir leiða í ljós samdrátt í útgáfu dagblaða, tímarita og sambærilegra fjölmiðla á undanförnum árum. Fyrst heimurinn er í auknum mæli að snúa sér að stafrænni útgáfu mætti spyrja hvort enn sé þörf á prentaðri útgáfu? Svarið er já! Við skulum nú skoða hvers vegna við höldum áfram að prenta rit og hvernig framlög þín gera það kleift.
Systur í Malaví nota prentuðu útgáfuna af Von um bjarta framtíð til að kenna biblíunemanda.
Hvers vegna er enn þá þörf fyrir prentuð rit?
Sum trúsystkina okkar þurfa á prentaðri útgáfu ritanna að halda. Skoðum eftirfarandi dæmi:
„Ég nota prentuð rit vegna þess að ég á ekki annarra kosta völ. Ég hef ekki efni á snjalltæki og jafnvel þótt ég hefði það dettur rafmagnið oft út þar sem ég bý og þess vegna er ekki alltaf víst að maður geti hlaðið tækin. Þannig að það er ekki mjög hagstætt að reiða sig á stafræn rit.“ – Odete, Mósambík.
„Ég hef ekki efni á að kaupa mér snjalltæki og jafnvel þótt ég keypti mér ódýrt tæki eru þau ekki endingargóð og þarfnast oft viðgerða. Ég myndi ekki geta lesið í ritunum okkar meðan ég væri að bíða eftir viðgerð.“ – Linley, Malaví.
„Við höfum ekki mikið fé milli handa og þess vegna notum við, dætur mínar tvær og ég, sama símann. Á samkomum skiptumst við á að nota tækið. Meðan ein notar það fylgjast hinar tvær með í prentaðri útgáfu ritanna.“ – Sinine, Míkrónesíu.
Önnur trúsystkini hafa aðgang að stafrænum ritum en kjósa heldur prentaða útgáfu þeirra. Sjáum hvað sum þeirra segja:
„Ég nota oft rit á stafrænu formi en þegar ég undirbý mig fyrir samkomur finnst mér betra að nota prentuðu útgáfuna. Mér finnst gott að lesa textann á blaði og halda á ritunum. Mér finnst gott að strika undir aðalatriðin og skrifa athugasemdir á spássíurnar. Ég gæti gert allt þetta í tæki en þegar ég geri það á pappír finnst mér að upplýsingarnar hafi dýpri áhrif á huga minn og hjarta.“ – Márcia, Brasilíu.
„Mér finnst auðveldara að lesa prentað mál, það reynir ekki eins mikið á augun eins og að lesa af skjá. Auk þess er ég ekki svo klár í tækjum. Mér finnst erfitt að taka glósur, niðurhala skjölum og leita upplýsinga.“ – Selina, Mósambík.
„Ég nota símann minn og tölvu liðlangan daginn. En þegar ég á gæðastundir með Jehóva vil ég frekar aftengjast tækjunum og lesa prentað mál. Prentuðu ritin gera mér kleift að lesa í ró og næði án truflana frá skilaboðum sem kunna að koma upp.“ – Guillaume, Kanada.
„Þegar við hittum fólk í fyrsta skipti er ekki alltaf auðvelt að biðja um símanúmer til að geta sent því rit í rafrænu formi. Venjulega er einfaldara að rétta því prentuðu útgáfuna. Við boðum líka trúna á hættulegum svæðum og þar þurfum við að takmarka tækjanotkun.“ – Farandhirðir í Suður-Ameríku.
Margir kjósa að nota ritin í prentuðu formi til að undirbúa sig fyrir samkomur.
Hvað gerum við til að koma til móts við trúsystkini sem þurfa prentuð rit eða finnst bara betra að nota þau?
Þörfinni mætt
Við höldum áfram að gefa út prentuð rit í prentsmiðjum okkar sem eru níu talsins. Á þjónustuárinu 2025 prentuðum við yfir 1,5 milljarð rita, þar á meðal 3 milljónir biblía, yfir 18 milljónir bóka og yfir 941 milljón smárita og boðsmiða. Prentkostnaðurinn nam meira en 35 milljónum bandaríkjadala. Auk þess notuðum við um 10 miljónir dala til að endurnýja prent- og bindingarbúnað okkar á síðastliðnum þrem árum.
Við prentum aðeins þau rit sem trúsystkini okkar koma til með að nota og þannig förum við vel með framlögin sem berast. Eins og þegar hefur verið minnst á leggjum við núna megináhersluna á að hefja samræður þótt við bjóðum fólki enn rit. Á síðastliðnum áratug drógum við úr prentun á tímaritinu Vaknið! – frá því að vera 86 eintök á boðbera á ári niður í 11 eintök. Margir vottar eru duglegir að nota nafnspjöld og þess vegna prentum við nú næstum þrisvar sinnum fleiri en við gerðum á árunum fyrir 2020.
„Guði er greinilega annt um alla“
Bræður okkar og systur kunna að meta að við höldum áfram að prenta ritin. Ricardo, sem býr í Brasilíu, segir: „Ég er stoltur af því að tilheyra svona kærleiksríkum söfnuði sem gerir sér far um að gera andlegu fæðuna öllum aðgengilega, líka þeim sem geta ekki nýtt sér rafræn gögn. Þetta sýnir að ‚allir sem eru þyrstir og allir sem vilja geta fengið lífsins vatn.‘“ (Opinberunarbókin 22:17) Bernard, sem býr á Tahítí, segir: „Ég er innilega þakklátur fyrir prentuðu ritin okkar. Þau eru til vitnis um kærleika, visku og sanngirni safnaðar Jehóva sem sér til þess að allir geti kynnst fagnaðarboðskapnum um ríkið, óháð aldri eða fjárhag. Þetta sýnir okkur svo skýrt að Guði er annt um hvern einstakling.“
Andréia frá Brasilíu er ánægð með að framlögin hennar styðji við útgáfu prentaðra rita. Hún segir: „Söfnuðurinn okkar notar fjármuni og tíma og þjálfar auk þess fólk til að prenta rit fyrir þá sem geta ekki nálgast stafræn rit. Þetta sannfærir mig um að Guði er greinilega annt um alla. Það myndi ekki trufla mig þótt framlögin mín færu bara í prentkostnað.“
Við kunnum svo sannarlega að meta framlög ykkar, þar á meðal þau sem gefin eru á donate.jw.org. Þau gera okkur kleift að halda áfram að prenta rit handa þeim sem þurfa á þeim að halda eða finnst þau þægilegri.