Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w26 febrúar bls. 26–29
  • „Börn eru gjöf frá Jehóva“

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • „Börn eru gjöf frá Jehóva“
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • ÞAÐ SEM REYNIR Á
  • HVERS VÆNTIR JEHÓVA AF FORELDRUM?
  • JEHÓVA VILL HJÁLPA ÞÉR
  • Foreldrar – kennið börnum ykkar að elska Jehóva
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2019
  • Foreldrar, hjálpið börnunum ykkar að elska Jehóva
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2022
  • Foreldrar, annist þarfir barnanna
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2005
  • Að byggja upp andlega sterka fjölskyldu
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2001
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
w26 febrúar bls. 26–29
Ánægðir foreldrar faðma unga dóttur sína.

„Börn eru gjöf frá Jehóva“

HEFUR þú fengið gjöf sem var þér mjög kær? Kannski fékkstu hana frá einhverjum sem þér þykir innilega vænt um. Hvað gerirðu við þessa gjöf? Þú ferð örugglega mjög vel með hana.

Í Biblíunni eru börn kölluð „gjöf frá Jehóva“. (Sálm. 127:3) Kristnir foreldrar líta á börnin sín sem dýrmæta gjöf frá föður sínum á himnum og vilja gera allt sem í þeirra valdi stendur til að vernda þau og annast vel, bæði líkamlega, tilfinningalega og andlega.

Því miður álíta sumir foreldrar nú á dögum börnin sín ekki vera gjöf frá Guði. (Jes. 49:15; 2. Tím. 3:1–3) Aðrir reyna allt sem þeir geta til að annast börnin sín en það reynist þeim erfitt af ýmsum ástæðum. Hvers vegna reynist foreldrum erfitt að hugsa um börnin sín? Hvers væntir Jehóva af foreldrum? Og hvernig geta kristnir foreldrar alið upp börnin sín þannig að þau verði fullorðnir hamingjusamir einstaklingar?

ÞAÐ SEM REYNIR Á

  • Samfélagið og þrýstingur frá fjölskyldunni. Sums staðar í heiminum njóta foreldrar sem eiga mörg börn meiri virðingar í samfélaginu. Þar geta hjón fundið fyrir þrýstingi frá fjölskyldu eða nágrönnum til að eignast mörg börn – ef til vill fleiri en þau geta annast.

  • Áhyggjur af framtíðinni. Í sumum löndum er ungbarnadauði algengur vegna vannæringar, sjúkdóma og takmarkaðrar heilsugæslu og sum hjón eignast mörg börn til að tryggja að í það minnsta sum þeirra nái fullorðinsaldri. Aðrir kjósa að eignast mörg börn til að sjá til þess að einhver annist þau í ellinni. Þetta er sérstaklega áberandi í löndum þar sem yfirvöld sjá öldruðum ekki fyrir aðstoð.

  • Ákvörðun um fjölskyldustærð. Á sumum svæðum hafa hjón takmarkaðan aðgang að getnaðarvörnum. Aðrir óttast aukaverkanir getnaðarvarna af lágum gæðum sem þeim stendur til boða. Og enn aðrir hafa ekki efni á að nota getnaðarvarnir.a

HVERS VÆNTIR JEHÓVA AF FORELDRUM?

Fjölskylda nýtur samveru í almenningsgarði. Pabbinn hlustar af athygli á unglingsdóttur þeirra tjá sig. Mamman er í boltaleik með ungum syni þeirra.

Verðu tíma með hverju og einu barna þinna.

Sjáið börnunum fyrir því sem þau þurfa. Jehóva treystir foreldrum til að sjá efnislega fyrir ólögráða börnum sínum. Hann væntir þess að þeir séu tilbúnir að leggja hart að sér til að sjá þeim fyrir fæði, klæði og húsnæði. Jehóva ætlast líka til að foreldrar mennti börnin sín. Kristnir foreldrar senda börnin sín ekki einfaldlega í heimavistarskóla. Þeir sjá heldur til þess að börnin þeirra búi hjá þeim á meðan þau vaxa úr grasi svo þau fái þá menntun og athygli sem þau þarfnast til að finna fyrir öryggi og ást. En Jehóva er raunsær og ætlast ekki til að foreldrar séu efnaðir. Hann valdi duglega en fátæka foreldra til að ala ástkæran son sinn upp. – Matt. 13:55, 56; Lúk. 2:24.

Meginregla Biblíunnar: „Ef einhver sér ekki fyrir sínum nánustu, sérstaklega fjölskyldu sinni, hefur hann afneitað trúnni og er verri en vantrúaður.“ – 1. Tím. 5:8.

Jehóva skilur að foreldrar geta þurft á hjálp að halda þegar þeir eldast. Að sjá til þess að foreldrar fái þá hjálp sem þeir þarfnast þegar þeir eldast er ein leið fyrir börn til að heiðra foreldra sína. (2. Mós. 20:12; 1. Tím. 5:4) En það gleður Jehóva þegar foreldrar hugsa fyrst og fremst um hvernig þeir annast börnin sín en ekki hvernig börnin gætu annast þá. – 2. Kor. 12:14.

Hjálpið börnunum ykkar að kynnast Jehóva. Kristnir foreldrar bera líka þá ábyrgð að kenna börnum sínum að elska Jehóva og tilbiðja hann. Hann álítur það nauðsynlegan hluta af uppeldi barnanna. – 5. Mós. 6:6, 7.

Meginregla Biblíunnar: „Alið [börnin ykkar] upp með því að aga þau og leiðbeina þeim eins og Jehóva vill.“ – Ef. 6:4.

JEHÓVA VILL HJÁLPA ÞÉR

Hjón spjalla saman heima hjá sér með opna biblíu á borðinu fyrir framan þau.

Ræðið fyrir fram hversu mörg börn þið ætlið að eignast.

Skipuleggið. Hugleiðið aðstæður ykkar vandlega ef þið viljið eignast börn. Hafið þið ráð á að fæða, klæða og mennta mörg börn? Ef þið hafið það ekki skuluð þið ákveða hversu mörg börn þið viljið eignast þannig að þið getið séð hverju barni fyrir því sem Jehóva væntir. Jehóva skilur að sjálfsögðu að það fer ekki allt í lífinu eins og maður ætlar sér. (Préd. 9:11) En hann blessar viðleitni ykkar til að vera foreldrar sem gleðja hann.

Meginreglur Biblíunnar: „Áform hins iðna leiða til góðs en fljótfærni steypir í fátækt.“ – Orðskv. 21:5.

„Ef einhver ykkar vill byggja turn, sest hann þá ekki fyrst niður og reiknar kostnaðinn til að kanna hvort hann hafi efni á að fullgera hann?“ – Lúk. 14:28.

Hafið Jehóva í fyrsta sæti í fjölskyldunni. Gerið tilbeiðsluna á Jehóva það mikilvægasta í lífi fjölskyldunnar. Ef þið eigið þegar börn verið þá ákveðin í að leiðbeina hverju og einu þeirra að elska Jehóva. Hjálpið þeim að fylgjast með og læra á safnaðarsamkomum. Hafið fjölskyldunám í hverri viku. Þjálfið börnin ykkar í boðuninni. Látið ekki ábyrgð ykkar í hendur eldri barna ykkar eða annarra ættingja. Það krefst tíma og erfiðis að kenna börnunum að elska Jehóva en launin eru mikil.

Meginregla Biblíunnar: „Ekkert gleður mig meira en að heyra að börnin mín gangi á vegi sannleikans.“ – 3. Jóh. 4.b

Treystið á Jehóva. Hvort sem þið eruð að hugsa um að eignast börn eða eigið þegar börn skuluð þið treysta að það sem Jehóva væntir af ykkur sem foreldrar sé mikilvægara en menning eða siðir þar sem þið búið.

Myndir: 1. Hjón sitja saman ásamt syni sínum á samkomu. Sonurinn réttir upp hönd til að svara. 2. Fjölskylda í boðuninni saman. Pabbinn er með unglingsdótturinni en mamman með tveim yngri börnunum.

Það kostar tíma og erfiði að kenna börnunum að tilbiðja Jehóva og gleðja hann.

Ef þið kjósið að takmarka fjölda barna sem þið eignist getið þið treyst því að Jehóva sjái fyrir þörfum ykkar í ellinni. Látið ekki undan þrýstingi til að líta á börn sem „tryggingu í ellinni“. Þið þurfið aldrei að óttast að vera yfirgefin. Jehóva hefur lofað að annast ykkur og hann stendur alltaf við loforð sín. – Jós. 23:14.

Meginreglur Biblíunnar: „Treystu Jehóva af öllu hjarta og reiddu þig ekki á eigin vitsmuni. Hafðu hann alltaf með í ráðum, þá mun hann greiða götu þína.“ – Orðskv. 3:5, 6.

„Eitt sinn var ég ungur og nú er ég gamall en aldrei hef ég séð réttlátan mann yfirgefinn né börn hans leita sér matar.“ – Sálm. 37:25.

„Einbeitið ykkur því fyrst og fremst að ríki Guðs og réttlæti, þá fáið þið allt hitt að auki.“ – Matt. 6:33.

Börn eru dýrmæt gjöf sem Jehóva hefur treyst foreldrum fyrir. Jehóva hlýtur að vera glaður þegar þjónar hans standa undir því trausti. Þeir sjá fyrir líkamlegum, tilfinningalegum og andlegum þörfum barna sinna, ákveða hversu mörg börn þeir ætla að eignast og setja kröfur Guðs framar menningu eða siðum á svæðinu. Með þessu sýna kristnir foreldrar að þeir elska börnin sín innilega og líta á þau sem „gjöf frá Jehóva“.

Þeir sjá ekki eftir neinu

Faðir stýrir biblíunámsstund fjölskyldunnar með eiginkonu sinni og tveim ungum börnum.

Glíma foreldrar við meiri erfiðleika þegar þeir kjósa að eignast ekki mörg börn? Margir foreldrar sem búa í fátækari löndum velta þessu fyrir sér. Tökum eftir því sem nokkrir feður sem búa við þessar aðstæður segja.

Fannstu fyrir þrýstingi til að eignast stóra fjölskyldu?

„Já, jafnvel frá sumum í söfnuðinum. Ein hjón spurðu okkur af hverju við ættum bara einn son. Hérna í Afríku er eins og að þú eigir engin börn ef þú átt bara einn son. Ef þú átt tvo er eins og þú eigir aðeins einn. Jafnvel eftir að við eignuðumst dóttur okkar fundum við fyrir þrýstingi.“ – Jeremias.

Hefurðu glímt við erfiðleika í lífinu vegna þess að þú átt ekki mörg börn?

„Nei, alls ekki. Við eigum auðveldara með að sjá fyrir efnislegum þörfum okkar og umfram allt að hafa sterkt samband við Jehóva vegna þess að við ákváðum að takmarka stærð fjölskyldunnar. Ég var alinn upp í stórri fjölskyldu og sá hvað foreldrar okkar þurftu að takast á við til að sjá okkur fyrir lífsnauðsynjum og menntun.“ – Jeremias.

Hvað finnst börnunum ykkar um ákvörðun ykkar?

„Börnin okkar eru ánægð og sjá að þau glíma við færri vandamál en börn í stórum fjölskyldum glíma gjarnan við vegna þess að foreldrar þeirra berjast í bökkum við að annast þau.“ – Filipe.

„Börnin okkar voru ánægð í uppvextinum vegna þess að þau fundu fyrir öryggi og ást. Þroskaðir bræður og systur hvöttu okkur oft til að setja okkur andleg markmið. Núna sjáum við árangur erfiðis okkar þegar við horfum á börnin.“ – Carlos.

Hefur það komið vel út að takmarka stærð fjölskyldunnar?

„Við eigum auðveldara með að sjá fjölskyldunni fyrir efnislegum þörfum. Ég missti vel launaða vinnu fyrir um þrem árum síðan. Það reyndist auðveldara að takast á við breytingarnar sem þetta hafði í för með sér þar sem við erum fá í fjölskyldunni og þurftum því minna til að framfleyta okkur.“ – Jeremias.

„Ákvörðun okkar hefur gert okkur kleift að sjá börnunum okkar bæði fyrir efnislegum þörfum og því sem snertir trúna. Við höfum getað hjálpað til á svæðum þar sem er þörf á fleiri boðberum. Við höfum haft meiri tíma til að sinna hverju barni fyrir sig. Öll börnin okkar þjóna Jehóva og hafa sett sér markmið í þjónustu hans.“ – Lenadi.

Hvað myndirðu vilja segja við aðra foreldra?

„Ég hef sannreynt það sem segir í Sálmi 34:10b: ‚Þeir sem leita Jehóva fara ekki á mis við neitt gott.‘ Jehóva hefur séð fyrir öllum þörfum fjölskyldu minnar.“ – Rafael.

a Hjón ákveða hvort þau sleppa því að eignast börn og hvernig þau fara að því. Þau ákveða hversu mörg börn þau vilja eignast, hvenær þau eignast þau og hvort þau nota getnaðarvarnir sem koma í veg fyrir þungun. Enginn ætti að dæma þau fyrir persónulegar ákvarðanir þeirra. (Rómv. 14:4, 10–13) Kristin hjón hafa líka í huga ráðin í 1. Korintubréfi 7:3–5.

b Í þessu versi eiga „börnin“ við um kristna lærisveina. En foreldrar eiga auðvelt með að tengja við það sem Jóhannes segir.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila