Spurningar frá lesendum
Hvenær munu þjóðirnar lýsa yfir ‚friði og öryggi‘?
Eins og fjallað var um í „Spurningum frá lesendum“ í nýlegu tölublaði Varðturnsinsa mun Jehóva bráðlega leggja ‚hornunum tíu‘ (öllum stjórnmálaöflum) í brjóst „það sem hann hefur áformað“– að gefa ‚skarlatsrauða villidýrinu‘, Sameinuðu þjóðunum, vald sitt. Þetta villidýr er líka nefnt „líkneskið af villidýrinu“. (Opinb. 13:14, 15; 17:3, 16, 17) „Hornin tíu“ og villidýrið með nýfengin völd sín munu þá eyða fölskum trúarbrögðum um allan heim. Munu þjóðirnar lýsa yfir ‚friði og öryggi‘b áður eða eftir að fölskum trúarbrögðum verður eytt? – 1. Þess. 5:3.
Við vitum ekki nákvæmlega hvenær þjóðirnar lýsa yfir ‚friði og öryggi‘. Ef við vissum það í smáatriðum þyrftum við ekki að vera á verði. En Jesús sagði fylgjendum sínum aftur og aftur að ‚halda vöku sinni‘. (Matt. 24:42; 25:13; 26:41) Skoðum betur spádóminn sem Páli postula var innblásið að skrifa um í bréfi sínu til Þessaloníkumanna.
Páll skrifaði: „Þegar menn segja: ‚Friður og öryggi!‘ kemur skyndilega tortíming yfir þá.“ (1. Þess. 5:2, 3) Það sem hann sagði hefur oft verið útskýrt með eftirfarandi hætti í ritum okkar: Yfirlýsingin um ‚frið og öryggi‘ kemur rétt áður en þrengingin mikla brestur á, en hún hefst á eyðingu Babýlonar hinnar miklu, heimsveldis falskra trúarbragða. Við höfum líka sagt að yfirlýsingin sé lokamerki um að þrengingin mikla sé um það bil að hefjast.
En eftir að hafa hugleitt málið vandlega virðist vera hægt að skilja þetta á annan veg. Ef til vill kemur yfirlýsingin um ‚frið og öryggi‘ eftir eyðingu falskra trúarbragða. Af hverju getur það verið? Skoðum eftirfarandi spurningar.
Hvert hefur hlutverk falskra trúarbragða verið í stríðum þjóðanna? Biblían útskýrir: „Í henni [‚vændiskonunni miklu‘, Babýlon hinni miklu] fannst blóð … allra sem hafa verið drepnir á jörðinni.“ (Opinb. 17:1, 5; 18:24) Vændiskonan mikla hefur í gegnum aldirnar stutt stríð milli þjóðanna og oft stuðlað að ofbeldi og jafnvel fjöldamorðum. Hún hefur því verið friðarspillir en ekki stuðlað að friði og öryggi. Þá vaknar spurningin: Munu þjóðirnar ekki lýsa yfir ‚friði og öryggi‘ fyrr en eftir að hafa eytt Babýlon hinni miklu? Það er mögulegt en við getum ekki slegið því föstu.
Hvað fylgir í kjölfar yfirlýsingarinnar um ‚frið og öryggi‘? Páll segir: „[Þá] kemur skyndilega tortíming yfir þá.“ (1. Þess. 5:3) Í námsútgáfu Nýheimsþýðingarinnar segir um þetta vers: „Páll gefur í skyn að það verði stuttur tími frá því að yfirlýsingin um ‚frið og öryggi‘ kemur þar til eyðingin kemur yfir þá sem gefa hana út. Eyðingin verður skyndileg og óumflýjanleg.“ Ef stjórnmálaöfl heimsins lýsa yfir ‚friði og öryggi‘ eftir að fölskum trúarbrögðum hefur verið eytt fylgir eyðing allra þessara þjóða mjög skyndilega í kjölfarið.
Hvernig munu þjónar Jehóva bregðast við þessum atburðum? Páll segir: „Þið, bræður og systur, eruð ekki í myrkri svo að dagurinn komi ykkur að óvörum eins og dagsbirtan þjófum.“ (1. Þess. 5:4) Hugleiddu þetta: Ef yfirlýsingin um ‚frið og öryggi‘ kemur eftir eyðingu falskra trúarbragða veit fólk Jehóva að eyðing þjóðanna er yfirvofandi. En frá sjónarhóli þjóðanna kemur eyðingin eins og þjófur – skyndilega og án viðvörunar.
Hverju getum við átt von á? Innan skamms munu „hornin tíu“ og villidýrið með nýfengin völd sín eyða fölskum trúarbrögðum. Það markar upphaf þrengingarinnar miklu. Við vitum líka að á ákveðnum tímapunkti lýsa þjóðirnar yfir ‚friði og öryggi‘. Hvenær mun það gerast? Við höfum rætt tvo möguleika í því sambandi. Fyrri möguleikinn er þessi: Yfirlýsingin kemur áður en fölskum trúarbrögðum verður eytt. Síðari möguleikinn er þessi: Yfirlýsingin kemur eftir að ríki heimsins hafa eytt fölskum trúarbrögðum algerlega. Við þurfum að bíða og sjá hvað gerist. Við fáum oft fullan skilning á biblíuspádómum þegar þeir eru að uppfyllast eða eftir að þeir hafa uppfyllst. – Samanber Jóhannes 12:16.
En það sem skiptir mestu máli þangað til er ekki hvenær þjóðirnar lýsa yfir ‚friði og öryggi‘ heldur að við höldum áfram að vera trúföst. Við verðum að ‚vaka og hugsa skýrt‘ til að vera viðbúin því sem gerist. – 1. Þess. 5:6.
a Sjá „Spurningar frá lesendum“ í Varðturninum nóvember 2025.
b Orðalagið sem Páll postuli notar gefur til kynna að þetta geti verið fleiri en ein yfirlýsing.