13.–19. APRÍL 2026
SÖNGUR 52 Kristin vígsla
Merking og mikilvægi skírnarinnar
„Gerið fólk … að lærisveinum, skírið það.“ – MATT. 28:19.
Í HNOTSKURN
Við skoðum hvað skírnin merkir, hversu mikilvæg hún er og hvað hún felur í sér.
1. Hvað sýnir að skírnin er mjög mikilvæg?
ÞAÐ gleður okkur innilega þegar nýir láta skírast. Vissir þú að kristnir menn hafa fengið að upplifa þessa gleði allt frá fyrstu samkomu kristna safnaðarins? Á henni fór fram skírn og flutt var ræða sem útskýrði hversu mikilvæg skírnin er. (Post. 2:38, 40, 41) Páll talaði um „byrjendafræðsluna um Krist“, og sagði að hún fæli meðal annars í sér „kenningar um skírnir“. (Hebr. 6:1, 2) Við þurfum að skilja vel það sem Biblían segir um skírnina þó að það virðist tilheyra grundvallarsannindunum. Hvers vegna?
2. Hvers vegna þurfum við að skilja vel hvað felst í skírninni?
2 Rétt eins og traustur grunnur gerir hús stöðugt getur glöggur skilningur á skírninni styrkt trú okkar. Við þurfum á honum að halda hvort sem við stefnum að skírn eða höfum verið skírð í mörg ár. Í þessari námsgrein svörum við eftirfarandi spurningum: Hvað merkir skírnin? Hvernig fer skírn fram? Og hvers vegna skírumst við í nafni föðurins, sonarins og heilags anda?
MERKING SKÍRNARINNAR
3. Hvað sýnir skírnin?
3 Skírnin sýnir opinberlega að þú (1) trúir sannleikanum um Jehóva Guð og Jesú Krist, (2) iðrist synda þinna, (3) hafir breytt lífsstefnu þinni til að þjóna Jehóva, (4) viðurkennir Jesú sem hjálpræðisleið Guðs og (5) hafir sagt Guði í bæn að þig langi innilega til að gera vilja hans með söfnuði hans. Þegar þú gefur þetta vígsluheit, eða loforð, og lætur skírast ertu kominn á braut sem leiðir til eilífs lífs.
4. Hvað merkir það að fara á kaf í vatnið? (Sjá einnig mynd.)
4 Þegar þú skírist er þér dýft á kaf í vatn og síðan lyft upp úr því aftur,a rétt eins og þú hefðir verið jarðaður og síðan reistur upp. (Samanber Kólossubréfið 2:12.) Skírnin endurspeglar þær miklu breytingar sem þú hefur gert á lífi þínu. Þegar þú ferð á kaf í vatnið sýnirðu að þú hefur sagt skilið við fyrri lífsstefnu. Þegar þú kemur upp úr vatninu byrjarðu nýtt líf sem snýst um að gera vilja Guðs.
Þegar þú lætur skírast segirðu skilið við fyrri lífsstefnu og byrjar að láta líf þitt snúast um vilja Guðs. (Sjá 4. grein.)
5. Við hvað má líkja vinnunni við að búa sig undir skírn og hvers vegna? (1. Pétursbréf 3:18–21)
5 Lestu 1. Pétursbréf 3:18–21. Það má líkja vinnunni við að búa sig undir skírn við vinnuna sem Nói lagði á sig þegar hann smíðaði örkina. Ef þú ert nýbyrjaður að kynnast Jehóva getur vinnan sem þú átt fyrir höndum virst yfirþyrmandi, jafnvel eins risastórt verkefni og smíði arkarinnar. Er þessi vinna virkilega nauðsynleg? Hún var það sannarlega fyrir Nóa. Guð var arkitektinn að örkinni og Nói þurfti að fylgja fyrirmælum hans vandlega til að lifa af flóðið. Nói sýndi trú og hlýddi Guði. Hann smíðaði örkina með hjálp Guðs. Nói „fylgdi fyrirmælum Guðs í einu og öllu“ og það getur þú líka gert. – 1. Mós. 6:22.
6. Í hvaða skilningi getur skírnin bjargað þér?
6 Í 21. versi segir Pétur postuli að skírnin ‚bjargi þér‘. Það bjargar manni í sjálfu sér ekki að vera dýft í kaf í vatn. Og það þvær heldur ekki burtu syndir. Blóð Jesú er það eina sem getur hreinsað þig af synd. (1. Jóh. 1:7) Skírnin er á hinn bóginn mikilvægur þáttur í að fylgja fyrirmælum Guðs í einu og öllu og er „bæn [þín] til Guðs um góða samvisku“. Jehóva svarar bæn þinni fúslega. Í þeim skilningi bjargar skírnin þér. Hún gerir þér kleift að fá eilíft líf.
HVAÐ FELST Í SKÍRNINNI?
7. Hvernig ætti skírnin að fara fram?
7 Biblían gefur ekki nákvæmar leiðbeiningar um hvernig skírnin eigi að fara fram aðrar en þær að skírnþeginn eigi að fara alveg á kaf. En hún sýnir okkur hvað er við hæfi. Frumreglur Biblíunnar hjálpa skírnþegum að vita hvernig er viðeigandi að klæðast og áhorfendum hvernig er viðeigandi að hegða sér. (1. Kor. 14:40; 1. Tím. 2:9) Nú á dögum sjá öldungar yfirleitt um að dýfa skírnþegunum niður i vatnið. Þeir fá enga sérstaka upphefð þótt þeir sinni þessu verkefni. (1. Kor. 1:14, 15) Skírnin er fullgild hvort sem áhorfendur eru fáir eða margir. – Post. 8:36.
8. Hvaða spurninga eru skírnþegar spurðir og hvers vegna? (Postulasagan 2:38–42) (Sjá einnig mynd.)
8 Biblían sýnir að við ættum að ‚játa trúna opinberlega og að það leiði til björgunar‘. (Rómv. 10:9, 10; sjá skýringu við ‚játar opinberlega‘ í námsbiblíunni á tungumáli sem þú skilur.) Það er því viðeigandi að við tjáum trú okkar þegar við skírumst, en það er forsenda þess að fá björgun. Þess vegna eru skírnþegar spurðir tveggja spurninga. Sú fyrri er: „Hefur þú iðrast synda þinna, vígt þig Jehóva og viðurkennt hjálpræðisleið hans fyrir milligöngu Jesú Krists?“ Þessi spurning beinir athygli að því hvernig skírnþegi hefur búið sig undir skírnina og minnir á hvatninguna sem Pétur gaf mannfjöldanum á hvítasunnunni. Seinni spurningin er: „Er þér ljóst að skírn þín auðkennir þig sem vott Jehóva sem tilheyrir söfnuði hans?“ Þessi spurning minnir okkur á að við höldum vígsluheit okkar með því að fylgja þeirri leiðsögn sem við fáum fyrir milligöngu safnaðarins og þjónum Jehóva ásamt trúsystkinum okkar, rétt eins og kristnir menn gerðu á fyrstu öldinni. (Lestu Postulasöguna 2:38–42.) Þeir sem geta af heilum hug svarað báðum spurningunum játandi eru hæfir til skírnar.
Við skírnina „játar maður trúna opinberlega og það leiðir til björgunar“. (Sjá 8. grein.)d
9. Hvað þurfa allir að gera til að fá velþóknun Guðs?
9 Þú lifðir kannski tiltölulega heiðarlegu lífi áður en þú kynntist sannleikanum og gerðir ekkert alvarlegt af þér. Eða kannski varstu alinn upp af kristnum foreldrum sem kenndu þér að elska Jehóva. Þarftu samt að iðrast og láta skírast til að fá velþóknun Guðs? Já. Við þurfum öll að viðurkenna að við erfðum synd sem gerir okkur fjarlæg Guði, sama hver bakgrunnur okkar er. (Sálm. 51:5) En þegar við kynnumst Jehóva veljum við að láta vilja hans ganga fyrir okkar eigin vilja. Þá getum við iðrast fyrri lífsstefnu og snúið við – farið að fylgja lífsstefnu sem faðir okkar á himnum hefur velþóknun á. Síðan getum við látið skírast. – Post. 3:19.
10. Hvað þarftu að gera ef þú skírðist áður til annarrar trúar?
10 Þú þarft að skírast sem vottur Jehóva þó að þú hafir áður látið skírast til annarrar trúar, vegna þess að þá skildirðu ekki fyllilega sannleikann um Jehóva Guð og Jesú. Og þótt þú hafir vígt þig Guði í bæn var loforð þitt ekki byggt á réttum skilningi á vilja hans. Þegar Páll postuli hitti menn í Efesus sem höfðu látið skírast áður, en skildu ekki til fulls sannleikann um Jesú, gerði hann þeim ljóst að þeir þyrftu að skírast aftur.b (Post. 19:1–5) Það sama á við nú á dögum. Skírnin er ekki gild nema hún sé byggð á nákvæmri þekkingu á vilja Guðs.
„Í NAFNI FÖÐURINS, SONARINS OG HEILAGS ANDA“
11. Hvað merkir það að skírast „í nafni föðurins, sonarins og heilags anda“? (Matteus 28:18–20)
11 Jesús fyrirskipaði að nýir lærisveinar skyldu skírðir „í nafni föðurins, sonarins og heilags anda“. (Lestu Matteus 28:18–20.) Hvað átti hann við með því? Í Biblíunni vísar ‚nafn‘ oft í orðstír þess sem ber nafnið. Það getur líka vísað til stöðu og valds viðkomandi. (Samanber Matteus 10:41; sjá skýringu við „því að hann er spámaður“ í námsbiblíunni á tungumáli sem þú skilur.) Þegar við skírumst í nafni Jehóva og Jesú merkir það að við vitum að þeir eiga rétt á og vald til að segja okkur hvað við eigum að gera. Og þegar við skírumst í nafni heilags anda merkir það að við fylgjum leiðsögn andans. Skoðum nánar hvernig við gerum það.
12. Hvernig látum við skírast í nafni föðurins? (Opinberunarbókin 4:11) (Sjá einnig mynd.)
12 Í nafni föðurins. Við játum að Jehóva er faðir okkar á himnum sem hefur gefið okkur lífið. Hann er almáttugur Guð og skapari alls. (Lestu Opinberunarbókina 4:11.) Við vitum að hann heyrir bænir okkar. Við virðum nafn hans og notum það þegar við tölum við hann í bæn og segjum öðrum frá honum. (Sálm. 65:2) En það felst fleira í því að skírast í nafni föðurins. Áheyrendur Péturs á hvítasunnunni þekktu Jehóva en þeir þurftu að skilja að hann veitir eilíft líf aðeins fyrir milligöngu Jesú Krists. – Rómv. 5:8.
Eftir að þú skírist skaltu halda áfram að viðurkenna stöðu og vald föðurins (Sjá 12. grein.)
13. Hvernig látum við skírast í nafni sonarins? (Sjá einnig mynd.)
13 Í nafni sonarins. Við erum sannfærð um að Jesús sé einkasonur Guðs. Jesús er „vegurinn“, sá eini sem getur gert okkur kleift að eiga gott samband við Jehóva. (Jóh. 14:6) Jesús er líka frelsari okkar, sá sem dó fyrir okkur svo að við mættum lifa. Þessi vitneskja knýr okkur til að feta í fótspor hans á hverjum degi, ekki bara þegar við skírumst. (1. Jóh. 2:6) Við boðum því trúna af kappi eins og hann og látum ekkert trufla okkur. (Lúk. 4:43) Við þolum jafnvel ofsóknir fyrir að þjóna Guði trúfastlega. (2. Tím. 3:12) Við lítum á Jesú sem „höfuð safnaðarins“ og fylgjum fúslega forystu þeirra sem hann hefur treyst til að annast fylgjendur sína. – Ef. 4:8, 11, 12; 5:23.
Haltu áfram að viðurkenna stöðu og vald sonarins eftir að þú lætur skírast. (Sjá 13. grein.)
14. (a) Hvernig skírumst við í nafni heilags anda? (Sjá einnig mynd.) (b) Hvaða fleiri skírnum þurfa hinir andasmurðu að skírast? (Sjá rammann „Skírnir sem hinir andasmurðu skírast“.)
14 Í nafni heilags anda. Við viðurkennum sannleikann um heilagan anda. Hann er starfskraftur Guðs en hvorki persóna né hluti af þrenningu. Við skiljum að spámennirnir og biblíuritararnir voru innblásnir af heilögum anda. Þess vegna lesum við reglulega í Biblíunni og lifum í samræmi við kenningar hennar. (2. Pét. 1:20, 21) Og við gætum okkar að drýgja ekki alvarlegar syndir því að það gæti hindrað okkur – og jafnvel söfnuðinn – í að fá anda Guðs. – Ef. 4:30.
Haltu áfram að viðurkenna hlutverk heilags anda eftir að þú skírist. (Sjá 14. grein.)
15. Hverju ættum við að vera staðráðin í?
15 Ef þú ert þegar skírður skaltu rifja upp hvers vegna skírnin er svo mikilvægc og lifa í samræmi við loforðið sem þú gafst Jehóva þegar þú vígðir honum líf þitt og lést skírast. En hvað ef þú hefur ekki enn látið skírast? Heldur eitthvað aftur af þér? Næsta námsgrein fjallar um hvernig þú getur unnið að því að verða hæfur til skírnar.
SÖNGUR 161 Að þjóna þér mitt yndi er
a Gríska orðið baptisma sem er þýtt „skírn“ merkir ‚að færa í kaf‘ eða ‚dýfa‘. Skírn felur því í sér að færa einstaklinginn í kaf í vatn en ekki bara að ausa dálitlu vatni yfir hann eins og sum trúfélög kenna.
b Þessir menn í Efesus voru þegar skírðir „skírn Jóhannesar“. (Post. 19:3) Jóhannes skírari hvatti Gyðinga til að iðrast synda sinna gegn lögum Móse og hann skírði þá sem gerðu það. (Mark. 1:4, 5) En þegar lög Móse féllu úr gildi hafði þessi skírn ekki lengur gildi í augum Jehóva. Þaðan í frá samþykkir Guð aðeins ‚eina skírn‘ til frelsunar. – Ef. 4:5.
c Sjá greinina „Hvað er skírn?“ á jw.org og í JW Library® í greinaröðinni „Biblíuspurningar og svör“.
d MYND: Skírnþegar á móti standa og játa trú sína opinberlega.