Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w26 febrúar bls. 2–7
  • Hjálpum ættingjum sem eru ekki í trúnni

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hjálpum ættingjum sem eru ekki í trúnni
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • LÁTUM SAMKENND KNÝJA OKKUR TIL AÐ HJÁLPA ÞEIM
  • HVAÐ LIGGUR AÐ BAKI NEIKVÆÐNINNI?
  • VERUM ÞOLINMÓÐ OG VONGÓÐ
  • SÝNUM AÐ VIÐ ELSKUM ÞÁ
  • GEFUM ALDREI UPP VONINA
  • Sannleikurinn ,færir ekki frið heldur veldur sundrungu‘
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2017
  • Svaraðu eftirfarandi spurningum
    Dagskrá svæðismóts með farandhirði 2025-2026
  • Ákvarðanir sem sýna að við reiðum okkur á Jehóva
    Líf okkar og boðun - vinnubók fyrir samkomur – 2023
  • Höldum áfram að læra af grundvallarkenningum Biblíunnar
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
w26 febrúar bls. 2–7

6.–12. APRÍL 2026

SÖNGUR 82 Látið ljós ykkar lýsa

Hjálpum ættingjum sem eru ekki í trúnni

„Gefumst ekki upp á að gera það sem er gott.“ – GAL. 6:9.

Í HNOTSKURN

Við skoðum hvernig við getum haldið góðu sambandi við fjölskyldu og ættingja sem eru ekki í trúnni og mögulega sagt þeim frá fagnaðarboðskapnum.

1, 2. Hvað gæti hafa haft áhrif á sambandið við fjölskyldu og ættingja þegar við kynntumst sannleikanum?

JESÚS sagði við mann sem sagðist vilja fylgja honum: „Farðu heim til ættingja þinna og segðu þeim frá öllu sem Jehóva hefur gert fyrir þig.“ (Mark. 5:19) Það sem Jesús sagði sýnir að okkur er eðlilegt að vilja segja ástvinum okkar góðar fréttir.

2 Manstu hvernig þér leið þegar þú heyrðir fagnaðarboðskapinn fyrst? Trúlega gastu ekki haldið aftur af þér að segja öðrum frá honum. En kannski voru ástvinir þínir ekki eins spenntir. Eða kannski hefur það valdið núningi hvernig þú kynntir sannleikann fyrir þeim. Hvernig geturðu þá haldið góðu sambandi við ættingja þína eða endurheimt það án þess að hvika frá meginreglum Biblíunnar?

3. Hvað skoðum við í þessari námsgrein?

3 Í þessari námsgrein skoðum við eftirfarandi: (1) Hvernig samkennd getur knúið okkur til að sýna ættingjum sem eru ekki í trúnni persónulegan áhuga, jafnvel þegar þeir vilja ekki læra um Jehóva. (2) Hvernig við getum leitt hjá okkur fjandsamleg orð og hegðun. (3) Hvernig við getum hjálpað ættingjum okkar að tileinka sér sannleikann með því að vera þolinmóð og vongóð. (4) Hvernig við getum sýnt að við elskum þá.

LÁTUM SAMKENND KNÝJA OKKUR TIL AÐ HJÁLPA ÞEIM

4. Hvað gerði Jesús þegar fólk sýndi boðskapnum ekki áhuga?

4 Jesús var ekki fljótur að gefast upp á þeim sem sýndu boðskap hans ekki áhuga. Hann líkti sér við garðyrkjumann sem lagði sig allan fram við að reyna að fá fíkjutré til að bera ávöxt. (Lúk. 13:6–9) Jesús hafði verið að reyna að byggja upp trú meðal samlanda sinna í meira en þrjú ár þegar hann kom með þessa líkingu. Hvers vegna gafst hann ekki upp á að hjálpa þeim? Jesús sýndi þolinmæði vegna þess að hann hafði samkennd með fólki.

5. Hvers vegna langaði Jesú að hjálpa Gyðingum?

5 Jesús hafði samúð með öðrum Gyðingum vegna þess að trúarleiðtogarnir höfðu brugðist í að hjálpa þeim að byggja upp trú á Guð. Hann sá að fólkið var „eins og sauðir án hirðis“. (Mark. 6:34) Stuttu áður en Jesús dó grét hann jafnvel yfir Jerúsalem vegna þess að hann vissi að flestir íbúarnir myndu týna lífi vegna þess að þá skorti trú. (Lúk. 19:41–44) Eins fáum við meiri löngun til að hjálpa ættingjum okkar ef við þroskum með okkur samkennd með þeim.

6. Hvers vegna ættum við að vera þolinmóð við ættingja sem eru ekki í trúnni? (Galatabréfið 6:9)

6 Lestu Galatabréfið 6:9. Þótt ættingjar okkar hafi ekki áhuga á trú okkar eins og er ættum við að vera þolinmóð og ekki gefast upp á „að gera það sem er gott“. Við vitum að það tekur tíma að losa sig við rótgróna fordóma og byggja upp trú. Varst þú einhvern tíma í svipuðum sporum og ‚áttir enga von og varst án Guðs í heiminum‘? (Ef. 2:12) Þá hefur örugglega einhver sýnt þér þolinmæði. Langar þig ekki líka til að gefa fjölskyldunni þinni tækifæri til að kynnast Jehóva?

HVAÐ LIGGUR AÐ BAKI NEIKVÆÐNINNI?

7. Hvað getur hafa hindrað hálfbræður Jesú í að trúa á hann?

7 Hálfbræður Jesús fréttu líklega af kraftaverkunum sem hann gerði í Galíleu. (Lúk. 4:14, 22–24) En þeir trúðu samt ekki á hann til að byrja með. (Jóh. 7:5) Biblían segir ekki hvers vegna. En hún nefnir að minnsta kosti tvennt sem kom í veg fyrir að sumir Gyðingar yrðu lærisveinar Jesú. Sumir óttuðust að samfélagið hafnaði þeim. (Jóh. 9:18–22) Aðrir höfðu þekkt Jesú frá því að hann var barn og gátu ekki séð hann fyrir sér sem fulltrúa Guðs. (Mark. 6:1–4) Hálfbræður hans hafa kannski hugsað þannig. Gætu ættingjar okkar hugsað eitthvað svipað?

8. Hvers vegna segja eða gera ættingjar sem eru ekki í trúnni stundum eitthvað fjandsamlegt?

8 Veltum fyrir okkur hvers vegna þeir gera eða segja stundum eitthvað fjandsamlegt. Bræður Jesú voru ef til vill á meðal ættingjanna sem sögðu eitt sinn að hann væri „genginn af vitinu“. (Mark. 3:21) Hvers vegna ætli þeir hafi gert það? Frásagan sýnir að Jesús var svo upptekinn að hann hafði ekki einu sinni tíma til að fá sér að borða. (Mark. 3:20) Litu ættingjar hans á hann sem ofstækismann? Kannski. Ættingjum okkar finnst við kannski taka trú okkar allt of alvarlega. Ef svo er ættum við að sýna með orðum okkar og verkum að við erum ekki ofstækisfull.

9. Hvað gæti hjálpað ættingjum okkar að fá annað álit á vottum Jehóva? (1. Pétursbréf 3:1, 2) (Sjá einnig myndir.)

9 Látum verkin tala. Ættingjar okkar geta fengið annað álit á vottum Jehóva ef við hegðum okkur vel og tölum vingjarnlega. (Lestu 1. Pétursbréf 3:1, 2.) Eiginmanni sem er ekki í trúnni gæti auðveldlega fundist hann settur hjá eða hann orðið pirraður þegar konan hans sækir samkomur og tekur þátt í boðuninni. Hún gæti breytt andlegri dagskrá sinni til að verja meiri tíma með honum svo að honum líði ekki þannig. Hún gæti til dæmis tekið þátt í boðuninni þegar hann er upptekinn eða ekki heima. Með því að vera sveigjanleg og sanngjörn getur kristin eiginkona stuðlað að því að maðurinn hennar fái annað álit á vottunum.

Myndir: 1. Systir býr til nesti og kaffi handa manninum sínum, sem er ekki vottur Jehóva, áður en hann fer í vinnuna. 2. Seinna um daginn er hún í boðuninni með annarri systur og sýnir konu í dyragættinni eitthvað um Biblíuna í símanum sínum.

Ættingjar okkar geta skipt um skoðun á vottum Jehóva ef við hegðum okkur vel og tölum vingjarnlega. (Sjá 9. grein.)f


10. Hvernig getum við líkt eftir Jesú þegar aðrir gagnrýna okkur?

10 Við þurfum ekki að svara allri gagnrýni. Jesús fór ekki í vörn þegar hann var ranglega sakaður um að borða og drekka of mikið. Þess í stað hvatti hann fólk til að skoða staðreyndirnar. (Matt. 11:19) Hann sýndi líka með eigin fordæmi að hann gætti jafnvægis í lífinu. (Samanber Jóhannes 2:2, 6–10.) Þú þarft ekki heldur að bregðast við allri gagnrýni sem þú færð. Þú getur sýnt ættingjum þínum í verki að þú sért hamingjusamur og sanngjarn og leyft þeim að draga sínar eigin ályktanir. Þá hafna þeir kannski röngum upplýsingum um okkur.

VERUM ÞOLINMÓÐ OG VONGÓÐ

11. Hvernig kom Jesús fram við bræður sína?

11 Frásagan sýnir að Jesús var þolinmóður við bræður sína. Þeir voru greinilega í Kana þegar hann gerði þar fyrsta kraftaverkið. (Jóh. 2:11, 12) Eins og áður er minnst á trúðu systkini Jesú ekki á hann. En hann hætti samt ekki að láta sér annt um þau. Biblían sýnir að um þrem árum eftir kraftaverkið í Kana hafi Jesús talað vinsamlega við bræður sína. – Jóh. 7:5–8.

12. Hvernig getum við haldið í vonina um að ættingjar okkar skipti um skoðun?

12 Gleggri skilningur á miskunn Jehóva getur hjálpað okkur að halda í vonina. Þegar fölskum trúarbrögðum verður eytt muna ættingjar okkar kannski að við höfðum talað um þennan atburð.a (Opinb. 17:16) Þeir gætu jafnvel farið að þjóna Jehóva með okkur eftir að þrengingin mikla hefst. Og við reynum auðvitað að gera allt sem við getum til að vera til staðar fyrir þá ef þeir glíma við erfiðleika núna. Þeir verða kannski móttækilegri fyrir sannleika Biblíunnar þegar þeir sjá að við elskum þá og sýnum þeim góðvild.

SÝNUM AÐ VIÐ ELSKUM ÞÁ

13. Hvað ættum við að varast þótt við séum önnum kafin í þjónustu Jehóva?

13 Þótt við séum önnum kafin í þjónustu Jehóva viljum við ekki gefa ættingjum okkar á tilfinninguna að við höfum ekki tíma fyrir þá eða að við elskum þá ekki lengur. (Matt. 7:12) Hvernig getum við sýnt að okkur er annt um þá? Skoðum nokkrar leiðir til þess.

14, 15. Hvernig sýnum við ættingjum okkar að við elskum þá? Nefndu dæmi.

14 Höldum sambandi og sýnum þeim að við elskum þá. Við sýnum ættingjum okkar kærleika með því að leyfa þeim að fylgjast með því sem við erum að gera. Við gætum til dæmis sent þeim skilaboð og fáeinar myndir teknar í fríi, á ferðalagi eða þegar við hittum vini okkar. Það þarf kannski ekki meira en litla gjöf eða sætt bréf til að bæta samskiptin. Þegar við tökum þannig frumkvæðið erum við að segja þeim að við elskum þá.

15 Skoðum hvað Anna gerir en hún er systir í Armeníu. Fjölskylda hennar ver miklum tíma saman, sérstaklega á afmælum og hátíðisdögum. Þegar Anna varð vottur Jehóva óttuðust ættingjar hennar að sambandið myndi breytast. Þeir höfðu líka áhyggjur af framtíð hennar. Hvernig dregur Anna úr áhyggjum þeirra? Hún segir: „Þegar ég heimsæki ættingja mína segi ég þeim frá því sem ég er upptekin við. Ég býð þeim líka heim og kynni þá fyrir vinum mínum. Fyrir vikið eru flestir ættingjar mínir vel kunnugir nánustu vinum mínum og líður vel í kringum þá.“ Hún bætir við: „Margir ættingjar mínir hafa haft orð á því hversu ánægð ég sé og að þeir hafi ekki lengur áhyggjur af mér.“

16. Hvernig sýndi Jesús Jakobi bróður sínum persónulegan áhuga? (Sjá einnig neðanmáls.)

16 Sýnum því sem þeir eru að gera áhuga. Eftir að Jesús reis upp sýndi hann Jakobi bróður sínum áhuga með því að birtast honum persónulega. (1. Kor. 15:7) Jakob hlýtur að hafa verið glaður þegar hann áttaði sig á að Jesús hafði ekki gefist upp á honum. Þessir endurfundir hafa trúlega fullvissað Jakob um að Jesús væri Messías. Eftir þetta hefur Jakob kannski hjálpað öðrum í fjölskyldunni að skilja að Jesús væri Messías.b – Post. 1:14.

17. Hvernig getum við farið eftir því sem segir í Rómverjabréfinu 12:15? (Sjá einnig mynd.)

17 Lestu Rómverjabréfið 12:15. Við getum stuðlað að því að ástvinir okkar skipti um skoðun á okkur ef við sýnum þeim áhuga þegar þeir þurfa mest á því að halda – bæði á góðum stundum og erfiðum.c Við gætum til dæmis óskað þeim til hamingju þegar barn fæðist og gefið þeim gjöf til að sýna að við samgleðjumst þeim. Þegar einhver í fjölskyldunni missir ástvin getum við sýnt samúð, boðið fram hjálp eða sent kort með uppörvun. Og við getum að sjálfsögðu kíkt reglulega til þeirra, sérstaklega þegar þeir eru að takast á við erfiðleika.

Sama systir og á hinum myndunum tekur sjálfu með manninum sínum og tengdamömmu sinni sem er í hjólastól.

Við getum stuðlað að því að ástvinir okkar skipti um skoðun á okkur og trú okkar ef við sýnum þeim áhuga þegar þeir þurfa mest á því að halda. (Sjá 17. grein.)g


Ferðu í brúðkaup eða útfarir?

Brúðkaup og útfarir eru athafnir þar sem ættingjar koma venjulega saman. Þú gætir velt fyrir þér eftirfarandi meginreglum Biblíunnar áður en þú ákveður hvort þú sækir slíka athöfn.

  • Verður athöfnin með trúarlegu ívafi? (2. Kor. 6:14, 15)

  • Geturðu staðist þrýstinginn til að taka þátt í trúarlegum eða óbiblíulegum siðum ef þú mætir? (Orðskv. 22:3)

  • Vita ættingjar sem eru ekki í trúnni að þú munt ekki taka þátt í óbiblíulegum athöfnum?

  • Hvaða áhrif gæti ákvörðun þín haft á trúsystkini ef athöfnin sem þú sækir er í trúarlegri byggingu? (Fil. 1:10)

Hvað sem þú ákveður að gera skaltu alltaf reyna að útskýra afstöðu þína fyrir ástvinum þínum skýrt og af nærgætni. Umfram allt skaltu gera þitt besta til að varðveita góða samvisku frammi fyrir Guði.e

18. Hvernig getum við líkt eftir lærisveininum Andrési?

18 Kynnum þá fyrir trúsystkinum okkar. Þegar lærisveinninn Andrés vissi að Jesús væri Messías var hann spenntur að kynna bróður sinn fyrir honum. (Jóh. 1:40–42) Gætum við líkt eftir Andrési? Gætum við til dæmis boðið ættingja öðru hvoru á samkomu eða í mat með vinum okkar? Þá sjá þeir að vottarnir eru venjulegt og gott fólk.

19. Hvernig ættum við að koma fram við ættingja okkar þótt þeir skilji kannski ekki allar trúarskoðanir okkar? (1. Pétursbréf 3:15)

19 Lestu 1. Pétursbréf 3:15. Fjölskylda okkar og ættingjar skilja kannski ekki hvers vegna við tökum ekki þátt í sumum siðvenjum en þeir gleyma því ekki þegar við sýnum þeim góðvild og virðingu. Og þeir kunna kannski að meta þegar við gerum eitthvað annað með þeim í staðinn. Við tökum til dæmis ekki þátt í óbiblíulegum hátíðum og siðum en við getum heimsótt þá, borðað með þeim og gefið þeim gjafir við önnur tækifæri.

GEFUM ALDREI UPP VONINA

20. Hvers vegna er uppörvandi að lesa um Jakob?

20 Jakob missti af tækifærinu til að vera með Jesú í þjónustu hans hér á jörðinni en hann varð um síðir lærisveinn hans. (Gal. 1:18, 19; 2:9) Jakob tileinkaði sér greinilega það sem Jesús kenndi þótt hann hafi ekki orðið lærisveinn strax. Hann skrifaði til dæmis undir innblæstri bréf til kristinna manna þar sem hann vísaði óbeint í fjallræðuna.d

21. Hvers vegna ættum við aldrei að gefa upp vonina um að ættingjar okkar fari að þjóna Jehóva?

21 Þótt við gerum okkar besta til að sýna ættingjum okkar sem eru ekki í trúnni persónulegan áhuga er ekki víst að þeir bregðist vel við eða sýni sannleikanum áhuga. Hvers vegna ættum við aldrei að gefast upp á þeim? Vegna þess að við líkjum eftir Jehóva, miskunnsömum Guði okkar, og Jesú syni hans í hvert sinn sem við sýnum ættingjum okkar góðvild. (Lúk. 6:33, 36) Með tímanum gæti kærleikur okkar til þeirra breytt skoðun þeirra á okkur. Og þeir muna kannski eftir því sem við höfum sagt þeim um trúna. Ef við gefumst ekki upp á þeim má vera að við fáum að njóta þess að sjá einhverja af kærum ættingjum okkar þjóna Jehóva með okkur.

HVERJU SVARAR ÞÚ?

  • Hvernig getur samkennd hvatt okkur til að hjálpa ættingjum sem eru ekki í trúnni?

  • Hvers vegna þurfum við að vera þolinmóð og vongóð í garð ættingja sem eru ekki í trúnni?

  • Hvernig getum við sýnt ættingjum sem eru ekki í trúnni að við elskum þá?

SÖNGUR 60 Það bjargar þeim

a Sjá greinina „Hvað vitum við um dóma Jehóva í framtíðinni?“ í Varðturninum maí 2024, bls. 11 gr. 11–13.

b Að minnsta kosti tveir af bræðrum Jesú, þeir Jakob og Júdas, tóku við sannleikanum eftir dauða Jesú og upprisu.

c Sjá rammagreinina „Ferðu í brúðkaup eða útfarir?“

d Berðu saman Jakobsbréfið 1:2 og Matteus 5:11, 12; Jakobsbréfið 1:19 og Matteus 5:22; Jakobsbréfið 1:22; 2:24 og Matteus 7:21; Jakobsbréfið 2:13 og Matteus 5:7; 6:14, 15.

e Sjá „Spurningar frá lesendum“ í Varðturninum 1. júní 2002 og í Varðturninum 15. nóvember 2007 á ensku til að fá meiri upplýsingar.

f MYND: Systir tekur til mat handa eiginmanni sínum áður en hún fer í boðunina.

g MYND: Sama systir tekur sér tíma til að heimsækja tengdamömmu sína sem er ekki vottur.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila