Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í október: Varðturninn og Vaknið! Þar sem áhuga er að finna má bjóða Kröfubæklinginn. Nóvember: Lærum af kennaranum mikla. Ef húsráðandi á engin börn má bjóða Þekkingarbókina eða smáritið Langar þig að vita meira um Biblíuna? Desember: Mesta mikilmenni sem lifað hefur. Einnig mætti bjóða Biblíusögubókina mína eða Þú getur lifað að eilífu í paradís á jörð. Janúar: Fjölskyldulíf þitt gert hamingjuríkt, Sannur friður og öryggi — hvernig? og Öryggi um allan heim undir stjórn Friðarhöfðingjans.
◼ Þar sem fimm helgar eru í október væri kjörið að nota mánuðinn til aðstoðarbrautryðjandastarfs.
◼ Með þessu tölublaði Ríkisþjónustu okkar fylgir viðauki með „Námsskrá Boðunarskólans árið 2006“ sem halda á til haga fyrir næsta ár.
◼ Í vikunni, sem hefst 17. apríl 2006, verður byrjað að fara yfir bókina Hvað kennir Biblían? í safnaðarbóknáminu. Þess skal gætt að nægar birgðir séu af bókinni í söfnuðunum um það leyti.
◼ Við viljum minna á að aldrei ætti að nota nafn og heimilisfang deildarskrifstofunnar sem sendanda á einkapóstsendingum. Það á við um bréf og rit sem eru send til áhugasamra, þeirra sem hafa ekki verið heima eða þeirra sem búa á afskekktum svæðum. Boðberar ættu frekar að nota sitt eigið heimilisfang þar sem þetta tengist þjónustu þeirra við Jehóva. (Matt. 28:19, 20; Rómv. 10:14, 15) Ef boðbera finnst ekki ráðlegt að gefa upp sitt eigið heimilisfang ætti hann að nota sitt eigið nafn og heimilisfang ríkissalarins. — Sjá „Spurningakassa“ Ríkisþjónustu okkar í febrúar 2003.