Upprifjun á efni Boðunarskólans
Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 31. október 2005. Umsjónarmaður skólans stjórnar 30 mínútna upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 5. september til 31. október 2005. [Athugið: Þegar engin tilvísun fylgir spurningu þarftu að leita sjálfur að heimildum til að finna svarið. — Sjá Boðunarskólabókina, bls. 36-7.]
ÞJÁLFUNARLIÐIR
1. Hvernig getum við stuðlað að því að það sem við kennum frá orði Guðs nái til hins táknræna hjarta fólks? (Matt. 13:19) [be bls. 258 gr. 1-2, ásamt ramma]
2. Hvað getur hjálpað okkur að laða fram hvað býr í hjarta annarrar manneskju, en hvað þurfum við að hafa hugfast? [be bls. 259 gr. 2-3]
3. Hvers vegna er mikilvægt að leggja áherslu á frábæra eiginleika Jehóva þegar við kennum? [be bls. 260 gr. 1]
4. Hvernig getum við leitt biblíunemendum fyrir sjónir á hvaða sviðum þeir þurfi að bæta sig? [be bls. 260 gr. 4–bls. 261 gr. 1]
5. Hvað getum við gert til að fá biblíunemendur okkar eða áheyrendur til að grandskoða þær hvatir sem búa að baki því sem þeir gera? [be bls. 262 gr. 1-2]
VERKEFNI NR. 1
6. Hvað er átt við með að leita Jehóva og hvernig getum við sýnt að við gerum það? (Hebr. 11:6) [wE03 15.8. bls. 25 gr. 2; bls. 26 gr. 1-2; bls. 27 gr. 2]
7. Hver eru „heilnæmu orðin“ og hvernig geta öldungar sýnt að þeir haldi sig við þau? (2. Tím. 1:13, 14) [wE03 1.1. bls. 29 gr. 3–bls. 30 gr. 1]
8. Hvað er átt við með orðunum „helgiritasafn Biblíunnar“ og hvað sker úr um hvort biblíubók eigi með réttu heima í helgiritasafninu? [si bls. 299 gr. 5-6]
9. Hvers vegna hafa múratorí-sliturnar frá seinni hluta annarrar aldar e.Kr. sérstaka þýðingu til að staðfesta að kristnu grísku ritningarnar tilheyri helgiritasafni Biblíunnar? [si bls. 302 gr. 19]
10. Hvaða heimild gefur Ritningin fyrir biblíuþýðingum og hvaða tilgangi hafa fornar biblíuþýðingar þjónað? [si bls. 307 gr. 9]
VIKULEGUR BIBLÍULESTUR
11. Styður 2. Konungabók 13:21 dýrkun helgra dóma?
12. Gekk Hiskía í bandalag við Egypta? (2. Kon. 18:19-21, 25)
13. Hvað finnst þér áhugavert við það sem skýrt er frá í annálum Assýringa, þó svo að þar sé ekki minnst sérstaklega á einstakan sigur Jehóva á Sanheríb Assýríukonungi? (2. Kon. 19:35, 36)
14. Hver var faðir Sealtíels? (1. Kron. 3:16-18)
15. Hvernig gáfu Rúbenítar, Gaðítar og hálf kynkvísl Manasse á dögum Sáls konungs gott fordæmi fyrir alla þjóna Guðs nú á dögum? (1. Kron. 5:18-22)