Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 12. mars
Söngur 112
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar.
15 mín: Staðbundnar þarfir.
20 mín: „‚Leggjum á okkur erfiði‘ í apríl.“ (Greinar 1-13) Í umsjá öldungs í forsæti. Hvetjandi ræða um starfsmarkmið okkar í apríl. Hvetjið alla safnaðarmenn til að leggja sitt af mörkum til að 100% þátttaka náist í boðunarstarfinu í mánuðinum.
Söngur 147 og lokabæn.
Vikan sem hefst 19. mars
Söngur 166
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan. Farið yfir rammagreinina „Gefðu Jehóva þitt besta — líka í apríl.“
15 mín: Notið Árbókina 2001 vel. Ræða með þátttöku áheyrenda. Farið yfir efnið „2000 Grand Totals“ á bls. 31. Fjallið um bréf hins stjórnandi ráðs á bls. 3-5. Látið nokkra boðbera endursegja frásögur úr nýju Árbókinni sem þeim hafa fundist sérstaklega hvetjandi og trústyrkjandi. Hvetjið fjölskyldur til að lesa alla Árbókina saman eins og Betelfjölskyldan gerir. Bendið á spurningarnar á bls. 255 sem má nota til að rifja efnið upp. Biðjið áheyrendur um tillögur um það hvernig hægt sé að nota Árbókina til að hjálpa biblíunemendum að meta skipulag Jehóva enn meir og það að mega tilheyra því.
20 mín: „‚Leggjum á okkur erfiði‘ í apríl.“ (Greinar 14-30) Í umsjá starfshirðis. Ræða með spurningum og svörum úr völdum greinum. Allir ættu að útbúa hentuga stundaskrá svo að þeir geti átt sem fyllstan þátt í boðunarstarfinu í apríl. Greinið frá öllum samkomum fyrir boðunarstarfið sem ráðgert er að halda í mánuðinum. Hvetjið alla sem geta til að gerast aðstoðarbrautryðjendur og verða sér úti um umsóknareyðublað að samkomu lokinni.
Söngur 188 og lokabæn.
Vikan sem hefst 26. mars
Söngur 204
10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Bendið á að enn sé ekki of seint að sækja um aðstoðarbrautryðjandastarf í apríl. Hvetjið alla til að fylgja biblíulestraráætluninni í Rannsökum daglega ritningarnar — 2001 fyrir minningarhátíðarvikuna 3.-8. apríl. Tilkynnið hvenær farið verður yfir Varðturnsnámsefni minningarhátíðarvikunnar. Gleymið ekki sérræðunni „Hverjir geta bjargast?“ næsta sunnudag, 1. apríl. Hvetjið alla til að taka þátt í boðunarstarfinu þennan dag og byrja starfsmánuðinn vel.
20 mín: „Heiðrum Jehóva og son hans.“ Hvetjandi biblíuræða öldungs. Hvetjið alla til að eiga sem mestan þátt í starfsátakinu í apríl og leggja sig sérstaklega fram um að bjóða fólk á minningarhátíðina.
15 mín: Semdu góða blaðakynningu. Blöðin Varðturninn og Vaknið! verða boðin í apríl. Farið yfir greinar 3 og 10 á bls. 8 í Ríkisþjónustu okkar í október 1996. Hafa þarf fernt í huga: (1) benda á grein, (2) velja viðeigandi umræðuefni, (3) varpa fram spurningu til að örva áhugann og (4) finna hentugan ritningarstað til að lesa fyrir hvert blaðanna sem boðið er. Reynið að nota Kröfubæklinginn eða Þekkingarbókina til að koma af stað biblíunámskeiðum hjá áhugasömum. Sviðsetjið að lokum hvernig megi gera það í fyrstu heimsókn.
Söngur 207 og lokabæn.
Vikan sem hefst 2. apríl
Söngur 220
9 mín: Staðbundnar tilkynningar. Minnið boðbera á að skila inn starfsskýrslum fyrir mars. Farið yfir rammagreinina „Til minnis vegna minningarhátíðar.“
18 mín: „Kærleikur knýr okkur til að prédika.“a Leggið áherslu á ritningarstaðina í greininni. Takið með efni úr Insight on the Scriptures, 2. bindi, bls. 673, gr. 1. Látið gamalreyndan boðbera lýsa því hvernig kærleikurinn til Guðs knýr hann til að halda áfram í prédikunarstarfinu. Hvetjið alla til að taka þátt í boðunarstarfinu í apríl og í hverjum mánuði eftir það.
18 min: „Hjálpaðu öðrum að sækja samkomur.“b Fleiri tillögur um það hvernig beina megi biblíunemendum til skipulagsins er að finna í gr. 14-16 í viðauka Ríkisþjónustu okkar í júní 1996. Bendið á hvernig nota megi bæði Kröfubæklinginn (kafla 5, gr. 7) og Þekkingarbókina (kafla 5, gr. 22) snemma í náminu til að hvetja nemandann til að sækja samkomur. Sviðsetjið vel undirbúna sýnikennslu þar sem boðberi hvetur nemanda hlýlega til að byrja að hugsa alvarlega um að sækja samkomur.
Söngur 47 og lokabæn.
[Neðanmáls]
a Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.
b Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.