Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 3.01 bls. 4
  • Bréf Frá Hinu Stjórnandi Ráði

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Bréf Frá Hinu Stjórnandi Ráði
  • Ríkisþjónusta okkar – 2001
Ríkisþjónusta okkar – 2001
km 3.01 bls. 4

Bréf frá hinu stjórnandi ráði

Við njótum mikilla forréttinda sem vottar Jehóva. Við þekkjum Jehóva, hinn eina sanna og lifandi Guð, skapara alheimsins, og við berum nafn hans og þjónum honum. Er hægt að hugsa sér meiri blessun? — Jes. 43:12; Hebr. 8:11.

Við höfum von hjálpræðisins og okkur hefur verið falið að boða fagnaðarerindið um ríkið svo að aðrir geti einnig tilbeðið Jehóva og öðlast þá von sem við höfum. (Matt. 24:14; Rómv. 10:13, 14; 1. Þess. 5:8) Og við njótum þeirrar gleði að tilheyra alþjóðlegu bræðralagi guðsdýrkenda sem elska og hjálpa hver öðrum. Finnst þér það ekki mikil umbun?

Biblían hvetur okkur: „Þjónið [Jehóva] með gleði . . . Gangið inn um hlið hans með lofsöng, í forgarða hans með sálmum, lofið hann, vegsamið nafn hans. Því að [Jehóva] er góður, miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til kyns.“ (Sálm. 100:2-5) Að þjóna Jehóva með gleði er nátengt því að eiga sterkt einkasamband við hann. Hann gerir okkur kleift að eiga samband við sig og við getum ræktað það. Þegar við eigum einkasamband við Jehóva vitum við að hann er ávallt til taks og hjálpar okkur og styrkir á neyðarstund. Við erum sannfærð um að hann veitir okkur nauðsynlega leiðsögn og andlegan þrótt til að glíma við lífið á síðustu dögum þessa heimskerfis. Við erum glöð í þjónustunni þrátt fyrir þrýstinginn sem mætir okkur, og við þökkum Jehóva dag hvern því að hann ‚ber umhyggju fyrir okkur,‘ eins og orð hans minnir á. — 1. Pét. 5:7.

Jehóva blessaði okkur ríkulega á síðasta ári. Það gladdi okkur mjög að vera á landsmótinu „Gerendur orðsins“ ásamt öðrum með sömu dýrmætu trú, og syngja og nærast saman við andlegt borð Jehóva. Við höfum notið þess í safnaðarbóknáminu að fara saman yfir hina trústyrkjandi bók Gefðu gaum að spádómi Daníelsbókar. Og vorum við ekki himinlifandi að fá í hendur fyrra bindi bókarinnar Spádómur Jesaja — ljós handa öllu mannkyni? Það er óhætt að segja að ‚bikar okkar sé barmafullur.‘ — Sálm. 23:5.

Það er einkar ánægjulegt til að vita að milljónir andlegra bræðra og systra þjóna Jehóva í sameiningu. Er ekki uppörvandi að lesa um nýjar hámarkstölur boðbera víða um heim? Við fögnum yfir öllum milljónunum sem sóttu minningarhátíðina um dauða Drottins, þrátt fyrir heimsástandið. Þegar við lítum yfir heimsakurinn er augljóst að „uppskeran er mikil.“ (Lúk. 10:2) Á síðasta ári létu að meðaltali 5555 biblíunemendur skírast niðurdýfingarskírn í hverri viku til tákns um vígslu sína. Þótt uppskeran sé mismikil eftir heimshlutum gleðjumst við yfir því sem Jehóva er að áorka. Við sjáum ótvíræð merki um að hann blessar samstillt átak þjóna sinna.

Bygging nýrra ríkissala er líka mikið ánægjuefni. Það yljar okkur um hjartarætur hvernig bræður og systur í þróunarlöndum styðja þessar framkvæmdir af heilum huga. Mörg hundruð ríkissalir hafa þegar verið byggðir með hjálp byggingarteyma sem hafa fengið nauðsynlega þjálfun. Bræður í þessum teymum ferðast frá einum söfnuði til annars innanlands og hafa forystu um byggingu ríkissala. Byggja þarf þúsundir ríkissala til viðbótar og því er þörf á enn fleiri sjálfboðaliðum í þróunarlöndunum til að vinna þetta mikilvæga starf. Trúsystkini okkar kunna mjög að meta að geta safnast saman til tilbeiðslu í eigin ríkissal og eru innilega þakklát fyrir fjárstuðning alþjóðabræðrafélagsins sem gerir þeim það mögulegt.

Fregnir af lagalegum sigrum fyrir dómstólum eru mikið fagnaðarefni. En víða um lönd eru áhrifamiklir menn sem vildu gjarnan stöðva tilbeiðsluna á Jehóva. Við vitum að þegar til kastanna kemur skiptir það Jehóva ekki máli hve margir andstæðingarnir eru eða hve berskjölduð við virðumst í augum þeirra. (2. Kron. 14:11) Þið bræður og systur eigið innilegt hrós skilið fyrir staðfestu ykkar í sannri tilbeiðslu.

Haldið áfram að styrkjast í trúnni og reiða ykkur á handleiðslu Jehóva, og sinnið kristnum skyldum ykkar glöð í bragði. (Orðskv. 3:5, 6) Það er ástæðulaust að missa móðinn, hvað sem óvininum verður leyft að gera. Munið eftir hvatningarorðum Elísa til áhyggjufulla þjónsins: „Óttast ekki, því að fleiri eru þeir, sem með okkur eru, en þeir, sem með þeim eru.“ (2. Kon. 6:15-17) Himneskar hersveitir Jehóva eru tilbúnar að verja hagsmuni hreinnar tilbeiðslu núna líkt og á dögum Elísa. Við getum horft fram veginn full trúartrausts. Jehóva hefur töglin og hagldirnar. Þjóðirnar standast honum ekki snúning. Hann hefur krýnt son sinn og veitt honum fullt stjórnvald. „Sæll er hver sá er leitar hælis hjá honum.“ — Sálm. 2:1-6, 12-13.

Munið, kæru bræður og systur, að þið eru stöðugt í huga okkar. Það er einlæg bæn okkar að þið öll ‚megið standa stöðug, fullkomin og fullviss í öllu því sem er vilji Guðs.‘ — Kól. 4:12.

Bræður ykkar,

Hið stjórnandi ráð votta Jehóva

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila