Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 8.00 bls. 2
  • Þjónustusamkomur

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þjónustusamkomur
  • Ríkisþjónusta okkar – 2000
  • Millifyrirsagnir
  • Vikan sem hefst 14. ágúst
  • Vikan sem hefst 21. ágúst
  • Vikan sem hefst 28. ágúst
  • Vikan sem hefst 4. september
Ríkisþjónusta okkar – 2000
km 8.00 bls. 2

Þjónustusamkomur

Vikan sem hefst 14. ágúst

Söngur 114

12 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Farið nokkrum orðum um þjónustuskýrsluna fyrir apríl, bæði fyrir landið í heild og söfnuðinn. Hvetjið alla til að taka þátt í boðunarstarfinu síðustu tvær helgar mánaðarins. Greinið frá samkomum fyrir boðunarstarfið um helgina. Farið yfir spurningakassann.

15 mín: „Berstu trúarinnar góðu baráttu.“ Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum. Takið með efni úr Organized To Accomplish Our Ministry (Þjónustubókinni), bls. 44-5, um það hvernig bóknámsstjórar skipuleggja boðunarstarfið í bóknámshópunum og aðstoða þá sem þurfa að fá persónulega hjálp til að starfa reglulega.

18 mín: Skólaganga er gagnleg. Faðir ræðir við börn sín um gagnsemi veraldlegrar menntunar. (Sjá Spurningar unga fólksins, bls. 133-9.) Mörgum unglingum finnst töluverð þraut að sækja skóla í agalausu þjóðfélagi nútímans og leiðist af því að þeim finnst það sem þeir læra hafa lítið hagnýtt gildi. Faðirinn fer yfir biblíulegar meginreglur og bendir á hvers vegna það sé skynsamlegt að afla sér nægilegrar menntunar. Hann hvetur börnin til að leggja sig fram við námið og fylgjast vel með í kennslustundum.

Söngur 127 og lokabæn.

Vikan sem hefst 21. ágúst

Söngur 143

12 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan. Minnið alla á að skila inn starfsskýrslum fyrir ágúst um mánaðamótin. Bóknámsstjórar skulu ganga úr skugga um að allir í hópnum þeirra geri það svo að hægt sé að taka skýrslurnar saman fyrir 6. september. Sviðsetjið vel æfða kynningu um spurninguna: „Hvers vegna leyfir kærleiksríkur Guð að mannkynið þjáist svona lengi?“ (Reasoning from the Scriptures, bls. 395-6) Hvetjið alla til að taka þátt í boðunarstarfinu um helgina.

8 mín: „Ný dagskrá sérstaka mótsdagsins.“ Ræða. Tilgreinið hvenær eins dags mótið verður haldið. Hvetjið boðbera til að vera viðstadda alla dagskrána og bjóða biblíunemendum sínum og áhugasömum að koma.

25 mín: „Gerðu það sem þér er gagnlegt.“ Spurningar og svör.

Söngur 152 og lokabæn.

Vikan sem hefst 28. ágúst

Þjónustusamkoman fellur niður vegna landsmótsins 2000, „Gerendur orðsins,“ sem haldið er dagana 1. til 3. september í Íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi. Þrem hæfum bræðrum úr hverjum söfnuði skal falið fyrir fram að taka saman aðalatriði hvers mótsdags fyrir upprifjunina á þjónustusamkomunni í vikunni sem hefst 11. september.

Vikan sem hefst 4. september

Söngur 196

7 mín: Staðbundnar tilkynningar.

20 mín: „Unga fólkið hefur gagn af samkomunum.“ Umræður með spurningum og svörum í umsjá öldungs. Þegar farið er yfir 8. grein skal fjalla um hvað geti stuðlað að betri einbeitingu og eftirtekt á samkomum. (Sjá Vaknið! á ensku 22. september 1998, bls. 19-20.) Hvetjið foreldra til að vera ákveðin við börnin svo að þau mæti reglulega á allar samkomur. — Sjá reynslufrásögu í Varðturninum á ensku 1. september 1997, bls. 25.

18 mín: „Sýnirðu þolgæði?“ Ræða með þátttöku áheyrenda. Hvetjið alla til að hugleiða hvernig þeim tekst að sýna þolgæði í hinni kristnu þjónustu. Ef veikleikar koma í ljós þarf að styrkja sig andlega. Takið með efni úr Varðturninum 1. nóvember 1999, bls. 19-20, gr. 17-21. Bjóðið tveim eða þrem gamalreyndum og trúföstum boðberum að segja frá því hvað þeir geri til að vera þolgóðir.

Söngur 206 og lokabæn.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila