Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 8. maí
Söngur 125
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar.
15 mín: „Kanntu að meta það sem heilagt er?“ Ræða öldungs. Leggið áherslu á hve mikilvægt er að sækja mótið alla þrjá dagana.
20 mín: „Brautryðjandastarf á unglingsárunum.“ Farið yfir greinina á jákvæðum nótum með einhverri þátttöku áheyrenda. Leggið áherslu á mikilvægi þess að leggja út í brautryðjandastarf af réttu tilefni. Engum ætti að finnast að verið sé að þrýsta á sig en allir ættu að íhuga hvaða möguleika þeir hafa. Bendið á gagnið af brautryðjandastarfi. Ef einhverjir ungir brautryðjendur eru í söfnuðinum eða einhverjir sem hófu brautryðjandstarf ungir mætti eiga viðtal við þá og láta aðalatriði greinarinnar koma fram í athugasemdum þeirra. Minnið á að unglingsárin eru kjörinn tími til að búa sig undir Betelstarf.
Söngur 201 og lokabæn.
Vikan sem hefst 15. maí
Söngur 134
13 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan.
16 mín: „Hlýddu á heilög orð Guðs.“ Spurningar og svör. Bendið á hvers vegna allir eigi að vera komnir í sæti þegar dagskráin hefst.
16 mín: „Vegsamaðu Guð með góðri hegðun.“ Öldungur ræðir efnið við fjölskyldu. Þau fjalla um hvernig þau geti sýnt góða mannasiði, reglusemi, hreinlæti og verið til fyrirmyndar í útliti og hegðun á almannafæri yfir mótsdagana.
Söngur 203 og lokabæn.
Vikan sem hefst 22. maí
Söngur 36
12 mín: Staðbundnar tilkynningar. Farið yfir spurningakassann.
20 mín: „Vakið!“ Spurningar og svör. Útskýrið af hverju það sé brýnt að við höldum andlegri vöku okkar enda þótt við vitum ekki daginn eða stundina. — Sjá Varðturninn 1. febrúar 1996, bls. 30.
13 mín: Hvað hyggstu gera í sumar? Fjölskylda ræðir sumaráform sín. Þau ræða um að sækja landsmótið alla þrjá dagana, vera aðstoðarbrautryðjendur einn mánuð eða fleiri, fara í ferðalag eða hafa einhverja aðra heilnæma afþreyingu á dagskrá. Þau eru öll sammála um að vanrækja ekkert á guðræðisáætlun sinni yfir sumarmánuðina.
Söngur 83 og lokabæn.
Vikan sem hefst 29. maí
Söngur 135
12 mín: Staðbundnar tilkynningar. Minnið alla á að skila inn starfsskýrslu fyrir maí. Sviðsetjið stutta kynningu á ritatilboðinu í júní. Sýnið hvernig bjóða megi biblíunámskeið með því að nota 13. kaflann í Kröfubæklingnum.
15 mín: „Hafðu gleði af heilagri þjónustu þinni.“ Ræða. Fjallið um hvað veitir okkur gleði í þjónustunni. — Sjá Insight on the Scriptures, 2. bindi, bls. 120.
18 mín: Umbunarríkur biblíulestur. Ræða og sýnikennsla byggð á Theocratic School Guidebook (Skólahandbókinni), bls. 34-5, gr. 6-7. Höfuðþættir lesefnisins byggjast á aðalbiblíulestraráætluninni í námsskrá Guðveldisskólans. (Ríkisþjónusta okkar, desember 1999, bls. 7) Látið fjölskyldu sviðsetja hvernig hún fer yfir biblíulesefni þessarar viku. Hún fjallar um eitt eða tvennt, sem vekur áhuga, og notar Watch Tower Publications Index ásamt Lykli að efnisskrá Varðturnsins eða Insight on the Scriptures til að rannsaka efnið betur. Sýnið hvernig við getum gert biblíulesturinn innihaldsríkari þannig að við séum færari um að ‚fara rétt með orð sannleikans.‘ — 2. Tím. 2:15.
Söngur 95 og lokabæn.
Vikan sem hefst 5. júní
Söngur 37
5 mín: Staðbundnar tilkynningar.
10 mín: Staðbundnar þarfir.
15 mín: „Sérréttindi sem börnum standa til boða.“ Ræða með þátttöku áheyrenda. Endursegið frásögurnar í Varðturninum 1. febrúar 1997, bls. 12, gr. 15. Bjóðið hinum yngri að segja frá því hve mikla gleði það veitir þeim að dreifa blöðum. Látið einn eða tvo krakka sviðsetja einfalda kynningu fyrir starfið hús úr húsi. Hvetjið foreldra til að taka börnin með í blaðastarfið í hverri viku.
15 mín: „‚Þessir menn séu fyrst reyndir‘ — hvernig?“ Ræða öldungs. Fjallið um þá biblíulegu ráðstöfun að skipa safnaðarþjóna. (Sjá Insight on the Scriptures, 2. bindi, bls. 409.) Lýsið hæfniskröfunum sem þeir þurfa að uppfylla til að vera útnefndir. (Sjá Organized To Accomplish Our Ministry, bls. 55-7.) Bendið á hvaða störf safnaðarþjónar geta haft með höndum og hvetjið fleiri bræður til að sækjast eftir þessum sérréttindum.
Söngur 82 og lokabæn.