Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 5.00 bls. 1
  • Sérréttindi sem börnum standa til boða

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Sérréttindi sem börnum standa til boða
  • Ríkisþjónusta okkar – 2000
  • Svipað efni
  • Foreldrar — kennið börnum ykkar að prédika
    Ríkisþjónusta okkar – 1997
  • Foreldrar, hjálpið börnunum ykkar að elska Jehóva
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2022
  • Foreldrar — alið börnin ykkar upp með ástúð
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2007
  • Semdu þína eigin blaðakynningu
    Ríkisþjónusta okkar – 1996
Sjá meira
Ríkisþjónusta okkar – 2000
km 5.00 bls. 1

Sérréttindi sem börnum standa til boða

1 Árið 1949 var blaðastarfsdeginum komið á í öllum söfnuðum og eiga margir foreldrar skemmtilegar minningar frá uppvaxtarárum sínum í sannleikanum í sambandi við þennan dag. Þá áttu allir að einbeita sér að því að dreifa Varðturninum og Vaknið! einn dag í viku í götustarfi, fyrirtækjastarfi, hús úr húsi eða á aðra vegu. Ungir boðberar hlökkuðu sérstaklega til þessa starfs því að þá gafst þeim tækifæri til að taka þátt í sams konar starfi og fullorðnir safnaðarmenn. Átt þú slíkar bernskuminningar?

2 Hjálpaðu barni þínu að taka þátt í blaðastarfinu: Mjög ung börn geta boðið blöð þótt þau séu enn ekki fær um að koma biblíusamræðum af stað við húsráðanda. Þau þurfa aðeins að læra einfalda kynningu, til dæmis stutta kynningu á forsíðuefninu. Margir húsráðandur þiggja gjarnan blöð af krökkunum og fara oft lofsamlegum orðum um einlægni þeirra og góða hegðun. Með ofurlítilli hjálp geta börnin gert þessu starfi góð skil og lagt þannig sitt af mörkum til að útbreiða boðskapinn um Guðsríki. Þegar þau eldast þurfa foreldrarnir auðvitað að hjálpa þeim smám saman að verða leiknari í að bera vitni.

3 Manúel byrjaði að prédika hús úr húsi þegar hann var þriggja ára gamall og fékk hjálp frá foreldrum sínum til að leggja stutta kynningu á minnið. Hann prédikar af kostgæfni með þeim og dreifir mörgum blöðum, bæklingum og smáritum. Hann ber líka óformlega vitni. Eitt sinn fóru foreldrar hans með hann í skemmtigarð. Þar tók hann frumkvæðið og skildi eftir smárit hjá fólki sem hann hitti. Þótt Manúel sé enn ungur að árum er eldmóður hans í boðunarstarfinu foreldrunum og öllum söfnuðinum mikil hvatning. — Orðskv. 22:6.

4 Allir laugardagar á Almanaki votta Jehóva 2000 eru blaðastarfsdagar. Foreldrar, glæðið áhuga ykkar á blaðastarfsdeginum og hjálpið börnunum að eiga eins reglulegan þátt í þessu sérréttindastarfi og hægt er.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila