Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 10. janúar
Söngur 107
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar.
15 mín: „Nafn Jehóva gert kunnugt um alla jörðina.“ Farið yfir greinina með spurningum og svörum. Takið með efni um óformlegan vitnisburð í Organized to Accomplish Our Ministry (Þjónustubókinni), bls. 93-4.
20 mín: Að taka ákvörðun um læknismeðferð án blóðgjafar. (Post. 15:28, 29) Ræða hæfs öldungs um yfirlýsinguna um læknismeðferð byggð á leiðbeiningum Félagsins um réttindi sjúklinga og um frágang á skriflegum yfirlýsingum vegna læknismeðferðar. Að samkomu lokinni fá allir skírðir vottar nýtt kort og þeir sem eiga óskírð börn undir lögaldri fá „Nafnskírteini“ fyrir hvert þeirra. Kortin á ekki að útfylla í kvöld. Þau ætti að fylla vandlega út heima en EKKI undirrita. Undirritun, vottun og dagsetning allra korta fer fram að loknu næsta safnaðarbóknámi undir umsjón bóknámsstjórans. Áður en skrifað er undir skal ganga úr skugga um að kortin séu alveg útfyllt. Vitundarvottarnir eiga að sjá korthafann rita nafn sitt á kortið. Bóknámsstjórar eiga að ganga úr skugga um að allir sem tilheyra bóknámshópnum fái nauðsynlega aðstoð við að útfylla kortin. Með því að aðlaga orðalag yfirlýsingarinnar að eigin aðstæðum og sannfæringu geta óskírðir boðberar útbúið eigið kort fyrir sig og börn sín. Útskýrið við hvers konar aðstæður skuli nota „Yfirlýsingu um læknismeðferð til lækna, hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstarfsmanna“ og hvaða gildi hún hefur. Skírðir boðberar geta fengið eintak af þessari yfirlýsingu hjá ritaranum þegar þeir þurfa á henni að halda.
Söngur 155 og lokabæn.
Vikan sem hefst 17. janúar
Söngur 12
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan.
15 mín: Staðbundnar þarfir.
20 mín: „Notaðu smáritin til að koma af stað samræðum.“ Fjallið um fjögur smárit sem eru mikið notuð á starfssvæðinu. Varpið fram spurningu sem hvert þeirra svarar. Bjóðið áheyrendum að koma með tillögur um hvernig nota megi spurninguna til að hefja samræður og koma hugsanlega af stað biblíunámskeiði. Sýnið hvernig megi gera þetta með tvö smáritanna.
Söngur 57 og lokabæn.
Vikan sem hefst 24. janúar
Söngur 110
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og starfsfrásagnir.
15 mín: „Hugleiddu orð Jehóva á hverjum degi!“ Ræða með þátttöku áheyrenda. Hvetjið alla til að nota vel Rannsökum daglega ritningarnar — 2000. Takið með efni úr formálanum á bls. 3-4. Bjóðið áheyrendum að segja frá því hvað þeir leggi á sig til að lesa dagstextann á hverjum degi.
20 mín: „Verður þú viðstaddur?“ Ræða og frásagnir í umsjá öldungs. Fjöldasamkomur hafa átt drjúgan þátt í að styrkja fólk Guðs, allt frá biblíutímanum fram á þennan dag. (Sjá bókina Jehovah’s Witnesses — Proclaimers of God’s Kingdom, bls. 254, gr. 1-3 (sjá kennsluræðudrög nr. 21), og Insight on the Scriptures, 1. bindi, bls. 821, gr. 5.) Hvetjið alla til að byrja að gera ráðstafanir til að vera viðstaddir alla þrjá daga næsta landsmóts. Bjóðið áheyrendum að segja frá þeirri andlegu umbun sem þeir hafa hlotið fyrir að leggja sig fram við að sækja mótin.
Söngur 157 og lokabæn.
Vikan sem hefst 31. janúar
Söngur 16
10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Minnið alla á að skila inn starfsskýrslum fyrir janúar. Minnist á ritatilboðið í febrúar, Biblíusögubókina og Sköpunarbókina. Komið með tillögur að kynningarorðum.
15 mín: Að hjálpa fólki að bera kennsl á hina sönnu trú. Hæfur safnaðarþjónn og tveir til þrír boðberar ræða saman um fólk sem hrífst af vottum Jehóva en skilur ekki nógu vel hvaða munur er á þeim og öðrum trúarbrögðum. Farið yfir liðina tíu á bls. 12 í Vaknið! október-desember 1995. Útskýrið hvernig þessi vitneskja getur hjálpað einlægum mönnum bæði að greina milli sannrar tilbeiðslu og falskrar og koma auga á að þeir þurfi að fá fræðslu hjá fólki Guðs og eiga samneyti við það.
20 mín: Vertu góður sjúklingur. Sýnikennsla með þátttöku áheyrenda. Minnispunktar verða sendir. Efnið er rætt við boðbera sem á að leggjast inn á spítala. Auk þess að fara yfir efnið með boðberanum æfir öldungurinn boðberann í að svara nokkrum spurningum sem hægt er að ímynda sér að læknirinn spyrji. Áheyrendur eru beðnir að tjá sig um þann þátt með því að spyrja til dæmis: Er þetta gott svar?
Söngur 60 og lokabæn.
Vikan sem hefst 7. febrúar
Söngur 113
8 mín: Staðbundnar tilkynningar.
17 mín: Kynning bókarinnar Spádómur Daníelsbókar. Ræða með þátttöku áheyrenda. Bendið á það sem prýðir nýju bókina: spennandi kaflaheiti, áhrifamiklar myndir, spurningakassar í lok hvers kafla sem brjóta efnið til mergjar, landakort og skýringatöflur. Farið yfir hvetjandi útskýringu bókarinnar á því hvernig Míkael ‚gengur fram‘ og lætur til sín taka (bls. 288-90). Ræðið um mikilvægi þess að vera þolgóðir kennarar orðs Guðs (bls. 311-12). Við ættum öll að lesa bókina vandlega og hvetja áhugasama til þess líka.
20 mín: Þau völdu viturlega. Ræða byggð á Varðturninum 1. desember 1997, bls. 14-16, gr. 3-16. Greinið frá ummælum brautryðjenda og bendið á hvers vegna þeim finnst þeir ekki hafa getað notað líf sitt á umbunarríkari og gagnlegri hátt. Hvetjið alla áheyrendur til að íhuga hvort þeir hafi tök á að gerast brautryðjendur.
Söngur 182 og lokabæn.