Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 1.00 bls. 1
  • Verður þú viðstaddur?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Verður þú viðstaddur?
  • Ríkisþjónusta okkar – 2000
  • Svipað efni
  • Hafðu fullt gagn af landsmótinu 1993, „Kennsla Guðs“
    Ríkisþjónusta okkar – 1993
  • Landsmótið 1998, „Lífsvegur Guðs“
    Ríkisþjónusta okkar – 1998
  • Verður þú viðstaddur?
    Ríkisþjónusta okkar – 1999
  • Kanntu að meta það sem heilagt er?
    Ríkisþjónusta okkar – 2000
Sjá meira
Ríkisþjónusta okkar – 2000
km 1.00 bls. 1

Verður þú viðstaddur?

1 Gamalreyndur vottur sagði eitt sinn: „Missi maður af fyrsta mótsdeginum hefur maður misst af allt of miklu!“ Af hverju var honum þannig innanbrjósts? Af því að fyrsti mótsdagurinn er upphafið að andlegri stórveislu sem skipulag Jehóva hefur útbúið handa okkur. (Jes. 25:6) Með því að vera viðstödd alveg frá upphafi sýnum við að okkur er eins innanbrjósts og sálmaritaranum: „Ég varð glaður, er menn sögðu við mig: ‚Göngum í hús [Jehóva].‘“ — Sálm. 122:1.

2 Á landsmótinu „Spádómsorð Guðs“ á síðasta ári var aðsóknin á föstudeginum hins vegar töluvert minni en á laugardeginum og sunnudeginum. Það þýðir að töluverður hópur bræðra missti af dagskrárliðum með mikilvægum upplýsingum um spádómsorðið. Þeir fóru einnig á mis við ánægjulega samveru við trúsystkini sín.

3 Láttu ekki vinnuna hindra þig: Hugsanlegt er að sumir hafi ekki komið á föstudeginum af því að þeir óttuðust um vinnu sína. Margir vottar hafa hins vegar komist að raun um að vinnuveitendur þeirra eru samvinnuþýðir í þessum efnum sé óskað eftir fríi með góðum fyrirvara. Vinnuveitandi nokkur hreifst svo af því hvað brautryðjandasystir var staðráðin í að sækja allar safnaðarsamkomur og öll mót að hann kom og var viðstaddur heilan mótsdag!

4 Þú skalt ekki gera ráð fyrir að vinnuveitandinn sé ófús að gefa þér frí, eða halda að það skipti engu máli þótt þú missir af einum mótsdegi. Búðu þig undir að ræða við vinnuveitanda þinn af innilegri sannfæringu og sýna honum háttvíslega með tilvísun í Biblíuna hvers vegna það sé þýðingarmikill hluti tilbeiðslu þinnar að sækja mótið. (Hebr. 10:24, 25) Reiddu þig síðan fullkomlega á loforð Jehóva um að sjá fyrir efnislegum þörfum þínum ef þú lætur andlegu þarfirnar ganga fyrir í lífinu. — Matt. 6:33; Hebr. 13:5, 6.

5 Þyngst vegur að kunna að meta „þá hluti rétt, sem máli skipta.“ (Fil. 1:10, 11; Sálm. 27:4) Það fær okkur til að gera það sem þarf til að hafa fullt gagn af þessari mikilvægu ráðstöfun Jehóva. Byrjaðu strax að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að þú verðir viðstaddur alla mótsdagana þrjá!

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila