Þjónustusamkomur fyrir júní
Vikan sem hefst 1. júní
Söngur 23
8 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Guðveldisfréttir.
15 mín: ‚Hæf til sérhvers góðs verks.‘ Spurningar og svör. Takið með efni úr Varðturninum á ensku 15. febrúar 1989, bls. 22-4.
22 mín: „Notum smárit til að kynna bókina Mesta mikilmenni.“ Öldungur ræðir við hóp reyndra boðbera um kynningarorðin sem stungið er upp á. Sviðsetjið eina eða tvær stuttar kynningar.
Söngur 47 og lokabæn.
Vikan sem hefst 8. júní
Söngur 92
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan.
15 mín: „Annast um eigur húsbóndans.“ Ræða öldungs um efni viðaukans.
20 mín: „Okkar er allra þörf til að ljúka verkinu.“ Spurningar og svör. Útskýrið af hverju öldungar reiða sig á marga fúsa sjálfboðaliða til að nauðsynleg störf séu unnin. Ræðið staðbundnar þarfir svo sem ræstingu og viðhald ríkissalar, hjálp til handa sjúkum og öldruðum og yfirferð starfssvæðis. Bjóðið öldungum að segja frá hve mikils þeir meta þá fúsu aðstoð sem margir veita. Leggið áherslu á hve miklu skipti að enginn láti sitt eftir liggja.
Söngur 34 og lokabæn.
Vikan sem hefst 15. júní
Söngur 8
10 mín: Staðbundnar tilkynningar.
20 mín: „Kostið kapps.“ Ræða byggð á Varðturninum 1. júní 1986, bls. 20-4. Fjallið um mikilvægi reglulegs brautryðjandastarfs og hvetjið boðbera til að sækja um fyrir 1. september.
15 mín: „Að bera vitni með góðri hegðun.“ Spurningar og svör. Eigið viðtal við nokkra fyrirmyndarunglinga. Þeir segja frá því hvernig kristin hegðun þeirra hefur vakið eftirtekt og hrifningu annarra. Segið eina eða tvær frásögur úr Varðturninum á ensku 1. janúar 1995, bls. 24-5.
Söngur 60 og lokabæn.
Vikan sem hefst 22. júní
Söngur 13
10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Skýrið frá því hvenær lokið var við að endurskoða reikningshald safnaðarins.
15 mín: Hvernig koma má af stað blaðaleið. Skýrið frá hvað þurfi til: skrá niður alla sem þiggja blöð, fara aftur innan mánaðar og brydda upp á fersku umræðuefni úr nýjustu blöðunum til að halda áhuganum við. Hvetjið boðbera til að hafa vinnufélaga, nágranna, afgreiðslufólk, bensínafgreiðslumenn og svo framvegis á blaðaleið sinni. Bjóðið einum eða tveim boðberum að segja hvetjandi reynslufrásögu um blaðaleiðir.
20 mín: Brautryðjendur hjálpa öðrum. Ræða starfshirðis þar sem hann fjallar um hið nýja fyrirkomulag að brautryðjendur veiti öðrum persónulega aðstoð. Útskýrið hvaða hjálparáætlunum hefur áður verið hleypt af stokkunum. (jv 100; km 8.79 1, 2 (kmE 7.79 1, 3)) Það þarf að þjálfa þá rösklegu milljón nýrra lærisveina sem hefur látið skírast síðustu þrjú árin. Áætlunin „Brautryðjendur hjálpa öðrum“ nýtir reynslu og þjálfun reglulegra brautryðjenda og sérbrautryðjenda sem sótt hafa Brautryðjandaskólann. Takmarkið er að hver brautryðjandi hjálpi tveim boðberum á ári að verða skilvirkari í boðunarstarfinu og auka hlutdeild sína í því. Þeir sem hjálpina fá þurfa ekki að vera kvíðnir; áherslan er lögð á að veita vingjarnlega og kærleiksríka uppörvun. Þessi nýja áætlun á eftir að gera hundruð þúsunda boðbera að skilvirkari þjónum orðsins.
Söngur 91 og lokabæn.
Vikan sem hefst 29. júní
Söngur 49
10 mín: Tilkynningar. Minnið alla á að skila inn starfsskýrslum fyrir júní. Fjallið um ritatilboðið fyrir júlí.
15 mín: Staðbundnar þarfir eða Hef ég hægt á mér? Ræða öldungs byggð á Varðturninum 1. febrúar 1988, bls. 16-17, greinum 14-16. Hvetjið þá sem hafa verið virkir boðberar um nokkurra ára skeið til að íhuga gæði og umfang heilagrar þjónustu sinnar.
20 mín: Við getum öll borið óformlega vitni. Ræða með þátttöku áheyrenda byggð á Varðturninum 1. maí 1988, bls. 28-32. Bendið á hvernig þeir sem eru önnum kafnir vegna veraldlegrar vinnu, fjölskylduábyrgðar eða annarra skyldna geta fundið mörg tækifæri á hverjum degi til að segja öðrum frá fagnaðarerindinu. Takið með nokkrar frásagnir af starfssvæði safnaðarins.
Söngur 97 og lokabæn.