Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 6.98 bls. 1
  • Okkar er allra þörf til að ljúka verkinu

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Okkar er allra þörf til að ljúka verkinu
  • Ríkisþjónusta okkar – 1998
  • Svipað efni
  • Hvernig geturðu fullnað þjónustu þína?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2019
  • „Farið ... og gerið allar þjóðir að lærisveinum“
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2016
  • „Berið mikinn ávöxt“
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2003
  • Við bjóðum okkur fúslega fram til sérhvers góðs verks
    Ríkisþjónusta okkar – 1995
Sjá meira
Ríkisþjónusta okkar – 1998
km 6.98 bls. 1

Okkar er allra þörf til að ljúka verkinu

1 Sérhver lærisveinn Jesú Krists þarf að skilja að öll viðleitni hans til að styðja og taka þátt í prédikunarstarfi Guðsríkis er afar mikils virði. Jesús gerði sér ljóst að lærisveinar sínir gæfu af sér mismikinn ávöxt Guðsríkis. (Matt. 13:23) Enda þótt stór hluti prédikunarstarfsins sé unninn af fjölmörgum iðjusömum brautryðjendum, eiga allir hrós skilið sem halda kappsamlega áfram að lofa Guð með því að bera eins mikinn ávöxt og þeir geta. — Jóh. 15:8.

2 Samstillt átak kemur mörgu til leiðar: Jesús spáði því að sameiginlega kæmu allir lærisveinar hans meiru til leiðar en hann. (Jóh. 14:12) Hvort heldur persónulegar aðstæður takmarka hvað við getum gert eða gera okkur fært að verja miklum tíma til boðunarstarfs Guðsríkis, þá er okkar allra þörf til að ljúka verkinu. Páll segir: „Allur líkaminn er . . . samanfeldur og samantengdur og sérhver taug innir sína þjónustu af hendi með starfskrafti er samvarar því, sem hverjum einstökum er gefinn, [og] verður það til þess, að líkaminn vex.“ — Ef. 4:16, Biblían 1912.

3 Sumum finnst þeir kannski leggja ósköp lítið af mörkum. En það sem skiptir máli í augum Jehóva er að þjónusta okkar sé heilshugar. Allt sem við gerum fyrir hann er dýrmætt og mikils metið. — Samanber Lúkas 21:1-4.

4 Höldum áfram að styðja starfið: Við höfum öll þau sérréttindi að leggja eitthvað efnislega af mörkum til alþjóðastarfsins. Sumir hafa jafnframt tök á að aðstoða við framkvæmdir til stuðnings boðunarstarfi Guðsríkis. Hver og einn getur lagt sig fram um að koma með vel undirbúin svör á samkomum og taka þátt í Guðveldiskólanum. Með því að nota tækifærin, sem gefast, til að hvetja og uppörva aðra, leggjum við fram verðmætan skerf til andlegrar velferðar safnaðarins og það gerir hann færari um að ljúka því verki sem honum er falið.

5 Já, okkar er allra þörf til að ljúka verkinu. Engum ætti að finnast að hans sé ekki þörf. Samstillt átak okkar í þjónustu Jehóva, hvort heldur það er mikið eða lítið, auðkennir okkur sem einu sönnu tilbiðjendur hans. (Mal. 3:18) Sérhvert okkar getur átt marktækan þátt í að heiðra Jehóva og hjálpa öðrum að kynnast honum og þjóna.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila