Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 4.95 bls. 2
  • Þjónustusamkomur fyrir apríl

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þjónustusamkomur fyrir apríl
  • Ríkisþjónusta okkar – 1995
  • Millifyrirsagnir
  • Vikan sem hefst 3. apríl
  • Vikan sem hefst 10. apríl
  • Vikan sem hefst 17. apríl
  • Vikan sem hefst 24. apríl
Ríkisþjónusta okkar – 1995
km 4.95 bls. 2

Þjónustusamkomur fyrir apríl

Vikan sem hefst 3. apríl

Söngur 82

10 min: Staðbundnar tilkynningar og tilkynningar frá Ríkisþjónustu okkar. Farið yfir „Hafið allt til reiðu fyrir minningarhátíðina.“

15 mín: „Þakklát fyrir það sem við höfum.“ Spurningar og svör. Komið, eftir því sem tíminn leyfir, með athugasemdir byggðar á Varðturninum, 1. febrúar 1991, blaðsíðu 17-18, grein 15-20.

20 mín: „Varðturninn og Vaknið“ — blöð fyrir okkar áríðandi tíma!“ Ræðið efnið við áheyrendur. Segið frá dæmum um hvernig fólk hefur lýst ánægju sinni með blöðin. (gE91 22.7. bls. 9) Látið tvo boðbera sýna hvernig útbúa megi kynningarorð og nota tillögurnar sem gefnar eru. Síðan skal hvor þeirra æfa sín kynningarorð á hinum.

Söngur 43 og lokabæn.

Vikan sem hefst 10. apríl

Söngur 110

10 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan. Guðveldisfréttir. Minnið alla á nauðsyn þess að hjálpa áhugasömu fólki að komast til minningarhátíðarinnar. Hvetjið til boðunarstarfs næstu helgi.

15 mín: „Viðhöldum einingu undir Guðsríki.“ Ræðið efnið við áheyrendur. Undirstrikið nauðsyn þess að sýna ávexti andans í samskiptum okkar.

20 mín: „Síauðugir í verki Drottins.“ Spurningar og svör í umsjón starfshirðis. Ræðið um hvaða sérstakar ráðstafanir söfnuðurinn hefur gert til að dreifa Fréttum um Guðsríki og komast yfir allt safnaðarsvæðið. Útskýrið hvað ætti að gera til að hjálpa nýjum að taka þátt í starfinu í fyrsta sinn. (Sjá Ríkisþjónustu okkar fyrir mars 1995, blaðsíðu 1.)

Söngur 83 og lokabæn.

Vikan sem hefst 17. apríl

Söngur 80

13 mín: Staðbundnar tilkynningar. Nefnið uppörvandi atriði varðandi nýafstaðna minningarhátíð og hvað hægt sé að gera til að halda áfram að hjálpa þeim sem nýlega hafa fengið áhuga og komu til hátíðarinnar. Hvetjið alla til að koma og hlusta á sérræðuna 23. apríl og leggja sig einnig fram við að hjálpa þeim nýju sem komu á minningarhátíðina að koma aftur í ríkissalinn og hlusta á sérræðuna. Rifjið upp ráðstafanir til dreifingar Frétta um Guðsríki.

15 mín: „Sérðu þörf?“ Spurningar og svör. Nefnið stuttlega markmið sem öldungar eru núna að reyna að ná í hirðastarfi sínu. Útskýrið hvað einstaklingar geta gert til að hjálpa.

17 mín: „Leitum að námsfúsu fólki.“ Ræðið um mikilvægi þess að fara í endurheimsóknir. Hvetjið til notkunar Biblíunnar. Notið eina eða tvær af tillögunum í stuttum sýnikennslum.

Söngur 6 og lokabæn.

Vikan sem hefst 24. apríl

Söngur 16

15 mín: Staðbundnar tilkynningar. Skoðið hvernig gengið hefur að dreifa Fréttum um Guðsríki á svæði safnaðarins. Bjóðið boðberum að segja starfsfrásagnir af þessari dreifingu. Komið með tillögu að blaðakynningu. Tilkynnið um ráðstafanir til kvöldstarfs ef einhverjar eru.

12 mín: Spurningakassinn. Spurningar og svör.

18 mín: Hafið fasta reglu á fjölskyldunámi ykkar. Hjón eru áhyggjufull af því að börnin þeirra taka ekki andlegum framförum. Eiginmaðurinn viðurkennir að hann hafi sýnt vanrækslu hvað það snertir að stjórna fjölskyldunáminu; stundum líði margar vikur án nokkurrar fræðslu innan fjölskyldunnar. Þau skoða saman áminninguna og leiðbeiningarnar sem gefnar eru í Handbók Guðveldisskólans, blaðsíðu 37-8, grein 12-14. Þau samþykkja bæði að láta fjölskyldunámið hafa forgang í hverri viku, leyfa ekki öðru málum að ýta því til hliðar.

Söngur 107 og lokabæn.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila