Viðhöldum einingu undir Guðsríki
1 Guðsríki er raunveruleg stjórn sem fer með vald og yfirráð. Það var stefið í prédikun Jesú. (Matt. 4:17) Þungamiðjan í þjónustu Jesú var að kenna fólki og bera vitni um þau sannindi sem tengjast Guðsríki. Hann kenndi okkur að biðja um komu Guðsríkis og halda áfram að leita þess fyrst og fremst. (Matt. 6:9, 10, 33) Ef við höldum okkur fast við Jehóva og skipulag hans, sinnum til fulls prédikunarverkefni okkar og höldum okkur aðskildum frá heiminum gerir það okkur kleift að viðhalda einingu okkar undir Guðsríki. Í orði og verkum sýnum við að við styðjum Guðsríki. — Jóh. 18:37.
2 Síðan árið 1914 hefur Guðsríki orðið raunveruleiki fyrir milljónir þegna þess. Einingin, sem þessir þegnar Guðsríkis sýna, sker sig úr sundrunginni í heiminum. Við verðum að láta Guðsríki vera raunveruleika í lífi okkar eigi það að vera sameiningarafl. Hvað gerir það að raunveruleika fyrir okkur?
3 Eins og önnur ríki á Guðsríki sér lög. Þó er sá munur á að lög Guðsríkis er að finna í Biblíunni. Reglulegur lestur í orði Guðs minnir okkur á hvers krafist er af okkur sem þegnum Guðsríkis. Einkanám í ritum okkar og leiðbeiningar frá ‚hinum trúa og hyggna þjóni‘ hjálpa okkur til að beita lögum Guðs frá degi til dags. (Matt. 24:45) Þegar við persónulega beitum þeim þannig verður Guðsríki æ raunverulegra fyrir okkur og það dregur okkur nær hvert öðru í alheimsbræðrafélaginu, gerir okkur að sameinaðri fjölskyldu tilbiðjenda undir stjórn Jesú.
4 Prédikun Guðsríkis skapar einingu: Verkefni okkar er að prédika fagnaðarerindið um Guðsríki „allt til endimarka jarðarinnar.“ (Post. 1:8) Það sameinar okkur að prédika „allir saman“ er við leitumst við að ‚vegsama‘ Jehóva. (Rómv. 15:5, 6) Þegar við tökum af kostgæfni þátt í þessu verkefni með samstarfsmönnum okkar um víða veröld styrkir það trú okkar og leyfir anda Jehóva að nota okkur til að framkvæma vilja hans. Þegar við erum „síauðugir í verki Drottins“ verðum við „staðfastir, óbifanlegir.“ — 1. Kor. 15:58.
5 Í mörgum löndum reynir Satan að spilla einingu okkar með því að trufla prédikunarstarf okkar. Hann notar allt sem hann hefur tiltækt til að sá sundurlyndi og skapa misskilning, reyna að valda misklíð og erjum. (Orðskv. 6:19; Gal. 5:19-21, 26) Hann vill að við blöndum okkur í þrætumál heimsins og tökum jafnvel afstöðu í pólitískum eða félagslegum ágreiningsmálum. (Jak. 3:14-16) Ritningin hvetur okkur til að standa gegn áhrifum hans; að öðrum kosti verðum við honum að bráð. (1. Pét. 5:8, 9) Við megum ekki leyfa raunveruleika vonarinnar um Guðsríki að fjara út úr hjörtum okkar og huga.
6 Til að viðhalda einingu okkar þurfum við heilbrigðan huga og visku að ofan. Þegar erfiðleikar koma upp, sér í lagi ef bræður okkar eiga í hlut, verðum við að sýna ávexti andans til að varðveita friðinn. Veraldlegar tilhneigingar, eins og hroki, öfund og eigingirni, sundra og þær verður að bæla niður. (Ef. 4:1-3; Kól. 3:5-10, 12-14) Við verðum að fylla huga okkar með jákvæðum, uppbyggjandi hugsunum. Guðsríki er raunveruleiki í lífi okkar! En við verðum að sýna árvekni til þess að svo verði áfram. — Ef. 6:11, 13.
7 Raunveruleiki hinnar dásamlegu guðsríkisvonar okkar sameinar okkur í samstöðuanda sem aldrei líður undir lok. — Sálm. 133:1.