Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • wcg bls. 4–7
  • Þú getur byggt upp hugrekki

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þú getur byggt upp hugrekki
  • Verum hugrökk og treystum Jehóva
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Þú getur verið hugrakkur eins og Jesús
  • Hvernig getur Biblían hjálpað okkur að byggja upp hugrekki?
  • ,Vertu hughraustur – nú skaltu hefjast handa‘
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2017
  • Verið hugrakkir!
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1994
  • „Sjáðu, ljónið af ættkvísl Júda“
    „Komið og fylgið mér“
  • Verum djörf og hughraust
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2012
Sjá meira
Verum hugrökk og treystum Jehóva
wcg bls. 4–7

INNGANGSORÐ

Þú getur byggt upp hugrekki

Prentuð útgáfa
Prentuð útgáfa

1–3. Hvers vegna lýsa orð Jesú: „Standið upp, förum,“ miklu hugrekki?

„STANDIÐ upp, förum.“ Sennilega hafa engin orð í sögu mannkyns kallað á meira hugrekki. Þú veltir kannski fyrir þér hvernig þessi orð vitni um hugrekki. Við fáum svar við því þegar við skoðum hver sagði þetta og í hvaða samhengi. – Matt. 26:46.

Jesús er í Getsemanegarðinum og bíður þess að vera handtekinn.

„Standið upp, förum.“ – Matt. 26:46

2 Það var Jesús Kristur sem sagði þetta við trúa fylgjendur sína. Hann hafði sagt eitthvað svipað áður. (Jóh. 14:31) En í þetta sinn voru aðstæður allt aðrar. Þetta var seint um kvöld og tunglskinið lýsti upp garðinn sem lá í fjallshlíð rétt utan við Jerúsalem. Jesús vissi að vopnaður hópur manna var á leiðinni og hann vissi hvað til stóð. Hann átti í vændum erfiðustu prófraun sem nokkur maður hefur gengið í gegnum. Og hann vissi að hann þyrfti að standast hana einn síns liðs.

3 Jesús reyndi ekki að flýja hættuna sem hann stóð frammi fyrir. Hann hefði getað beðið Jehóva að senda máttuga engla sér til verndar en gerði það ekki. (Matt. 26:53) Hann sagði einfaldlega: „Standið upp, förum.“ Síðan hélt hann beinustu leið út í aðstæður sem hann vissi að myndu kalla yfir hann pyntingar og dauða. Af hverju var hann tilbúinn til að þjást og deyja? Af því að hann elskaði föður sinn og fylgjendur sína.

4, 5. Hvers konar hugrekki sýndi Jesús og hvers vegna þurfum við að vera hugrökk eins og hann?

4 Það leikur enginn vafi á að Jesús Kristur er hugrakkasti maður sem lifað hefur. Ert þú fylgjandi hans? Þá býrð þú líka yfir hugrekki. Sannkristnir menn verða að gera það. Við lifum á erfiðum og hættulegum tímum þannig að við þurfum meira en nokkru sinni fyrr að vera hugrökk.

5 Hvernig getum við skilgreint það hugrekki sem Jesús bjó yfir? Ósvikið hugrekki birtist ekki í því að gera lítið úr hættum, taka óþarfa áhættu eða ana út í varasamar aðstæður. Það á ekkert skylt við fífldirfsku eða glannaskap eins og hjá þeim sem hafa ánægju af ofbeldi. (Sálm. 11:5) Hugrekki kristins manns er innri styrkur sem gerir honum kleift að gera það sem er rétt í augum Guðs, hversu erfitt eða ógnvekjandi sem það kann að vera.

Þú getur verið hugrakkur eins og Jesús

6. Hvernig getur það sem Jesús sagði við postulana hughreyst okkur ef okkur finnst við vera kjarklítil?

6 Þú veltir kannski fyrir þér hvort þú getir verið hugrakkur þegar á reynir eins og Jesús var. Ef svo er skaltu minna þig á að Jesús er sanngjarn, rétt eins og faðir hans. Hann ætlast aldrei til meira af okkur en við ráðum við. (Sálm. 103:14; Jóh. 14:9) Kvöldið sem Jesús var með postulunum í Getsemanegarðinum bað hann þá að vaka með sér en þeir brugðust honum. Hann sagði samt hlýlega við þá: „Andinn er ákafur en holdið er veikt.“ (Matt. 26:41) Hann gerði sér grein fyrir veikleikum þeirra og hann sýnir þér líka skilning.

7, 8. Hvernig hefur Jesús sýnt að hann hafi trú á fylgjendum sínum?

7 Jesús lét líka í ljós að hann hefði trú á fylgjendum sínum. Reyndu að ímynda þér hvernig þeim leið þegar hann sagði: „Verið hugrakkir. Ég hef sigrað heiminn.“ (Jóh. 16:33) Hann vissi að þeir gátu fetað í fótspor hans – og þeir gerðu það. Jesús hvatti fólk oft til að sýna hugrekki. Hann fullvissaði lamaðan mann um að syndir hans væru fyrirgefnar og sagði: „Hertu upp hugann.“ (Matt. 9:2) Hann tók svipað til orða eftir að hafa læknað konu af alvarlegum sjúkdómi. (Matt. 9:22) Hann sagði lærisveinum sínum að vera rólegir þegar þeir sáu hann koma gangandi á vatni í óveðri og voru óttaslegnir. (Matt. 14:27) Jesús birtist líka Páli postula og hvatti hann til að herða upp hugann eftir að við lá að hópur reiðra dómara sliti hann í sundur. – Post. 23:9–11.

8 Hugrakkur konungur okkar segir í vissum skilningi það sama við þig. Hann vill að þú sért hugrakkur. Og hann veit að þú getur það. Jehóva faðir hans hefur gefið þér einmitt það sem þú þarft til þess.

Hvernig getur Biblían hjálpað okkur að byggja upp hugrekki?

9. Hvernig getur Biblían hvatt okkur til að vera hugrökk?

9 Jehóva lét skrásetja ótal frásögur í orð sitt sem geta hjálpað okkur að byggja upp hugrekki. Þar er að finna sannar sögur af körlum og konum, ungum sem öldnum, af öllum stigum samfélagsins. Allt var þetta fólk „eins og við“, rétt eins og sagt er um Elía spámann. (Jak. 5:17) Þetta var ófullkomið fólk með sína veikleika, takmörk og galla eins og við. Og það þurfti að yfirstíga alls konar erfiðleika og jafnvel takast á við hættulegar aðstæður. En það komst í gegnum þær eins og Jesús. Það tók í sig kjark og lét okkur eftir skínandi dæmi sem hvetja okkur áfram.

10, 11. Hvaða gagn geturðu haft af þessari bók og hvernig má nota hana? (Sjá einnig rammagreinina „Svona geturðu notað þessa bók við sjálfsnám og fjölskyldunám“.)

10 Þessi bók er samin til að hjálpa þér að byggja upp hugrekki. Hún skiptist í 54 kafla sem draga fram hvernig Jehóva gaf ófullkomnu fólki eins og þér þann kjark sem það þurfti. Lestu frásögurnar, kafaðu síðan dýpra og kynntu þér bakgrunn þeirra karla og kvenna sem þær fjalla um. Þannig geturðu kynnst sögupersónunum nánar.

11 Það er von okkar að þessar frásögur veiti þér meira hugrekki svo að þú getir haldið út þá erfiðu ‚síðustu daga‘ sem nú standa yfir. (2. Tím. 3:1) Minnum okkur dag hvern á loforð Jehóva: „Ég mun aldrei snúa baki við þér og aldrei yfirgefa þig.“ Eins og Páll bendir á getur þetta loforð hjálpað okkur að ‚vera hugrökk og segja: „Jehóva hjálpar mér, ég óttast ekki neitt.“‘ – Hebr. 13:5, 6.

Svona geturðu notað þessa bók við sjálfsnám og fjölskyldunám

  • Lestu kaflann (1), lestu frásögn Biblíunnar (2) og hugleiddu spurninguna undir „Til umræðu“ (3).

  • Skoðaðu myndirnar vel (4). Hvað segja þær um fólkið, áskoranir þess og hugrekkið sem það sýndi?

    Mynd af bls. 28 og 29 sem sýnir hvernig kaflar bókarinnar eru byggðir upp.
  • Kafaðu dýpra (5) í frásöguna með því að lesa ítarefnið.

  • Hugleiddu og heimfærðu (6). Veltu fyrir þér hvað þú getur lært af frásögunni, hvernig þú getur nýtt þér það sjálfur og notað það til að hjálpa öðrum.

  • Íhugaðu (7) hvað þú lærir af frásögunni um Jehóva, fyrirætlun hans og framtíðina.

  • Skoðaðu meira (8). Lestu greinar og horfðu á myndbönd sem tengjast frásögunni eða þeim lærdómi sem draga má af henni.

    Mynd af bls. 30 og 31 sem sýnir hvernig kaflar bókarinnar eru byggðir upp.

Ef þig langar til að læra enn meira geturðu farið inn á jw.org og leitað að fleiri greinum, myndböndum eða ræðum sem tengjast persónunni sem fjallað er um.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila