Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • wcg bls. 2–3
  • Bréf frá stjórnandi ráði

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Bréf frá stjórnandi ráði
  • Verum hugrökk og treystum Jehóva
  • Svipað efni
  • ,Vertu hughraustur – nú skaltu hefjast handa‘
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2017
  • Verið hugrakkir!
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1994
  • ,Vertu hughraustur og öruggur!‘
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2003
  • Vertu hugrakkur – Jehóva er með þér
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2013
Sjá meira
Verum hugrökk og treystum Jehóva
wcg bls. 2–3

Bréf frá stjórnandi ráði

Prentuð útgáfa

Kæru bræður og systur.

Jesús lét flytja söfnuðinum í Smyrnu þessi boð: „Óttastu ekki þær þjáningar sem eru fram undan.“ (Opinb. 2:10) Hvatning hans til að láta ekki bugast af ótta var einnig ætluð okkur sem erum uppi núna á ‚Drottins degi‘. (Opinb. 1:10) Við lifum svo sannarlega á ‚hættulegum og erfiðum tímum‘. Það gleður okkur að sjá þjóna Guðs um allan heim vera honum trúir í alls konar prófraunum, jafnvel þegar það kostar mikið hugrekki. – 2. Tím. 3:1–5.

Maður á biblíutímanum á gangi um víðáttumikla eyðimörk.

Hvað getum við gert til að vera staðföst og láta ekki ótta ná tökum á okkur? (Hebr. 10:39) Það getur reynt á því að við verðum stundum fyrir andstöðu og jafnvel ofsóknum. En hvort sem við erum feimin eða kjarkmikil að eðlisfari getum við alltaf valið að gera það sem er rétt og vera Jehóva trú. Hvernig förum við að því?

Þú getur byggt upp kjark með því að lesa í innblásnu orði Guðs. Þar er að finna ótal dæmi um hugrakka menn og konur. Þessi bók var skrifuð til að hjálpa okkur að rýna í frásögurnar af þeim og sjá hvað við getum lært. Þegar þú lest þær skaltu biðja Jehóva um hjálp til að koma auga á hvernig þú getur nýtt þér það bæði núna og í framtíðinni. Veltu fyrir þér hvernig Jehóva getur hjálpað þér að vera hugrakkur. Hugleiddu líka hvernig fordæmi þessara karla og kvenna getur verið þér hvatning til að gera eftirfarandi:

Að laga þig að vilja Jehóva. (Jak. 3:17) Jehóva hafnaði Sál og valdi hinn unga Davíð sem tilvonandi konung í stað Jónatans. Jónatan sýndi Davíð samt hollustu og studdi ákvörðun Jehóva heilshugar.

Að hvika ekki frá meginreglum Jehóva. (Hebr. 11:32–34) Hananja, Mísael og Asarja vildu frekar deyja í logandi eldsofni heldur en að hvika frá trú sinni og gera sig seka um skurðgoðadýrkun.

Að segja frá sannleikanum um Jehóva og Jesú. (Matt. 22:16) Hugsum um Sál frá Tarsus. Hann sagði fólki sannleikann um Jesú, fólki sem bjóst við að hann tæki þátt í að ofsækja fylgjendur Jesú.

Það er bæn okkar að þessi bók hjálpi þér að styrkja trú þína og hugrekki. (Sálm. 27:14) Megi Jehóva blessa þig og viðleitni þína til að hjálpa fjölskyldu þinni og trúsystkinum að styðja ríki hans með ráðum og dáð!

Bræður ykkar,

Stjórnandi ráð Votta Jehóva

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila