2. HLUTI
Frá konungatímanum til endurreisnar Jerúsalem
Prentuð útgáfa
Þessi bókarhluti nær yfir tímabil sem spannar um sex aldir. Hann hefst með Jónatan, syni Sáls konungs, og síðan er rætt um Davíð sem var fyrsti trúfasti konungurinn í Ísrael. Honum lýkur með heimkomu þjóna Guðs úr útlegðinni í Babýlon og endurreisn Jerúsalem. Við drögum lærdóm af Abígail, Natan, Elía, Daníel, Ester, Nehemía og fleirum. Þau þurftu að takast á við ýmiss konar aðstæður. Sumir ríktu yfir uppreisnargjarnri þjóð Jehóva, sumir þurftu að varðveita trúfesti þegar valdhafar fóru út af sporinu og sumir þurftu að verja hina sönnu trú þegar útvalin þjóð Guðs leiddist út í fráhvarf og illsku.