Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • g89 8.10. bls. 29
  • Golíat — risi með siðmenningu að baki sér?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Golíat — risi með siðmenningu að baki sér?
  • Vaknið! – 1989
  • Svipað efni
  • Davíð og Golíat
    Biblíusögubókin mín
  • Spurningar frá lesendum
    Varðturninn: Spurningar frá lesendum
  • Hann barðist við risa
    Verum hugrökk og treystum Jehóva
  • Davíð var ekki hræddur
    Kenndu börnunum
Sjá meira
Vaknið! – 1989
g89 8.10. bls. 29

Golíat — risi með siðmenningu að baki sér?

HVER hefur ekki heyrt frásöguna af bardaga hins unga Davíðs við Filistarisann Golíat? (1. Samúelsbók 17:23-51) Samkvæmt tímatali Biblíunnar átti þessi bardagi sér stað um árið 1100 f.o.t. Hvað er vitað um þjóðmenningu Filista á þeim tíma?

Síðastliðin sjö ár hefur verið unnið að uppgrefti þar sem talið er að Ekron hafi staðið, en hún var ein af stærstu borgum Filista á dögum Davíðs. Í ljós hefur komið að Filistar voru miklir byggingarmeistarar og voru á undan ýmsum öðrum þjóðum í skipulagi borga. Sumarið 1988 fannst til dæmis 210 fermetra húsasamstæða. Þetta er stærsta bygging sem þekkt er frá þeim tíma er Filistar voru hvað valdamestir (frá 12. til 10. öld f.o.t.). Uppgraftarsvæðið er 20 hektarar og komið hefur í ljós að borgin var byggð á hjöllum til að nýta sem best eðlilegt streymi vatns. Fornleifafræðingurinn Seymour Gitin sagði í aðdáunartón: „Þetta var mjög háþróaður byggingarstíll.“

Við uppgröftinn hefur einnig fundist mikið magn fallegra leirmuna skreyttum fugla- og fiskamyndum og mynstrum sem minna á rúmfræðimyndir. Einnig hafa fundist trúarleg ölturu með fjórum hornum, ýmis málmverkfæri og geymsluker, ef til vill undir ólífuolíu. Allt talar þetta skýru máli um kunnáttu Filista til forna og háþróaða menningu þeirra. Gitin segir: „Filistar . . . innleiddu nýja menningu í þennan heimshluta. Þeir urðu mikið viðskiptaveldi og voldug iðnaðarþjóð.“

[Mynd á blaðsíðu 29]

Leirmunir sem þessir fundust nýverið þar sem Filistaborgin Ekron stóð til forna.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila