Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • brw950201 bls. 31
  • Spurningar frá lesendum

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Spurningar frá lesendum
  • Varðturninn: Spurningar frá lesendum
Varðturninn: Spurningar frá lesendum
brw950201 bls. 31

Spurningar frá lesendum

Hverjir voru Filistear sem fjallað er um í Biblíunni?

Í Biblíunni er oft talað um þjóð sem kallaðist Filistear og bjó í Kanaan þegar þjóð Guðs til forna lagði undir sig fyrirheitna landið. Filistear börðust lengi við þjóð Guðs. Frásagan af Davíð og Filistearisanum Golíat er dæmi um þennan fjandskap. – 1. Samúelsbók 17:1–3, 23–53.

Af Biblíunni má ráða að Filistear til forna hafi flust frá Kaftór til suðvesturstrandar Kanaanslands. (Jeremía 47:4) Hvar var Kaftór? Í The International Standard Bible Encyclopedia (1979) segir: „Þó að ekki sé hægt að fullyrða það með vissu bendir núverandi þekking til þess að langlíklegasti staðurinn sé eyjan Krít (eða Krít og eyjarnar í Eyjahafi sem eiga sameiginlega menningu).“ – 1. bindi, bls. 610.

Í samræmi við það segir í Nýheimsþýðingu Biblíunnar í Amosi 9:7: „‚Eruð þið Ísraelsmenn mér ekki eins og synir Kúsíta?‘ segir Jehóva. ‚Leiddi ég ekki Ísrael frá Egyptalandi, Filistea frá Krít og Sýrlendinga frá Kír?‘“

Ekki er vitað hvenær þessir eyjabúar fluttu frá Krít og settust að í Kanaan, þeim hluta sem síðar var kallaður Filistea og náði frá Joppe til Gasa. En þeir virðast þegar hafa verið komnir þangað á dögum Abrahams og Ísaks. – 1. Mósebók 20:1, 2; 21:32–34; 26:1–18.

Filistear voru áfram valdamiklir á svæðinu löngu eftir að Ísraelsmenn settust að í landinu sem Guð hafði lofað þeim. (2. Mósebók 13:17; Jósúabók 13:2; Dómarabókin 1:18, 19; 3:3, 4; 15:9, 10; 1. Samúelsbók 4:1–11; 7:7–14; 13:19–23; 1. Konungabók 16:15) Í valdatíð Ússía Júdakonungs bjuggu Filistear enn í borgunum Gat, Jabne og Asdód. (2. Kroníkubók 26:6) Aðrar borgir þeirra sem koma oft fyrir í frásögn Biblíunnar eru Ekron, Askalon og Gasa.

Alexander mikli vann borgina Gasa en með tímanum virðast Filistear hafa liðið undir lok sem þjóð. Prófessor Lawrence E. Stager segir í Biblical Archaeology Review (maí-júní 1991): „Filistear fóru líka í útlegð til Babýlonar … Engar heimildir eru þó um hvað hafi orðið um þá eftir það. Þeir sem kunna að hafa orðið eftir í Askalon eftir að Nebúkadnesar vann hana hafa greinilega glatað þjóðerni sínu. Þeir hverfa einfaldlega úr sögunni.“

Nafnið Palestína er dregið af latneskum og grískum orðum sem rekja má til hebreska orðsins sem þýtt er „Filistea“. Sumar arabískar biblíuþýðingar nota orð um Filistea sem er auðvelt að rugla saman við orðið Palestínumenn. Today’s Arabic Version notar þó annað arabískt orð sem gerir greinarmun á Filisteum til forna og Palestínumönnum nútímans.

[Mynd á bls. 31]

Rústir í Askalon.

[Rétthafi]

Pictorial Archive (Near Eastern History) Est.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila