Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • g88 8.4. bls. 30–31
  • Horft á heiminn

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Horft á heiminn
  • Vaknið! – 1988
  • Millifyrirsagnir
  • Sakaruppgjöf
  • Aukið þol fyrir fúkalyfjum
  • Hættulaus sólbrúnka ekki til
  • Kjarnorkuslys í Brasilíu
  • Dýr handarhreyfing!
  • Mikilvægi hálskirtla
  • Ímyndunarveiki
  • Lifrin er lofsverð
  • Babýlon endurbyggð
  • Annar bátur fundinn
Vaknið! – 1988
g88 8.4. bls. 30–31

Horft á heiminn

Sakaruppgjöf

Í opinberri yfirlýsingu, sem sendiráð lýðveldisins Rúanda í Kanada hefur látið fjölmiðlum í té, segir að forseti Rúanda, Juvénal Habyarimana hershöfðingi, hafi veitt öllum vottum Jehóva, sem voru fangelsaðir af trúarlegum orsökum, „algera sakaruppgjöf.“ Að því er segir í tilkynningu sendiráðsins átti það sér stað á 25 ára sjálfstæðisafmæli Rúanda. Eftir að vottunum var sleppt úr haldi var þeim leyft að snúa til heimkynna sinna og taka upp sín fyrri störf. Sagt er að héraðsembættismenn, sem ekki hafi framfylgt náðun forsetans, hafi fengið ávítur frá stjórninni.

Aukið þol fyrir fúkalyfjum

Sýklar verða sífellt þolnari fyrir þeim fúkalyfjum sem notuð eru í baráttunni gegn þeim, að sögn tímaritsins Insight. Um 100 sérfræðingar í 30 löndum tóku þátt í rannsókn sem gerð var á árunum 1983-86 á þessu viðfangsefni. Þeir komust að þeirri niðurstöðu að í fjölmörgum löndum sé á bilinu 20 til 30 prósent „ríkjandi sýklastofna, sem valda niðurgangi og lungnabólgu, ónæmir fyrir algengum fúkalyfjum svo sem penisillíni og tetrasyklíni.“ Í sumum tilvikum hafa hinir lyfþolnu stofnar borist frá einu landi til annars. Sérfræðingahópurinn lagði til að læknum yrði ráðlagt að ávísa minnsta nothæfa skammti af fúkalyfjum og minntir á að fúkalyf séu ekki allra meina bót.

Hættulaus sólbrúnka ekki til

„Það er ekkert til sem heitir hættulaus sólbrúnka,“ fullyrðir dr. Darrell S. Rigel við New York University School of Medicine. Ár hvert greinast í Bandaríkjunum fleiri en 500.000 húðkrabbameinstilfelli. Þar af eru 90 af hundraði sögð stafa af hinum ósýnilegu, útfjólubláu geislum sólarinnar. The Mexico City News skýrir frá því að enda þótt „líklegra sé að fólk, sem sólbrennur, fái krabbamein . . . skaðar sólarljósið húðina jafnvel þótt hún brenni ekki.“ Samt „heldur fólk að það komi ekki fyrir það,“ segir dr. Richard Odom, forseti bandarísku húðsjúkdómaakademíunnar. Mælt er með að fólk noti sólarolíu með háum verndarstuðli (S.P.F.-stuðli). „Það er ekki hægt að bæta það tjón, sem orðið er, en það er hægt að vernda sig fyrir frekara tjóni,“ segir dr. Rigel.

Kjarnorkuslys í Brasilíu

Tímaritið Veja skýrir svo frá að það sem tveir pappírs- og brotajárnssafnarar í Goiania í Brasilíu töldu vera fundið fé hafi orðið upphafið að alvarlegu kjarnorkuslysi. Í yfirgefinni byggingu fundu þeir gamalt geislalækningatæki sem þeir seldu brotajárnskaupmanninum Devair Alves Ferreira. Inni í tækinu fundu þeir lítið hylki sem undarlegum bjarma stafaði frá. Síðar var hylkið sjálft opnað og í ljós kom steinn sem auðvelt var að mylja. Það sem þeir vissu ekki var að þeir höfðu í höndunum geilsavirkt sesíum 137. „Það gaf frá sér bláan ljóma í myrkri. Það var fallegt,“ sagði Devair. Hrifnir sýndu mennirnir fjölskyldum sínum og vinum steininn með þeim afleiðingum að 244 einstaklinginar urðu fyrir geislun, að minnsta kosti 20 alvarlegri geislun. Eiginkona Devair og 6 ára gömul frænka hans voru þau fyrstu sem dóu. Sökum þess hve margir urðu fyrir geislun er slysið talið annað mesta kjarnorkuslys sögunnar á eftir Chernóbýl.

Dýr handarhreyfing!

Forvitnir áhorfendur haldi sér utan dyra! Breskur verkfræðingur, sem fór á uppboð af forvitni einni saman, er sennilega enn þá að hugleiða gildi þessarar ráðleggingar. Franska dagblaðið Le Monde skýrði frá því að „á uppboðinu hafi verkfræðingurinn óvart hreyft handlegginn og uppboðshaldarinn túlkað það sem tilboð fyrir hæsta verð.“ Verkfræðingurinn var skyndilega orðinn stoltur eigandi 10 enskra húsa frá stjórnartíð Georgs konungs sem honum var gert að greiða fyrir liðlega 100 milljónir króna! Dagblaðið sagði að tilraunir hans til að ógilda kaupin hafi reynst árangurslausar.

Mikilvægi hálskirtla

Prófessor í háls- og eyrnalækningum við Boston University School of Medicine heldur því fram að „ný vitneskja um hið mikilvæga hlutverk hálskirtlanna í ónæmiskerfi líkamans“ réttlæti að ekki sé notuð svo róttæk aðferð að nema hálskirtlana brott. Dr. Geza Jebo skýrir frá því að hann hafi náð góðum árangri í 22 tilfellum með CO2 leysigeislatæki í að lækna langvinna hálskirtlabólgu. Er þá gert við kirtlana í stað þess að nema þá brott. „Sjúklingarnir voru á aldursbilinu 14 til 42 ára og höfðu allir skýrt frá tíðri hálskirtlabólgu allt frá tveim til ellefu árum fyrir aðgerð,“ segir The Medical Post í Kanada. Og annar kostur við slíka aðgerð: „Engar blæðingar áttu sér stað eftir aðgerð sem kölluðu á heimsókn til læknis eða á slysadeild.“

Ímyndunarveiki

Þegar maður gaf sig fram nýverið á spítala í Lundúnum reyndist hjartaáfallið, sem hann kvaðst hafa fengið, jafnmikil uppgerð og persónuupplýsingarnar sem hann gaf um sjálfan sig. Tímaritið Journal of the Royal Society of Medicine skýrði frá því að hin fjölmörgu ör á líkama hans eftir uppskurði gæfu eigi að síður til kynna að honum hafi tekist bærilega að blekkja lækna á öðrum spítulum til að gera á sér skurðaðgerðir. Ástæðan mun vera sú að hann er haldin Munchausensjúkdómi, en það er læknisfræðiheiti yfir það þegar menn ímynda sér að þeir séu haldnir alls kyns sjúkdómum. Ár hvert reyna upp undir 1500 manns á Bretlandseyjum að fá spítala til að gera á sér aðgerðir sem alls engin ástæða er til. Lundúnarblaðið The Times segir þá sem haldnir eru þessari veiki svo sannfærða um veikindi sín að þess séu dæmi um að þeir hafi falsað læknisskýrslur og jafnvel föndrað við tæki, notuð við sjúkdómsgreininguna, í því skyni að draga að sér athygli.

Lifrin er lofsverð

Í spænsku borginni El Ferrol afhjúpaði borgarstjórinn, Ulla, nýverið styttu sem reist var til minningar um lifrina. Á starfsævi sinni við lækningar og krufningar í borginni hefur hann séð hundruð lifra „sem höfðu verið píndar með vínblöndum, víni, róandi lyfjum og öðrum lyfjum.“ Dag hvern þarf lifrin að heyja baráttu við slík eiturefni, sagði hann. Graníthöggmyndinni, sem var kostuð af borgarsjóði og banka, er ætlað að veita viðurkenningu þessu „hæverska og óeigingjarna líffæri.“

Babýlon endurbyggð

Um átta ára skeið hafa írönsk stjórnvöld unnið að endurbyggingu Forn-Babýlonar. Þau hafa þó ekki haft mikinn efnivið til að vinna úr, því að Þjóðverjar og Frakkar fjarlægðu bestu listmunina og Tyrkir notuðu múrsteinana til að gera úr stíflugarða í Evfrat. Þar eð fáar upprunalegar myndir eru til að styðjast við hefur endurreisnin orðið að byggjast á hvernig menn ímynda sér borgina hafa verið, borg sem einu sinni náði yfir næstum 20 ferkílómetra svæði og hafði um eina milljón íbúa. Um 1800 erlendir verkamenn hafa unnið að endurbyggingunni þar eð íraskir karlmenn eru að heiman í stríði. Nýverið hlóðu þeir í flýti upp 14 milljón múrsteinum til að endurbyggja múra og smáturna. Hvernig hefur verkinu miðað? „Sagt er að múrarnir, sem reistir voru fyrir þúsundum ára, hafi verið beinni en þeir sem nú eru reistir,“ er haft eftir stjónarerindreka.

Annar bátur fundinn

Annað jarðhýsið í grennd við píramídann mikla í Giza hefur nú verið opnað og skoðað með hjálp smárrar myndavélar. Eins og búist var við fannst í því annar útfararbátur „sálar“ Keops faraós. Það markmið vísindamanna að ná í sýni af innilokuðu, ævafornu andrúmslofti, í því skyni að kanna samsetningu þess áður en farið var að brenna steingervingaeldsneyti í miklum mæli, virðist ekki hafa náðst. „Það er ólíklegt að loftið í jarðhýsinu hafi haldist óbreytt í 4600 ár,“ sagði rannsóknavísindamaðurinn Pieter Tans sem þefaði af því. „Kalksteinninn var með afbrigðum mjúkur og gljúpur sem gefur tilefni til að ætla að ekki sé mikið af fornu lofti að finna í jarðhýsinu.“ Engin áform eru uppi um að grafa upp þennan síðari bát. Það tók tíu ár að raða saman bútunum úr þeim fyrri.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila