Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
Íslensk rit (1985-2026)
Útskrá
Innskrá
Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Velkomin.
Hér er hægt að leita í ritum sem Vottar Jehóva hafa gefið út á fjölda tungumála.
Til að hlaða niður ritum geturðu farið inn á jw.org.
  • Í dag

Fimmtudagur 16. apríl

Í angist minni ákallaði ég Jehóva og hróp mitt á hjálp barst honum til eyrna. – Sálm. 18:6.

Davíð konungur þekkti Jehóva og treysti honum. Þegar óvinir sóttust eftir lífi hans, þar á meðal Sál konungur, bað hann til Jehóva um hjálp. Eftir að Guð svaraði bænum hans og bjargaði honum sagði hann: „Jehóva lifir!“ (Sálm. 18:46) Davíð var ekki bara að viðurkenna að Guð væri til. Samkvæmt biblíuskýringariti lýsa þessi orð Davíðs trausti hans á Jehóva, „hinum lifandi Guði sem hjálpar alltaf þjónum sínum“. Davíð vissi af eigin reynslu að Guð hans væri lifandi og sú fullvissa hvatti hann til að halda áfram að þjóna og lofa Jehóva. (Sálm. 18:28, 29, 49) Við þjónum Jehóva af kappi þegar við erum sannfærð um að hann sé lifandi Guð. Sú fullvissa gefur okkur styrk til að halda út í prófraunum og gera okkar besta í þjónustu hans. Það hjálpar okkur líka að halda okkur nálægt Jehóva. w24.06 20–21 gr. 3, 4

Rannsökum Ritningarnar daglega – 2026

Föstudagur 17. apríl

„Látið engan leiða ykkur afvega á nokkurn hátt.“ – 2. Þess. 2:3.

Hvað getum við lært af því sem Páll postuli skrifaði til Þessaloníkumanna? Við þurfum að beita dómgreind þegar við heyrum eitthvað sem samrýmist ekki því sem við höfum lært í Biblíunni eða eitthvað sem hneykslar okkur. Í fyrrverandi Sovétríkjunum dreifðu óvinir okkar bréfi á meðal bræðranna sem var sagt vera frá aðalstöðvunum. Það varð til þess að sumir bræður aðgreindu sig og stofnuðu sjálfstæðan söfnuð. Bréfið leit út fyrir að vera ósvikið. En trúfastir bræður létu ekki blekkjast. Þeir áttuðu sig á því að boðskapur bréfsins var ekki í samræmi við það sem þeim hafði verið kennt. Nú á dögum nota óvinir sannleikans stundum nútímatækni til að rugla okkur í ríminu og sundra okkur. Frekar en að vera „fljót að komast úr jafnvægi“ getum við verndað okkur með því að hugsa vandlega hvort það sem við heyrum eða lesum sé í samræmi við sannleikann sem við höfum lært. – 2. Þess. 2:2; 1. Jóh. 4:1. w24.07 12 gr. 14, 15

Rannsökum Ritningarnar daglega – 2026

Laugardagur 18. apríl

„Ef einhver drýgir synd höfum við hjálpara.“ – 1. Jóh. 2:1.

Mikilvægasta ákvörðunin sem hver og einn tekur er að vígja líf sitt Jehóva og tilheyra fjölskyldu hans. Jehóva vill að allir geri það. Hann vill að allir eignist vináttu hans og eilíft líf. (5. Mós. 30:19, 20; Gal. 6:7, 8) Jehóva þvingar hins vegar engan til að þjóna sér. Hann virðir rétt hvers og eins til að ákveða hvað hann vill gera. Segjum að skírður þjónn Guðs syndgi alvarlega og iðrist ekki. Í slíku tilfelli er nauðsynlegt að vísa honum úr söfnuðinum. (1. Kor. 5:13) En jafnvel þá vonar Jehóva innilega að hann snúi aftur. Þetta er ein mikilvæg ástæða þess að hann sá fyrir lausnargjaldinu – til að geta fyrirgefið iðrandi syndurum. Guð er kærleiksríkur og hvetur þá sem hafa syndgað alvarlega til að iðrast. – Sak. 1:3; Rómv. 2:4; Jak. 4:8. w24.08 14 gr. 1, 2

Rannsökum Ritningarnar daglega – 2026
Velkomin.
Hér er hægt að leita í ritum sem Vottar Jehóva hafa gefið út á fjölda tungumála.
Til að hlaða niður ritum geturðu farið inn á jw.org.
  • Íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila