Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • mrt grein 140
  • Dómsdagsklukkan færist nær miðnætti

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Dómsdagsklukkan færist nær miðnætti
  • Fleiri viðfangsefni
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Hvað gerist í framtíðinni?
  • Verum jákvæð
  • Vísindamenn færa dómsdagsklukkuna fram – hvað segir Biblían?
    Fleiri viðfangsefni
  • Er heimurinn farinn úr böndunum eða ekki?
    Vaknið! – 2017
  • Kjarnorkuváin — er hún liðin hjá?
    Vaknið! – 1999
  • Er að koma heimsendir?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (almenn útgáfa) – 2021
Sjá meira
Fleiri viðfangsefni
mrt grein 140
Dómsdagsklukkan sýnir núna 85 sekúndur í miðnætti.

Courtesy Jamie Christiani/Bulletin of the Atomic Scientists

HALTU VÖKU ÞINNI

Dómsdagsklukkan færist nær miðnætti

Þann 27. janúar 2026 færðu vísindamenn vísa dómsdagsklukkunnar nær miðnætti. Miðnætti táknar tortímingu af mannavöldum um allan heim.

  • „Stjórnin Science and Security Board innan Bulletin of the Atomic Scientists stillir núna dómsdagsklukkuna á 85 sekúndur í miðnætti, en hún hefur aldrei verið eins nálægt tortímingu.“ – Bulletin of the Atomic Scientists.

  • „Skilaboðin sem dómsdagsklukkan gefur gætu ekki verið skýrari. Hættan á tortímingu eykst, samvinnu hnignar og við erum að brenna út á tíma. Það er þörf á breytingum. Og þær eru mögulegar en samfélag manna þarf að krefjast þess af leiðtogum sínum að þeir geri tafarlaust eitthvað í málinu.“ – Alexandra Bell, forseti og forstjóri Bulletin of the Atomic Scientists.

Er endir mannkynsins og jarðarinnar í aðsigi? Þurfum við að óttast framtíðina? Hvað segir Biblían?

Hvað gerist í framtíðinni?

Biblían segir að ‚jörðin standi að eilífu‘ og að fólk muni „búa á henni að eilífu“. (Prédikarinn 1:4; Sálmur 37:29) Menn eiga því ekki eftir að tortíma jörðinni eða gera hana óbyggilega.

En Biblían talar samt um endi. Í henni segir til dæmis: „Heimurinn líður undir lok.“ – 1. Jóhannesarbréf 2:17.

  • Í greininni „Er að koma heimsendir? Segir Biblían fyrir um algera eyðingu?“ geturðu séð hvað Biblían á við þegar hún talar um endalok heimsins.

  • Lestu greinina „Hvenær kemur að endalokum þessa heims?“ til að sjá hvað Biblían segir um tímasetningu komandi heimsatburða.

Verum jákvæð

Biblían getur hjálpað okkur að varðveita jákvætt hugarfar þrátt fyrir vandamál heimsins. Hvernig?

  • Í Biblíunni eru hagnýt ráð. (2. Tímóteusarbréf 3:16, 17) Lestu til dæmis greinina „Hvernig er hægt að hafa stjórn á áhyggjum?“ til að sjá hvernig Biblían getur hjálpað þér að vera jákvæður þrátt fyrir erfiðleika lífsins.

  • Biblían gefur okkur áreiðanlega framtíðarvon. (Rómverjabréfið 15:4) Hún útskýrir nákvæmlega við hverju við megum búast núna og í framtíðinni og hjálpar okkur þannig að takast vongóð á við ástandið í heiminum.

Við hvetjum þig til að prófa ókeypis biblíunámskeið til kynnast Biblíunni betur.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila