HALTU VÖKU ÞINNI
Endi bundinn á hatursglæpi – hvað segir Biblían?
Hatursofbeldi er orðið sorglega algengt. Ráðist er á fólk einfaldlega vegna kynþáttar, trúar, þjóðernis, kynferðis eða annarra ástæðna. Ofbeldi af þessu tagi vekur ugg og ótta meðal fólks nær og fjær og margir sitja uppi með djúpstæð og langvinn sár bæði á líkama og sál. Og stundum kostar ofbeldið jafnvel mannslíf.
Í Biblíunni var spáð að á okkar tímum yrðu margir ‚kærleikslausir, grimmir og myndu ekki elska hið góða‘. (2. Tímóteusarbréf 3:1–5) Verður þá nokkurn tíma bundinn endi á hatursglæpi? Hvað segir Biblían?
Hvernig verður bundinn endi á hatursglæpi?
Biblían fullvissar okkur um að Guð bæði geti upprætt alla grimmd og ætli að gera það.
„Illum mönnum verður eytt … En hinir auðmjúku erfa jörðina og gleðjast yfir miklum friði.“ (Sálmur 37:9–11) Guð mun ekki leyfa ofbeldismönnum að valda öðrum tjóni miklu lengur.
„[Guð] mun þerra hvert tár af augum þeirra og dauðinn verður ekki til framar. Engin sorg, angistaróp né kvöl verður heldur til.“ (Opinberunarbókin 21:4) Guð mun bæta allt það líkamlega, sálræna og tilfinningalega tjón sem fólk hefur orðið fyrir.
Fólk mun „rísa upp“. (Postulasagan 24:15) Guð reisir fólk upp frá dauðum í milljónatali, þar á meðal þá sem hafa látið lífið vegna hatursglæpa.
Að takast á við hatur
Biblían veitir okkur ekki bara von. Hún hjálpar okkur líka að takast á við hatrið sem er svo útbreitt nú á dögum. Við hvetjum þig til að kynna þér svör hennar við þessum mikilvægu spurningum:
Hvað getum við gert núna til að sigrast á hatrinu sem kveikir ofbeldið? Skoðaðu hvað Biblían segir um málið í Varðturninum undir fyrirsögninni „Vítahringur haturs rofinn“.
Hvers vegna leyfir Guð allar þessar þjáningar? Þú getur fengið skýrt svar byggt á Biblíunni í myndbandinu Af hverju leyfir Guð þjáningar?