Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • ijwbq grein 67
  • Hver er uppruni hrekkjavökunnar?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hver er uppruni hrekkjavökunnar?
  • Biblíuspurningar og svör
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Svar Biblíunnar
  • Saga og siðir hrekkjavökunnar
  • Skiptir heiðinn uppruni hrekkjavökunnar máli?
  • Tillögur að kynningum
    Ríkisþjónusta okkar – 2013
  • Ættum við að halda hátíðir?
    Hvað kennir Biblían?
  • Hátíðahöld sem Guð hefur vanþóknun á
    „Látið kærleika Guðs varðveita ykkur“
  • Hvað geturðu sagt um blöðin?
    Ríkisþjónusta okkar – 2001
Biblíuspurningar og svör
ijwbq grein 67
Þrjú börn í hrekkjavökubúningum standa við dyrnar á húsi sem er þakið skreytingum.

Hver er uppruni hrekkjavökunnar?

Svar Biblíunnar

Það er ekkert minnst á hrekkjavöku í Biblíunni, þessa hátíð sem margir halda upp á 31. október á hverju ári. En forn uppruni og siðir hrekkjavökunnar (líka kölluð allraheilagramessa) stangast á við kenningar Biblíunnar.

Í þessari grein:

  • Saga og siðir hrekkjavökunnar

  • Skiptir heiðinn uppruni hrekkjavökunnar máli?

  • Hvers vegna er hún kölluð allraheilagramessa?

Saga og siðir hrekkjavökunnar

  • Samhain: Uppruna hrekkjavöku má rekja aftur til „fornrar heiðinnar athafnar sem Keltar héldu hátíðlega fyrir rúmlega 2.000 árum,“ segir í fræðiritinu The World Book Encyclopedia. „Keltar trúðu að á meðan Samhainhátíðin stóð yfir gætu hinir dánu gengið á meðal þeirra og að hinir lifandi gætu átt samskipti við þá.“ – Sjá „Hvers vegna er hún kölluð allraheilagramessa?“

  • Hrekkjavökubúningar, sælgæti, gjafir og hrekkir: Samkvæmt uppflettiriti klæddust sumir Keltarnir draugabúningum svo að andarnir „héldu að þeir væru líka framliðnir“ og myndu þess vegna láta þá í friði. Aðrir buðu öndunum upp á sælgæti til að friða þá.a

    Appelsínugul karfa sem er í laginu eins og grasker liggur á hliðinni og úr henni vellur alls kyns sælgæti á borð.

    Í Evrópu á miðöldum tók kaþólska kirkjan heiðna siði hvers lands upp á sína arma. Í þessu tilfelli lét hún fylgjendur sína klæðast búningum og fara hús úr húsi og betla smá gjafir.

  • Draugar, vampírur, varúlfar, nornir og uppvakningar: Þessi fyrirbæri hafa lengi verið tengd við heim illra anda. Bókin Halloween Trivia segir að svona „yfirnáttúrulegar ófreskjur“ séu „nátengdar dauðanum, hinum dánu og ótta við dauðann“.

  • Hrekkjavökugrasker eða -luktir: Í Bretlandi á miðöldum „fór fólk hús úr húsi og bauðst til að biðja fyrir hinum dánu í skiptum fyrir mat“. Menn gengu með „rófur sem voru holaðar að innan sem luktir, kertið innan í þeim táknaði sálir sem voru fastar í hreinsunareldi“. (Halloween – From Pagan Ritual to Party Night) Aðrar heimildir segja að luktirnar hafi verið notaðar til að halda illum öndum í burtu. Á 19. öld í Norður-Ameríku var farið að nota grasker í staðinn fyrir rófur, bæði vegna þess að mikið var til af þeim og auðvelt að hola þau að innan og rista í þau.

Skiptir heiðinn uppruni hrekkjavökunnar máli?

Já. Þó svo að sumum finnist hrekkjavakan saklaus skemmtun þá stangast siðir hennar algerlega á við kenningar Biblíunnar. Hrekkjavakan er byggð á falskenningum um dauðann og ósýnilega anda eða djöfla.

Taktu eftir því hvað eftirfarandi vers sýna okkur um viðhorf Guðs til trúarskoðana sem tengjast hrekkjavöku:

  • „Á meðal ykkar má enginn finnast sem … leitar ráða hjá öndum … enginn sem leitar úrskurðar hjá framliðnum.“ – 5. Mósebók 18:10–12, Biblían 2010

    Hvað þýðir það? Að Guð er andsnúinn því að menn hafi samband við hina dánu og jafnvel því að menn þykist gera það.

  • „Hinir dánu vita ekki neitt.“ – Prédikarinn 9:5.

    Hvað þýðir það? Fyrst hinir dánu vita ekki neitt, geta þeir ekki haft samband við hina lifandi.

  • ,Hafið ekki samfélag við illa anda. Ekki getið þið drukkið bikar Drottins og bikar illra anda.‘ – 1. Korintubréf 10:20, 21, Biblían 2010

    Hvað þýðir það? Þeir sem vilja hafa velþóknun Guðs þurfa að forðast hvers kyns tengsl við illa anda.

  • ,Standist slóttugar árásir Djöfulsins því að baráttan sem við eigum í er við andaverur vonskunnar.‘ – Efesusbréfið 6:11, 12.

    Hvað þýðir það? Að kristnir menn þurfa að standa gegn illum andaverum í stað þess að þykjast vera í veislu með þeim.

a Sjá bókina Halloween: An American Holiday, an American History, bls. 4.

Hvers vegna er hún kölluð allraheilagramessa?

Nafnið tengist heiðnu keltnesku hátíðinn sem hét Samhain. Alfræðiritið World Book Encyclopedia segir: „Samhain … merkir sumarlok. Hátíðin markaði upphaf dimmu og vetrar. Hún var haldin í kringum 1. nóvember. Á 8. og 9. öld kom kristna kirkjan á nýjum hátíðisdegi þennan dag, hinni svonefndu allraheilagramessu. Allraheilagramessa var líka kölluð ,All Hallows‘ á ensku, en hallow merkir heilagur. Kvöldið fyrir allraheilagramessu var kallað All HallowsʹEve, eða allraheilagrakvöld sem var síðar stytt í Halloween.“

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila