Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • ijwbq grein 193
  • Hvað segir Biblían um Daníel?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hvað segir Biblían um Daníel?
  • Biblíuspurningar og svör
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Svar Biblíunnar
  • Hver var Daníel?
  • Daníelsbók dregin fyrir rétt
    Gefðu gaum að spádómi Daníelsbókar
  • Höfuðþættir Daníelsbókar
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2007
  • Þýðing Daníelsbókar fyrir þig
    Gefðu gaum að spádómi Daníelsbókar
  • Þegar Jehóva kenndi einvaldsherrum lexíu
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1989
Sjá meira
Biblíuspurningar og svör
ijwbq grein 193
Daníel spámaður biður til Guðs í ljónagryfju.

Hvað segir Biblían um Daníel?

Svar Biblíunnar

Daníel var einstakur í röð spámanna Gyðinga. Hann lifði á sjöundu og sjöttu öld f.Kr. Guð hjálpaði honum að ráða drauma, gaf honum vitarnir um atburði framtíðar og innblés honum að rita bókina sem ber nafn hans. – Daníel 1:17; 2:19.

Hver var Daníel?

Daníel ólst upp í konungsríkinu Júda en þar var Jerúsalemborg og musteri Gyðinga. Árið 617 f.Kr. lagði Nebúkadnesar konungur Babýlonar Jerúsalem undir sig og flutti ‚merkustu menn landsins‘ í útlegð til Babýlonar. (2. Konungabók 24:15; Daníel 1:1) Daníel, sem hefur líklega verið á táningsaldri, var hernuminn með þeim.

Daníel og aðrir ungir menn í fylgd konunglegra varða á leið í höll konungs Babýlonar.

Daníel var fluttur til konungshallarinnar í Babýlon ásamt öðrum ungum mönnum, þar á meðal voru þeir Sadrak, Mesak og Abed Negó. Þar fengu þeir sérstaka þjálfun til að geta unnið í þjónustu ríkisins. Þrátt fyrir þrýsting til að gefa eftir og víkja frá trú sinni voru Daníel og vinir hans þrír trúir Jehóva Guði sínum. (Daníel 1:3–8) Eftir þriggja ára þjálfun hrósaði Nebúkadnesar konungur þeim fyrir visku og kunnáttu og mat þá ‚tíu sinnum betri en alla galdrapresta og særingamenn í öllu ríki hans.‘ Hann útnefndi Daníel og vini hans til að þjóna við hirð sína. – Daníel 1:18–20.

Mörgum áratugum síðar, þegar Daníel var líklega á tíræðisaldri, var hann kallaður í höll konungs. Þá var maður að nafni Belsassar við völd í Babýlon. Hann bað Daníel að ráða skrift sem hafði birst með undraverðum hætti á veggnum. Daníel naut leiðsagnar Guðs og gat því sagt fyrir um fall Babýlonar í hendur Meda og Persa. Borgin féll þessa sömu nótt. – Daníel 5:1, 13–31.

Daníel ræður skriftina á veggnum.

Enn á ný var Daníel skipaður í háa stöðu, að þessu sinni undir stjórn Meda og Persa en Daríus konungur hafði hug á að veita honum enn hærri stöðu. (Daníel 6:1–3) Öfundsjúkir embættismenn voru með ráðabrugg um að drepa Daníel með því að láta kasta honum í ljónagryfju. En Jehóva kom honum til bjargar. (Daníel 6:4–23) Skömmu fyrir andlát sitt birtist honum engill Guðs í tvígang sem fullvissaði Daníel um að hann væri „mikils metinn“. – Daníel 10:11, 19.

Sjáðu hvernig þessir atburðir lifna við í kvikmyndinni Daníel sýndi trú alla ævi sem er í tveim hlutum og byggist á frásögu Biblíunnar.

Hvað leiðir mannkynssagan í ljós varðandi Daníelsbók?

Daníel greinir svo frá: Nebúkadnesar gerði gríðarstórt líkneski og skipaði þegnum sínum að tilbiðja það. Hann lét kasta þeim sem óhlýðnuðust honum í logandi eldsofn. – Daníel 3:1–6.

Það sem mannkynssagan leiðir í ljós: Nebúkadnesar stóð fyrir miklum byggingarframkvæmdum í Babýlon „ekki aðeins sjálfum sér til heiðurs heldur líka til dýrðar guðunum“, segir í Encyclopædia Britannica og hún bætir við að „hann sagðist vera ‚sá sem lagði lofgjörð til hinna dýrlegu guða í munn fólksins.‘“

Til eru nokkrar fornar babýlonskar heimildir um aftökur í eldsofni, þar á meðal eru tilfelli þar sem stjórnandi fyrirskipar þær. Einn forn texti sem er tímasettur frá stjórnartíð Nebúkadnesars lýsir refsingu á embættismönnum sem voru sakaðir um að vanvirða guði Babýlonar. Textinn segir: „Eyðið þeim, brennið þá, grillið þá … í bakaraofninn með þá … látið rjúka úr þeim, leiðið yfir þá eldleg endalok í ofsafengnum eldi.“a

Daníel skrifaði: Nebúkadnesar státaði af byggingarframkvæmdum sínum. – Daníel 4:29, 30.

Tígulsteinn, grafinn upp í Babýlon, sem nafn Nebúkadnesars hefur verið þrykkt í.

Það sem mannkynssagan leiðir í ljós: „Sú arfleifð sem Nebúkadnesar skildi eftir til handa komandi kynslóðum … lýsir miklum konungi sem er sannfærður um eigið réttlæti og mátt.“b Til dæmis stendur þessi áletrun eignuð Nebúkadnesari á byggingu nokkurri: „Ég byggði voldugan vegg úr biki og múrsteinum. Hann er óhagganlegur eins og fjall … Víggirðingar Esagílu og Babýlonar styrkti ég og skapaði stjórnartíð minni eilíft nafn.c Nafn Nebúkadnesars er þrykkt í marga múrsteina sem grafnir hafa verið upp í Babýlon.

Daníel skrifaði: Belsassar konungur bauð Daníel að verða „þriðji valdamesti maðurinn í ríkinu.“ – Daníel 5:1, 13–16.

Þetta fleygrúnakefli frá árinu 550 f.Kr. nefnir Nabónídus konung og son hans, Belsassar.

Það sem mannkynssagan leiðir í ljós: Maður að nafni Nabónídus var konungur þegar atburðirnir í 5. kafla Daníelsbókar gerðust. En Nabónídus varði mestum stjórnartíma sínum í Arabíu en ekki í Babýlon. Hver fór með völdin í Babýlon meðan hann var fjarri? Sagnfræðingurinn Raymond Philip Dougherty segir í bók sinni Nabonidus and Belshazzar: „Fleygrúnaáletrun segir að Nabónídus hafi treyst elsta syni sínum, Belsassar, fyrir völdunum.“ Hann bætir við: „Belsassar sá um embættisverkin í fjarveru föður síns sem var einvaldur ríkisins.“ Þar sem Nabónídus og Belsassar skipuðu tvær æðstu stöður ríkisins bauð Belsassar Daníel þriðju æðstu stöðuna.

a Journal of Biblical Literature, 128. bindi, nr. 2, bls. 279, 284.

b Babylon – City of Wonders eftir Irving Finkel og Michael Seymour, bls. 17.

c Archæology and the Bible eftir George Barton, bls. 479.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila