Af hverju taka vottar Jehóva ekki þátt í þjóðernislegum athöfnum?
Vottar Jehóva virða stjórnvöld og þjóðartákn. Við virðum þá afstöðu annarra að vilja fara með hollustueið, hylla fána og syngja þjóðsöng.
Vottar Jehóva kjósa hins vegar að taka ekki þátt í slíkum athöfnum vegna þess að þeir telja það stangast á við kenningar Biblíunnar. Við erum þakklát ef aðrir sýna okkur sömu virðingu og við sýnum þeim sem hafa aðrar skoðanir en við.
Í þessari grein
Um hvaða biblíukenningar er að ræða?
Eftirfarandi tvær biblíukenningar hafa áhrif á afstöðu okkar:
Guð einn verðskuldar tilbeiðslu okkar. Í Biblíunni segir: „Þú skalt tilbiðja Jehóva Guð þinn og honum einum skaltu veita heilaga þjónustu.“ (Lúkas 4:8) Í hollustueiðum og þjóðsöngvum er oft að finna loforð um að styðja land og þjóð framar öllu öðru. Vottar Jehóva geta því ekki með góðri samvisku tekið þátt í athöfnum þar sem farið er með hollustueið eða sunginn þjóðsöngur.
Vottar Jehóva álíta líka að fánahylling sé eins konar tilbeiðsluathöfn eða skurðgoðadýrkun sem lagt er bann við í Biblíunni. (1. Korintubréf 10:14) Sumir sagfræðingar viðurkenna að þjóðfánar séu í reynd trúartákn. „Fáninn er helsta trúartákn þjóðernishyggjunnar og aðalgoð hennar,“ segir sagnfræðingurinn Carlton J. H. Hayes.a Rithöfundurinn Daniel P. Mannix segir um frumkristna menn: „Kristnir menn neituðu að … færa verndarguði [rómverska] keisarans fórnir – nokkurn veginn sambærilegt við að neita að hylla fánann eins og gert er nú á dögum.“b
Þó að vottar Jehóva hylli ekki fánann hvarflar ekki að þeim að rífa hann, brenna né sýna honum óvirðingu með nokkrum öðrum hætti. Hið sama er að segja um önnur þjóðartákn.
Allir menn eru jafnir fyrir Guði. (Postulasagan 10:34, 35) Biblían segir að ‚Guð hafi gert allar þjóðir af einum manni‘. (Postulasagan 17:26) Vottar Jehóva trúa þar af leiðandi að það sé rangt að upphefja ákveðinn þjóðflokk eða þjóð yfir aðra. Við virðum alla óháð uppruna þeirra og búsetu. – 1. Pétursbréf 2:17.
Hvað gerum við ef lög krefjast þátttöku?
Vottar Jehóva eru ekki andvígir stjórnvöldum. Við trúum að stjórnvöld séu þáttur í „fyrirkomulagi Guðs“ og starfi með hans leyfi. (Rómverjabréfið 13:1–7) Það er afstaða okkar að kristnir menn eigi að hlýða yfirvöldum. – Lúkas 20:25.
En hvað gerum við ef lög manna stangast á við lög Guðs? Í sumum tilvikum er hægt að óska eftir að yfirvöld breyti lögum.c Þegar lagabreyting er ekki í boði kjósa vottar Jehóva, þó með fullri virðingu fyrir yfirvöldum, að „hlýða Guði frekar en mönnum“. – Postulasagan 5:29.
Eru vottar Jehóva að lýsa yfir félagslegri eða pólitískri afstöðu?
Nei, vottar Jehóva taka ekki afstöðu í félagslegum eða pólitískum deilumálum. Þegar við kjósum að fara ekki með hollustueið, hylla fána eða syngja þjóðsöng er ástæðan ekki sú að við séum pólitískir aðgerðasinnar. Við fylgjum einfaldlega sannfæringu okkar sem byggist á Biblíunni.
a Essays on Nationalism, bls. 107–108.
b The Way of the Gladiator, bls. 212.
c Sjá til dæmis greinina „A Stand of Courage and Conscience Established Supreme Court Precedent 75 Years Ago“.