Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • ijwfq grein 63
  • Eru Vottar Jehóva á móti bólusetningum?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Eru Vottar Jehóva á móti bólusetningum?
  • Spurningar og svör um Votta Jehóva
  • Svipað efni
  • Þiggja vottar Jehóva læknismeðferð?
    Spurningar og svör um Votta Jehóva
  • Undirbúðu þig nú fyrir slys eða alvarleg veikindi
    Líf okkar og boðun - vinnubók fyrir samkomur – 2023
  • Metum mikils þá gjöf Guðs sem lífið er
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2023
  • Að takast á við skyndilegan heilsubrest
    Fleiri viðfangsefni
Sjá meira
Spurningar og svör um Votta Jehóva
ijwfq grein 63
Glös með bóluefni og tilbúin sprauta.

Eru Vottar Jehóva á móti bólusetningum?

Nei, Vottar Jehóva eru ekki á móti bólusetningum. Við lítum svo á að það sé persónuleg ákvörðun hvers og eins hvort hann þiggur bólusetningu. Margir vottar Jehóva kjósa að gera það.

Við sækjumst eftir góðri læknismeðferð og kunnum að meta framfarir sem læknavísindin hafa tekið til að vinna gegn útbreiðslu alvarlegra sjúkdóma. Við erum líka þakklát fyrir allt það sem heilbrigðisstarfsfólk leggur á sig, sérstaklega þegar hættuástand ríkir.

Vottar Jehóva vinna vel með heilbrigðisyfirvöldum. Eftir að COVID-19 faraldurinn braust út gáfu þeir til dæmis út efni á hundruðum tungumála á þessu vefsetri sem hvatti fólk til að fylgja öryggisráðstöfunum sem gerðar voru á hverjum stað. Hvatt var til að virða nálægðarmörk, fylgja reglum um hámarksfjölda á samkomum, reglum um sóttkví, handþvott og andlitsgrímur og að fylgja öðrum ráðstöfunum sem yfirvöld kröfðust eða mæltu með. – Rómverjabréfið 13:1, 2.

Um áratugaskeið hafa rit Votta Jehóva lagt áherslu á eftirfarandi atriði:

  • Hver og einn þarf að ákveða hvers konar heilbrigðisþjónustu og meðferðir hann þiggur. – Galatabréfið 6:5.

    „[Þetta tímarit] mælir ekki með ákveðnum lyfjum eða meðferð umfram aðra og veitir ekki læknisfræðileg ráð. Markmiðið er einfaldlega að setja fram staðreyndir og eftirláta lesendum að taka eigin ákvarðanir.“ – Vaknið! (ensk útgáfa) 8. febrúar 1987.

    „Það er ykkar að ákveða hvort þið og börn ykkar þiggið bólusetningu.“ – Vaknið! (ensk útgáfa) 22. ágúst 1965.

  • Við leitum læknisaðstoðar af því að lífið er mjög dýrmætt í okkar augum. – Postulasagan 17:28.

    „Vottar Jehóva færa sér læknavísindin í nyt til að leysa heilsufarsleg vandamál sín. Þeir elska lífið og vilja gera allt sem skynsamlegt má telja og Biblían leyfir til að lengja það.“ – Varðturninn 1. júní 1976.

    „Vottar Jehóva þiggja fúslega lyf og læknismeðferðir. Þeir vilja halda góðri heilsu og lifa sem lengst. Sumir vottar eru reyndar læknar, rétt eins og Lúkas sem var kristinn maður á fyrstu öld … Vottar Jehóva eru þakklátir fyrir ötult og óeigingjarnt starf heilbrigðisstéttanna. Þeir eru líka þakklátir fyrir þá hjálp sem þeir fá þegar þeir leita aðstoðar vegna veikinda.“ – Varðturninn (ensk útgáfa) 1. febrúar 2011.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila