PRÓFAÐU ÞETTA
Undirbúðu uppbyggjandi svör
Á safnaðarsamkomum fáum við tækifæri til að uppörva bræður okkar og systur með svörum okkar. (Hebr. 10:24, 25) Hvernig getum við látið svörin vera uppbyggjandi fyrir aðra?
Biddu til Jehóva. Biddu hann að hjálpa þér að svara á þann hátt að það heiðri hann og uppörvi aðra. – Sálm. 35:18.
Reyndu að lesa ekki bara beint upp úr ritunum. Það kemur öðrum að gagni þegar þú tjáir trú þína með eigin orðum.
Hafðu svörin þín stutt. Stutt og einföld svör eru gjarnan þau sem uppörva mest og gefa fleirum tækifæri til að leggja eitthvað af mörkum á samkomunni. – Orðskv. 10:19.
Hafðu svörin þín jákvæð. Forðastu að gefa öðrum leiðbeiningar og gagnrýna söfnuðinn eða trúsystkini í svörunum þínum.
Þú getur verið uppbyggjandi þótt þú fáir ekki tækifæri til að svara. Hlustaðu af athygli á aðra og láttu þá vita að þú kunnir að meta svörin þeirra. – Orðskv. 10:21.