Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w26 júlí bls. 31
  • Vertu fljótur að bæta skaðann

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Vertu fljótur að bæta skaðann
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
  • Svipað efni
  • Hvernig gat vinur minn sært mig?
    Spurningar unga fólksins — svör sem duga, 2. bindi
  • Ræktað besta vináttusamband í öllum alheiminum
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1986
  • „Ég kalla ykkur vini“
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2020
  • Þú getur verið vinur Jehóva
    Von um bjarta framtíð – biblíunámskeið
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
w26 júlí bls. 31
Systir biður aðra systur einlæglega afsökunar á heimili annarrar þeirra.

Vertu fljótur að bæta skaðann

HEFUR bróðir eða systir sært þig svo illa að það er orðið stirt á milli ykkar? Þá þarftu að bregðast fljótt við og af réttum hvötum.a

Lýsum þessu með dæmi: Beinbrot þarf að meðhöndla til að það grói rétt saman. Ef það er ekki gert fljótt losnar maður ekki við verki. Og það sem verra er, beinið getur gróið skakkt saman og aldrei orðið alveg heilt aftur.

Ef samband okkar við trúsystkini hefur laskast þurfum við að bregðast fljótt við, rétt eins og með beinbrot. Annars heldur ósættið áfram að skaða okkur. Við getum orðið gröm og vináttan kólnað. Jesús sagði: „Vertu fljótur að sættast.“ (Matt. 5:25) Talaðu þess vegna vingjarnlega en opinskátt við vin þinn. Það getur verið erfitt. Skoðum tvær ástæður fyrir því.

Í fyrsta lagi getur verið freistandi að loka augunum fyrir vandamálinu og gera ekkert í því, kannski vegna þess að okkur finnst óþægilegt að tala um það.b Evodía og Sýntýke voru kristnar systur sem voru ósáttar hvor við aðra. Líklega stóð ósættið nokkuð lengi því að Páll postuli frétti af því alla leið til Rómar. Hann hvatti þær til að gera það sem þyrfti til að leysa úr ágreiningnum. (Fil. 4:2) Þær náðu sáttum og voru áfram vinkonur af því að þær sýndu auðmýkt, töluðu saman og voru fúsar til að fyrirgefa.

Í öðru lagi ætlast maður kannski til að hinn aðilinn viðurkenni að hann eigi sök að máli. En það er mikilvægara að endurheimta vináttuna en að sanna hverjum er um að kenna. Læknir sem meðhöndlar beinbrot einbeitir sér að því að laga beinbrotið en ekki að því hvað olli skaðanum. Ekki hugsa um hver á sökina þegar þú talar við vin þinn. Minntu þig heldur á hversu verðmæt vinátta ykkar er og einbeittu þér að því sem þú getur gert til að endurheimta gott samband.

Hvernig væri að tala við bróður þinn eða systur strax í dag til að reyna að bæta skaðann og endurheimta vináttuna? „Verið ekki reið fram yfir sólsetur.“ (Ef. 4:26) Með því að bregðast fljótt við til að bæta skaðann stuðlar þú að „einingu andans í bandi friðarins“. – Ef. 4:1–3.

a Smávægileg missætti ættu trúsystkini að leysa sín á milli og þau ættu að vera fús til að fyrirgefa. (Matt. 5:23, 24) Ef ágreiningurinn er alvarlegur ætti að fylgja ráðunum í Matteusi 18:15, 16. Ef það skilar ekki árangri gæti þurft að leita eftir aðstoð öldunga. – Matt. 18:17.

b Ef trúbróðir eða -systir særir okkur eða móðgar en það skaðar ekki vináttuna gætum við einfaldlega ákveðið að fyrirgefa og gleyma. – Orðskv. 26:20.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila