Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w26 júní bls. 8–13
  • Varðveitum vináttu við bræður og systur

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Varðveitum vináttu við bræður og systur
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • EIGINLEIKAR GUÐI AÐ SKAPI HJÁLPA OKKUR AÐ VARÐVEITA VINÁTTU
  • ÞEGAR VIÐ ERUM ÓSAMMÁLA
  • ÓLÍKIR PERSÓNULEIKAR
  • ÞEGAR TRÚSYSTKINI OKKAR EIGA ERFITT
  • Að eiga vini í kærleikslausum heimi
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2009
  • Það er gott að styrkja vináttuböndin hvert við annað
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
  • Svaraðu eftirfarandi spurningum
    Dagskrá svæðismóts með farandhirði 2025-2026
  • Líkjum eftir auðmýkt Jehóva
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
w26 júní bls. 8–13

17.–23. ÁGÚST 2026

SÖNGUR 90 Gefum gætur hvert að öðru

Varðveitum vináttu við bræður og systur

‚Íklæðist innilegri samúð, góðvild, auðmýkt, hógværð og þolinmæði.‘ – KÓL. 3:12.

Í HNOTSKURN

Við fáum ráð til að takast á við aðstæður sem gætu stofnað vináttunni við trúsystkini okkar í hættu.

1. Hvar finnum við sanna vini?

„LÍFIÐ er erfitt ef göngum við ein, síðustu dögunum á. Jehóva veit vel að vinátta hrein, hjálpar mér marki að ná.“ Tengir þú við þessar fyrstu ljóðlínur í söngnum „True Friends“ (Sannir vinir)? Jehóva blessar okkur með sönnum vinum meðal þjóna sinna. (Sálm. 119:63) Við sem þjónum Jehóva erum eins og fjölskylda og við elskum hvert annað.

2. Hvers konar vináttu viljum við rækta við bræður okkar og systur?

2 Við viljum eignast nána og trygga vini í söfnuðinum en ekki eiga yfirborðslega vináttu við bræður og systur. Við erum í fjölskyldu þeirra sem tilbiðja Jehóva og elska hann og Jesú, og þessi kærleikur sameinar okkur. (Jóh. 13:35) En slík vinátta kemur ekki af sjálfu sér. Við þurfum að hafa fyrir því að eignast nána vini. En þar sem við erum öll ófullkomin getur stundum verið erfitt að varðveita vináttuna.

3. Hvers vegna getur verið erfitt að varðveita vináttu?

3 Það er eðlilegt að við séum ekki jafn náin öllum. Við erum kannski nánari sumum vegna þess að þeir eru með svipuð áhugamál og við eða hugsa svipað og við. En okkur getur fundist erfiðara að rækta vináttuna við aðra bræður og systur í söfnuðinum. Stundum greinir okkur á og þá getur reynt á vináttuna. Persónuleikar okkar geta verið svo ólíkir að okkur finnst við engan veginn eiga saman. Og það getur reynt mjög á vináttuna þegar trúsystkini okkar líður illa líkamlega eða tilfinningalega. Í þessari námsgrein skoðum við hvernig fordæmi Jesú getur hjálpað okkur að varðveita vináttuna þegar á reynir. En lítum fyrst á hvernig eiginleikar sem eru Guði að skapi geta hjálpað okkur að varðveita vináttu við trúsystkini.

EIGINLEIKAR GUÐI AÐ SKAPI HJÁLPA OKKUR AÐ VARÐVEITA VINÁTTU

4. Hvernig getum við styrkt vináttuböndin?

4 Til að styrkja vináttuna við bræður og systur þurfum við að leita að því góða í fari þeirra. Þegar við verjum tíma með þeim erum við minnt á góða eiginleika þeirra. Pál postula langaði til að verja tíma með trúsystkinum sínum. Hann skrifaði Þessaloníkumönnum: ‚Við gerðum allt sem við gátum til að hitta ykkur augliti til auglitis.‘ (1. Þess. 2:17) Mörgum finnst ekkert koma í staðinn fyrir að hittast í eigin persónu til að styrkja vináttuböndin. Við fáum mörg tækifæri til þess í boðuninni, á samkomum og á mótum. En þegar koma upp vandamál á milli okkar getur þurft meira en að hittast til að leysa málin.

5. Hvað getur hjálpað okkur að varðveita vináttuna þegar reynir á? Lýstu með dæmi. (Kólossubréfið 3:12)

5 Eiginleikar Guði að skapi geta hjálpað okkur að varðveita vináttu þegar reynir á. (Lestu Kólossubréfið 3:12.) Þegar við ræktum með okkur auðmýkt, þolinmæði, góðvild, og samúð eigum við auðveldara með að leysa vandamál sem reyna á vináttuna, rétt eins og bílvél gengur mjúklega þegar hún er smurð. Lítum á þrennt sem getur reynt á í samskiptum trúsystkina. Við skoðum jafnframt hvernig Jesús sýndi auðmýkt, þolinmæði, góðvild og samúð, og hvernig fordæmi hans hjálpar okkur að vera sannir vinir.

ÞEGAR VIÐ ERUM ÓSAMMÁLA

6. Hvernig getur ágreiningur stofnað vináttu í hættu?

6 Hvers vegna reynir það á? Þegar ósætti verður eru yfirleitt báðir sannfærðir um að þeir hafi rétt fyrir sér. Hugsum okkur tvo bræður sem eru ósammála um hvernig sé best að skipuleggja boðunina fyrir starfshópinn. Hvorum um sig finnst sín tillaga sú besta. Geturðu séð fyrir þér hvernig þessi litli ágreiningur getur undið upp á sig og stofnað vináttu þeirra í hættu? Stolt gæti farið að hafa áhrif á þá. Ef þeir ræða ekki málin og útkljá þau gætu þeir orðið gramir hvor út í annan. Með tímanum gætu þeir fjarlægst og vináttan kólnað – allt út af einhverjum smámunum.

7. Hvernig kenndi Jesús lærisveinunum að auðmýkt væri nauðsynleg til að leysa ágreining?

7 Lærum af auðmýkt Jesú. Hann kenndi lærisveinunum að auðmýkt væri nauðsynleg til að leysa ágreining. Lærisveinarnir höfðu um tíma verið að metast um hver þeirra væri mestur. Jesús útskýrði fyrir þeim að þeir þyrftu að líta á aðra sem sér meiri til að breyta þessu rótgróna viðhorfi. (Matt. 20:25–28) Hann var að kenna þeim auðmýkt. Og jafnvel kvöldið fyrir dauða sinn gaf Jesús þeim fordæmi með því að þvo fætur þeirra, en það var venjulega hlutverk þjóns. (Jóh. 13:3–5, 12–16) Með því sýndi hann þeim hvernig þeir gætu varðveitt vináttuna sín á milli. Ef þeir litu á aðra sem sér meiri væri líklegra að þeir gæfu eftir þegar þá greindi á. Þeir ættu auðveldara með að vera nánir vinir, jafnvel þegar þeir hefðu ólíkar skoðanir.

8. Hvernig getur auðmýkt hjálpað þér að varðveita vináttu við bræður og systur þegar þið eruð ósammála? (Kólossubréfið 3:13) (Sjá einnig myndir.)

8 Hvernig geturðu varðveitt vináttusambönd? Auðmýkt auðveldar okkur að horfa fram hjá minni háttar ágreiningi og vera fús til að fyrirgefa. (Lestu Kólossubréfið 3:13.) Þegar við erum auðmjúk eigum við auðveldara með að varðveita vináttusambönd með því að ákveða að bregðast ekki illa við ágreiningi. (Sálm. 4:4) Og þó að særandi orð hafi fallið er gott að minna sig á að við segjum öll eitthvað sem við sjáum eftir. (Préd. 7:21, 22) Spyrðu sjálfan þig: Hvort skiptir mig meira máli, að hafa rétt fyrir mér eða varðveita vináttuna? Þú gætir einfaldlega ákveðið að gefa eftir. Leyfðu þér að sleppa takinu og halda áfram, án þess að taka málið upp aftur.

Myndir: Eldri bróðir líkir eftir auðmýkt Jesú. 1. Jesús þvær fætur eins af postulunum. 2. Eldri bróðir hlustar efins á yngri bróður sem bendir á svæðiskort safnaðarins. 3. Sömu bræðurnir fara glaðir saman í boðunina.

Auðmýkt auðveldar okkur að horfa fram hjá minni háttar ágreiningi og vera fús til að fyrirgefa. (Sjá 8. grein.)a


9. Hvernig kemur auðmýkt að gagni ef ágreiningurinn heldur áfram? (Orðskviðirnir 17:9)

9 Auðmýkt kemur líka að gagni ef ágreiningur heldur áfram. Ekki fara út í deilur til að réttlæta þína skoðun. (Lestu Orðskviðina 17:9; 1. Kor. 6:7) Það er gott að setja sér það markmið að halda í vináttuna. Mörgum hefur tekist þetta með því að ræða vinsamlega við vin sinn til að greiða úr málunum. (Sálm. 34:14) Þú gætir sagt: Við höfum verið vinir lengi. Eigum við ekki að ræða málin? Vertu tilbúinn að viðurkenna þinn hlut í ósættinu og ekki hunsa særðar tilfinningar vinar þíns. Vertu tilbúinn að biðjast afsökunar. Sýndu auðmýkt og vertu fús til að fyrirgefa ef vinur þinn biðst fyrirgefningar. (Lúk. 17:3, 4) Mundu að markmiðið er ekki að komast að því hvor ykkar hafði rétt fyrir sér heldur að sættast og halda áfram að vera vinir. – Orðskv. 18:24.

ÓLÍKIR PERSÓNULEIKAR

10. Hvers vegna getur verið erfitt að varðveita vináttuna?

10 Hvers vegna reynir það á? Við getum átt erfitt með að halda í vináttu við bræður og systur sem eru ólík okkur. Sumir hafa eiginleika eða ávana sem pirra okkur. Aðrir hegða sér kannski á einhvern hátt sem okkur finnst óþægilegt. Þeir gera það kannski vegna þess að þeir hafa upplifað eitthvað erfitt áður eða vegna þess að þeir koma úr menningu þar sem fólk er annaðhvort opnara heldur en við eða lokaðra. Og svo erum við kannski bara ólíkir persónuleikar – við mannblendin og þeir ekki, eða öfugt.

11. Hvernig gat Jesús varðveitt vináttu við þá sem voru ólíkir honum að eðlisfari?

11 Lærum af þolinmæði Jesú. Hann varðveitti vináttu við þá sem voru ólíkir honum. Til dæmis sýndu postularnir Jakob og Jóhannes metnaðargirni þegar þeir báðu um háar stöður í ríki Guðs. (Mark. 10:35–37) Jesús hafði á hinn bóginn sýnt auðmýkt og yfirgefið háa stöðu og heiður á himnum til að koma til jarðar. (Fil. 2:5–8) Hugsaðu þér hversu ólíkur Jesús var þeim. Hann var samt þolinmóður við Jakob og Jóhannes rétt eins og við aðra.

12. Hvað auðveldaði Jesú að vera þolinmóður við vini sína?

12 Jesús hafði ekki óraunhæfar væntingar til vina sinna. Hann vissi að beiðni Jakobs og Jóhannesar um háar stöður endurspeglaði samkeppnisanda sem var ríkjandi hjá mörgum lærisveinanna. (Mark. 9:34) Jesús ólst upp í sama trúarlega umhverfi og þeir. Þar var mikið lagt upp úr stöðu og virðingu. Hann skildi því hvernig þeir hugsuðu. Hann var samt þolinmóður við þá og gaf þeim tíma til að uppræta stolt og metnaðargirni sem þeir höfðu alið með sér í gegnum árin. – Mark. 10:42–45.

13. Hvernig auðveldar þolinmæði okkur að halda í vináttu við bræður og systur? (Efesusbréfið 4:2)

13 Hvernig geturðu varðveitt vináttusambönd? Haltu áfram að rækta með þér þolinmæði með því að gera þitt besta til að umbera eiginleika í fari annarra sem fara í taugarnar á þér. (Orðskv. 14:29) Við höfum öll ákveðin persónueinkenni sem eru í sjálfum sér ekki slæm en gætu farið í taugarnar á einhverjum. Við kunnum vel að meta það þegar aðrir samþykkja okkur eins og við erum. (Lestu Efesusbréfið 4:2.) Það er líka mikilvægt fyrir okkur að vera raunsæ og leyfa öðrum að vera þeir sjálfir. Hugsaðu til dæmis um hversu mikið þeir sem eru rólegir og feimnir þurfa að hafa fyrir því að vera í samskiptum við aðra. Og sýndu þeim líka þolinmæði sem eru opnir og tjá sig mikið. Við getum ekki reiknað með að vera nánir vinir allra. En við þurfum að muna að þjónar Jehóva geta unnið vel saman þó að þeir séu mjög ólíkir persónuleikar.

14. Hverju tökum við frekar eftir ef við erum þolinmóð?

14 Þolinmæði auðveldar okkur að einbeita okkur að því góða í fari bræðra okkar og systra. Þá getum við verið vinir þótt við höfum ólíka persónuleika. Til dæmis sýndu Jakob og Jóhannes eigingirni þegar þeir báðu um háar stöður í ríki Guðs. En það sýndi að ríki Guðs var þeim raunverulegt. Jesús tók eftir því og kunni að meta trú þeirra. Við líkjum eftir Jesú og Jehóva þegar við leitum að því góða í fari vina okkar.

15. Hvar fáum við hjálp til að halda í vináttuna við þá sem eru ólíkir okkur?

15 Það besta sem við getum gert til að halda í vináttuna við þá sem eru ólíkir okkur er að biðja Jehóva um hjálp. Reyndu að sjá fyrir þér erfiðar aðstæður sem geta komið upp og biddu Jehóva um að hjálpa þér að halda rónni. Mundu að Jehóva, skapari okkar, skilur að við erum ólíkir einstaklingar. Þegar þú biður geturðu verið viss um að Jehóva viti hvers þú þarfnast til að halda í vináttuna. Og biddu Jehóva að gefa þér anda sinn til að hjálpa þér að hafa stjórn á viðbrögðum þínum þegar reynir á þolinmæðina. – Lúk. 11:13; Gal. 5:22, 23.

ÞEGAR TRÚSYSTKINI OKKAR EIGA ERFITT

16. Hvernig getur það reynt á okkur þegar bræður okkar og systur eiga erfitt?

16 Hvers vegna reynir það á? Þegar bræðrum okkar og systrum líður illa líkamlega eða tilfinningalega finnst okkur kannski óþægilegt hvernig þau bregðast við. Þau draga sig ef til vill inn í skel, verða pirruð eða óútreiknanleg. Þau segja ef til vill eða gera eitthvað sem særir okkur. (Job. 6:2, 3) Við gerum okkur kannski ekki grein fyrir hvað þau eru að ganga í gegnum og ætlumst til of mikils af þeim.

17. Hvað lærum við af því hvernig Jesús kom fram við blinda manninn Bartímeus?

17 Lærum af góðvild og samúð Jesú. Hann sýndi þeim góðvild og samúð sem áttu erfitt, jafnvel þeim sem hann hafði ekki hitt áður. Tökum sem dæmi hvernig hann kom fram við blinda manninn Bartímeus. Þegar Bartímeus heyrði að Jesús átti leið hjá fór hann að hrópa til að ná athygli hans. Einhverjir í mannfjöldanum sögðu honum að þegja. En hann hrópaði bara enn hærra á Jesú vegna þess að hann þráði að hann myndi lækna hann. Sumum í mannfjöldanum fannst þetta greinilega óþægileg uppákoma. En „Jesús kenndi í brjósti um“ hann. (Matt. 20:34; Mark. 10:46–52) Það lýsir hversu innilega samúð hann hafði með honum. Hann talaði hlýlega til Bartímeusar og hrósaði honum fyrir trú hans. Og Jesús gerði kraftverk þegar hann gaf honum sjónina aftur.

18. Hvað ættirðu að gera fyrir vini þína sem líður illa? (1. Þessaloníkubréf 5:14)

18 Hvernig geturðu varðveitt vináttusambönd? Sýndu vinum þínum góðvild og samúð. Þessir hlýlegu eiginleikar gera þér kleift að hughreysta bræður þína og systur sem þjást líkamlega eða tilfinningalega. (Lestu 1. Þessaloníkubréf 5:14.) Mundu að sannur vinur er tilbúinn að hjálpa, sérstaklega „á raunastund“. (Orðskv. 17:17) Slíkur vinur hefur ekki bara samúð með þeim sem þjást heldur gerir hann allt sem hann getur til að veita tilfinningalegan stuðning, uppörvun og hagnýta hjálp.

19. Hvernig getum við sýnt góðvild og samúð? (Sjá einnig myndir.)

19 Hvernig getum við sýnt góðvild og samúð í verki? Þú getur að sjálfsögðu ekki losað trúsystkini við kvöl sína. En þú getur reynt að setja þig í spor vinar þíns. (Matt. 7:12; 1. Pét. 3:8) Hlustaðu af athygli þegar hann lýsir því hvernig honum líður. Og segðu eitthvað hughreystandi þegar það á við. (Orðskv. 12:25) Gættu þess að draga ekki ályktanir um það sem þú veist ekki til fulls. (Orðskv. 18:13) Reyndu að vera þolinmóður við hann og ætlast ekki til of mikils af honum. – Ef. 4:32.

Myndir: Systir huggar aðra systur. 1. Hún hlustar af athygli á vinkonu sína úthella hjarta sínu. 2. Seinna færir hún vinkonu sinni heimabakaðar smákökur.

Sannir vinir hugga með því að sýna samúð og góðvild. (Sjá 19. grein.)


20. Hvernig vinur vilt þú vera?

20 Við kunnum öll að meta að eiga góða vini í söfnuðinum. En við ættum að minna okkur á að við erum ófullkomin og hegðum okkur þess vegna stundum óskynsamlega. Erfið reynsla hefur mótað mörg okkar. Við kunnum því sérstaklega að meta trúsystkini sem varðveita vináttuna með því að vera auðmjúk, þolinmóð, góðviljuð og samúðarfull. Gerum okkar besta til að vera þannig vinir.

HVERNIG GETURÐU VARÐVEITT VINÁTTU VIÐ TRÚSYSTKINI ÞITT …

  • þegar þið eruð ósammála?

  • þegar þið hugsið og gerið hlutina á ólíkan hátt?

  • þegar því líður illa?

SÖNGUR 124 Sýnum tryggð

a MYND: Eldri bróðir og yngri bróðir eru ósammála um hvernig þeir eigi að skipuleggja starfssvæði. Síðar fara þeir ánægðir saman í boðunina.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila