10.–16. ÁGÚST 2026
SÖNGUR 122 Verum staðföst og óbifanleg
Verum Jehóva trú þegar reynir á trú okkar
„Drottinn, til hvers ættum við að fara? Þú hefur orð eilífs lífs.“ – JÓH. 6:68.
Í HNOTSKURN
Við getum verið Jehóva trú, sama hvaða prófraunir við göngum í gegnum.
1, 2. Hvað gerðist þegar Jesús var að kenna í Kapernaúm?
„HVÍLÍKT hneyksli! Hver getur hlustað á svona ræðu?“ (Jóh. 6:60) Þannig brugðust margir af lærisveinum Jesú við því sem hann sagði þegar hann var að kenna í Kapernaúm. Hann hafði sagt: „Ef þið borðið ekki hold Mannssonarins og drekkið blóð hans hafið þið ekki líf í ykkur.“ Hann sagði líka: „Sá sem borðar hold mitt og drekkur blóð mitt hlýtur eilíft líf og ég reisi hann upp á síðasta degi.“ – Jóh. 6:53, 54.
2 Þeir sem hneyksluðust á því sem Jesús sagði hættu að fylgja honum. Trúðu þeir ekki að Jesús væri Messías? Áður en þetta átti sér stað höfðu sumir, þar á meðal lærisveinar Jesú, hrifist svo mikið af því sem hann gerði að þeir sögðu: „Þetta er sannarlega spámaðurinn sem átti að koma í heiminn.“ (Jóh. 6:14) Það er því greinilegt að þessir lærisveinar höfðu trú á Jesú. En þegar á reyndi voru þeir honum ekki trúir.
3. Hvernig brugðust postularnir við því sem Jesús sagði og hvers vegna? (Sjá einnig mynd.)
3 Postularnir brugðust ekki eins við því sem Jesús sagði og þeir sem hneyksluðust. Þegar Jesús spurði þá hvort þeir ætluðu að fara líka svaraði Pétur: „Drottinn, til hvers ættum við að fara? Þú hefur orð eilífs lífs. Við trúum og vitum að þú ert hinn heilagi Guðs.“ (Jóh. 6:68, 69) Tökum eftir að Pétur sagði ekki að hann og hinir postularnir hefðu skilið til fulls hvað Jesús átti við þegar hann sagði að þeir þyrftu að borða hold hans og drekka blóð hans. Þeir kusu að vera honum trúir, óháð því sem þeir skildu á þessum tíma. Það var vegna þess að þeir voru sannfærðir um að Jesús væri „Kristur Guðs“. – Lúk. 9:20, 35.
Margir yfirgáfu Jesú en Pétur og hinir postularnir voru honum trúir. (Sjá 3. grein.)
4. Hvað gæti reynt á trúfesti okkar?
4 Það er ýmislegt sem getur reynt á tryggð okkar við Jehóva. Hvernig bregðumst við til dæmis við þegar við fáum nýjan skilning á biblíuversi eða gerðar eru skipulagslegar breytingar á boðuninni? Og hvað gerum við þegar við eigum erfitt með að skilja af hverju Jehóva leyfir að við þjáumst á einhvern hátt? Það getur líka reynt á trú okkar ef náinn vinur í söfnuðinum særir okkur eða ef okkur finnst einhver sem við berum mikla virðingu fyrir koma illa fram við okkur.
5. Lýstu því hvers vegna trú okkar þarf að vera byggð á sterkum grunni. (Kólossubréfið 1:23)
5 Til að skilja mikilvægi þess að byggja trú okkar á sterkum grunni getum við hugsað okkur hús byggt á jarðskjálftasvæði. Það þarf sterkan grunn til að standa. Trú okkar þarf að sama skapi traustan grunn til að standast prófraunir eins og þær sem eru nefndar í síðustu grein. Ef við höldum áfram að styrkja grunninn að trú okkar getum við þjónað Jehóva trú og staðföst sama hvað dynur á. – 1. Kor. 15:58; lestu Kólossubréfið 1:23.
6. Hvað hjálpaði postulunum að vera trúir Jesú?
6 Hvað hjálpaði postulunum að vera trúir Jesú þegar margir yfirgáfu hann? Þeir voru sannfærðir um að Jehóva ætti skilið að fá tilbeiðslu vegna þess að hann skapaði allt, að Jesús væri sonur Guðs sem „hefur orð eilífs lífs“ og að hann hefði fullan stuðning Jehóva. Í stað þess að velta fyrir okkur hvernig trú okkar getur verið reynd á alls konar vegu skulum við beina athyglinni að þrem staðreyndum sem geta hjálpað okkur að vera Jehóva trú óháð því sem gengur á í lífi okkar: (1) Jehóva er skapari alls. (2) Biblían er innblásin af Jehóva. (3) Jehóva stendur á bak við söfnuð sinn. Við getum staðist hvaða prófraunir sem verða á vegi okkar ef við erum algerlega sannfærð um þetta þrennt.
JEHÓVA ER SKAPARINN
7. Hvað erum við minnt á í Opinberunarbókinni 4:11, en hvað gæti gerst þegar reynir á trú okkar?
7 Lestu Opinberunarbókina 4:11. Þetta vers minnir okkur á að Jehóva er skapari allra hluta. Það eitt og sér sýnir að hann á skilið að fá tilbeiðslu okkar. Og þegar við hugleiðum hversu gríðarlega máttugur hann er sannfærir það okkur um að hann geti bjargað okkur úr hvaða aðstæðum sem er. En Satan hefur fyllt þennan heim með áróðri sem er til þess gerður að fá fólk til að efast um að Guð sé til. Vísindamenn halda því jafnvel fram að lífið hafi kviknað af sjálfu sér. Ef við erum ekki algerlega sannfærð um að Jehóva sé skaparinn og að hann elski okkur gætum við farið að efast um að svo sé og að hann komi okkur til hjálpar þegar erfiðleika ber að garði. – Hebr. 11:6.
8, 9. Hvað ættirðu að gera ef þú ferð að efast um að Jehóva sé skaparinn? (Sjá einnig mynd.)
8 Gerðu eitthvað strax í málinu ef þú ferð að efast um að Jehóva sé skaparinn. Skoðaðu vandlega það sem við höfum gefið út til að sjá þau fjölmörgu rök sem eru fyrir því að Jehóva hafi skapað allt. Það er heilmikið trústyrkjandi efni varðandi þetta í bæklingunum Var lífið skapað? og Uppruni lífsins – fimm áhugaverðar spurningar. Auk þess er að finna enn frekari sannanir í þáttaröðinni „Býr hönnun að baki?“ á jw.org. Jessica er ung systir í Bandaríkjunum. Hún segir: „Þegar ég las bæklinginn Uppruni lífsins sá ég að það eru til sannanir fyrir því að skynsemigæddur skapari sé til. Ég vissi það fyrir, en eftir að hafa skoðað rökin í bæklingnum var það hafið yfir allan vafa í huga mínum.“ Margir hafa líka haft gagn af að lesa bókina Er til skapari sem er annt um okkur? Þú hefur kannski lesið þetta efni. En hvers vegna ekki að gera það aftur?
9 Þú gætir tekið fyrir í næsta sjálfsnámi að skoða staðreyndirnar um að Guð sé til. Það mun ekki einungis styrkja trú þína á að Jehóva sé til heldur líka hjálpa þér að kynnast honum betur. (Rómv. 1:20) Og þú getur nýtt þér það til að hjálpa öðrum sem kunna að efast um að Guð sé til. Jehóva hefur gefið okkur feikinóg af sönnunum fyrir því að hann sé skapari okkar.
Stjörnuþoka: IAC/RGO/David Malin Images; fiskur og bíll: Mercedes-Benz USA; flugvél: Kristen Bartlett/University of Florida
Þú hefur kannski þegar lesið bæklinginn Var lífið skapað? Hvernig væri að lesa hann aftur? (Sjá 8. grein.)
BIBLÍAN ER INNBLÁSIN AF JEHÓVA
10. Hvernig lítum við á Biblíuna? (2. Tímóteusarbréf 3:16, 17)
10 Lestu 2. Tímóteusarbréf 3:16, 17. Biblían hefur að geyma boðskap Jehóva til mannanna. Hún svarar mikilvægum spurningum eins og um hvernig lífið hafi orðið til, hver sé tilgangur lífs okkar og hvað Jehóva vilji að við gerum. Við trúum því að hann sé höfundur Biblíunnar en það gerir hana að mikilvægustu bókinni í lífi okkar. Við viljum fullvissa okkur um að við skiljum orð hans og gera okkar besta til að fara eftir því.
11. Hvað sannfærir þig um að Biblían sé innblásin af Guði?
11 Hvers vegna erum við sannfærð um að Biblían sé innblásin af Jehóva? Það eru margar ástæður fyrir því. Hún er sögulega nákvæm. (Lúk. 3:1, 2) Hún er líka nákvæm þegar hún lýsir sköpunarverkinu. (Job. 26:7) Biblían er útbreiddasta bók allra tíma þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Satans til að útrýma henni. Um 40 menn skrifuðu hana á um það bil 1.600 árum en samt er innra samræmi í boðskap hennar. Ráð hennar hafa staðist tímans tönn og hjálpað milljónum manna í daglega lífinu. (Orðskv. 13:20; 15:21; Matt. 7:12) Og fjölmargir spádómar Biblíunnar hafa ræst. Það er enn ein sönnunin fyrir því að hún sé áreiðanleg. (Jós. 23:14) Við getum verið algerlega viss um að Biblían sé innblásin af Guði!
12. Hvað ættum við að gera ef við byrjum að finna fyrir efasemdum um að Biblían sé innblásin af Guði?
12 Hvað ættum við að gera ef við byrjum að finna fyrir efasemdum um að Biblían sé innblásin af Guði? Við ættum að gera vandamálið að bænarefni og breyta í samræmi við bænir okkar. Ungur bróðir sem heitir Jordan og er alinn upp sem vottur segir: „Ég trúi ekki sjálfkrafa öllu sem mér er sagt. Ég þarf að rannsaka það sjálfur. Ég viðurkenni að stundum vakna hjá mér efasemdir. Þegar það gerist legg ég mig fram um að rannsaka ritin okkar til að fá svör við spurningum mínum og losna við efasemdirnar.“ Þegar við höldum áfram að styrkja þá sannfæringu að Jehóva hafi innblásið Biblíuna styrkjum við um leið grunninn að trú okkar. – 1. Kor. 3:12, 13.
JEHÓVA STENDUR Á BAK VIÐ SÖFNUÐ SINN
13. Hvað ættum við að gera ef við förum að efast um hverjir séu þjónar Guðs nú á dögum?
13 Ef við förum að efast um að Jehóva standi á bak við söfnuð Votta Jehóva ættum við ekki að leyfa slíkum efasemdum að grafa um sig. Við getum losað okkur við þær með því að hugleiða svörin við þessum spurningum: Hverjir eru að gera sitt besta til að lifa í samræmi við meginreglur Biblíunnar? Hverjir byggja trú sína algerlega á Biblíunni? (2 Tim. 4:3, 4) Hverjir eru að gera vilja Jehóva nú á dögum? – Matt. 7:20, 21.
14. Hvernig uppfylla Vottar Jehóva spádóminn í Matteusi 24:14?
14 Þegar við hugleiðum hverjir gera vilja Guðs nú á dögum getum við spurt okkur: Hverjir eru að sinna boðuninni sem Jesús sagði að myndi eiga sér stað á síðustu dögum? (Matt. 24:14) Það fer ekki á milli mála að Guð notar söfnuð sinn – Votta Jehóva – til þess. Aðeins við boðum fagnaðarboðskapinn um ríki Guðs í meira en 240 löndum. Við höfum sinnt þessu starfi í meira en 100 ár. Ekkert annað starf hefur verið okkur mikilvægara. – Matt. 28:19, 20.
15. Hvaða þátt eiga Vottar Jehóva í því að helga nafn Guðs nú á dögum? (Matteus 6:9; Jesaja 43:10)
15 Lestu Matteus 6:9 og Jesaja 43:10. Við erum kennd við nafn Guðs, Jehóva, og erum stolt af því að bera nafnið Vottar Jehóva. Fæstir þekkja nafn hans nú á dögum en við höfum gefið út biblíuþýðingu þar sem nafn Guðs kemur fyrir alls staðar þar sem það á heima. Nafnið er að finna meira en 7.000 sinnum í megintexta Nýheimsþýðingar Biblíunnar.
16. Hvers vegna getum við sagt að vottar Jehóva hlýði fyrirmælunum í Jóhannesi 13:34, 35? (Sjá einnig mynd.)
16 Lestu Jóhannes 13:34, 35. Bræðralag okkar er nútímakraftaverk. Þar ríkir kærleikur og eining sem sker sig úr í fjandsamlegum og sundruðum heimi. Við komum frá öllum heimshornum og erum með ólíkan bakgrunn. Við náum samt að hafa frið og kærleika á meðal okkar. Hefurðu einhvern tíma heimsótt annan söfnuð Votta Jehóva þegar þú ert á ferðalagi? Hugsaðu um kærleikann og eininguna meðal bræðra og systra næst þegar þú gerir það. Þá sérðu skýrt að Jehóva er sannarlega að nota söfnuð sinn til að gera vilja sinn. Þegar við höfum þetta í huga hjálpar það okkur að vera trúföst Jehóva í hvaða prófraun sem er.
Bræðralag okkar er nútímakraftaverk. Þar ríkir kærleikur og eining. (Sjá 16. grein.)a
YFIRGEFUM JEHÓVA ALDREI
17, 18. Hvaða erfiðleika gætum við þurft að takast á við, en hvað getum við sagt með fullu trausti?
17 Við lifum á hættulegum og erfiðum tímum og þurfum þar af leiðandi öll að glíma við einhverja erfiðleika. (2. Tím. 3:1, 13) Við getum þurft að takast á við mál sem reyna á okkur. Söfnuður Guðs gæti tekið ákvarðanir sem við eigum erfitt með að skilja. Eða bróðir eða systir gæti misskilið okkur eða sært. Við sjáum kannski ekki lausn á vandamálum okkar strax og fáum ekki svör við því sem truflar okkur.
18 Þessar aðstæður geta komið okkur í uppnám. En við getum alltaf verið Jehóva trú ef við erum sannfærð um að hann sé skaparinn, Biblían sé orð hans og að Vottar Jehóva séu söfnuður hans. Við getum sagt við Jehóva eins og Pétur sagði við Jesú: „Til hvers ættum við að fara? Þú hefur orð eilífs lífs.“
SÖNGUR 123 Verum hlýðin skipan Guðs
a MYND: Mæðgur á ferðalagi í rútu eru glaðar að sjá trúsystkini sín í boðuninni.