Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w26 febrúar bls. 32
  • Óbadía – þroskaðu með þér djúpa lotningu fyrir Jehóva

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Óbadía – þroskaðu með þér djúpa lotningu fyrir Jehóva
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
  • Svipað efni
  • Trú og guðsótti veitir hugrekki
    Námsgreinar úr Varðturninum
  • Hvers vegna ættum við að óttast Jehóva?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2023
  • Höfuðþættir bóka Óbadía, Jónasar og Míka
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2007
  • Viðvaranir Guðs sem snerta þig
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1989
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
w26 febrúar bls. 32

BIBLÍUPERSÓNA

Óbadía – þroskaðu með þér djúpa lotningu fyrir Jehóva

Óbadía var hallarráðsmaður hins vonda konungs Akabs sem leyfði illskufullri Baalsdýrkun að breiðast út í landinu. En Óbadía bar djúpa lotningu fyrir Jehóva „frá unga aldri“ og óttaðist því að vanþóknast honum. (1. Kon. 18:1–13) Þegar Jesebel fyrirskipaði að allir spámenn Jehóva skyldu drepnir vissi Óbadía að hann þyrfti að vera hugrakkur og gera eitthvað til að hjálpa þeim. Það var hættulegt að fela einn spámann en Óbadía faldi 100 þeirra og sá þeim fyrir mat á meðan hungursneyð ríkti. Við getum rétt ímyndað okkur hversu erfitt hefur verið að leyna þeim fyrir hundruðum falsspámanna í þjónustu konungs og drottningar. – 1. Kon. 18:19.

Hvað getum við lært af þessum guðhrædda manni? Þótt Óbadía hafi óttast Akab var djúp lotning hans fyrir Guði sterkari. Hún gaf honum hugrekki til að hætta lífi sínu til að vernda bræður sína. Við þurfum líka að þroska með okkur djúpa lotningu fyrir Jehóva, sérstaklega ef við búum þar sem sönn trú er bönnuð. Slík lotning gerir okkur betur í stakk búin til að styðja bræður og systur sem glíma við erfiðleika.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila