Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w26 febrúar bls. 20–25
  • Ertu búinn undir erfiðleika eftir skírn?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Ertu búinn undir erfiðleika eftir skírn?
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • BRÓÐIR EÐA SYSTIR MÓÐGAR ÞIG
  • ÞÚ FERÐ AÐ SAKNA ÞESS SEM ÁÐUR VAR
  • AÐRIR YFIRGEFA JEHÓVA
  • Jehóva „læknar hina sorgmæddu“
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2024
  • Viðurkennum auðmjúk að við vitum ekki allt
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
  • Mundu að Jehóva er „lifandi Guð“
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2024
  • Það er gott að styrkja vináttuböndin hvert við annað
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
w26 febrúar bls. 20–25

27. APRÍL–3. MAÍ 2026

SÖNGUR 99 Milljónir bræðra

Ertu búinn undir erfiðleika eftir skírn?

„Hjálpaðu mér að ganga á vegum þínum.“ – SÁLM. 17:5.

Í HNOTSKURN

Við tökum til umræðu hvernig þeir sem láta skírast geta búið sig undir hugsanlega erfiðleika eftir skírn.

1, 2. Hvað getum við gert til að halda trúnni sterkri þegar við mætum erfiðleikum? Lýstu með dæmi.

VIÐ gerum ráð fyrir að heimur Satans geri okkur erfitt fyrir. Jesús var raunsær þegar hann varaði fylgjendur sína við og sagði: „Óhjákvæmilegt [er] að eitthvað verði fólki til hrösunar.“ (Matt. 18:7) Við þurfum þess vegna að vera búin undir erfiðleika. Það getur meðal annars verið í samskiptum við trúsystkini.

2 Tökum dæmi. Þjónar Jehóva hafa verið hvattir til að búa sig undir náttúruhamfarir. Hvernig gerum við það? Fyrst þurfum við að vita hvers konar hamfarir gætu orðið þar sem við búum. Það er sérstaklega mikilvægt ef við erum nýflutt á svæðið. Síðan þurfum við að gera áætlun um hvernig við bregðumst við. (Orðskv. 21:5) Á líkan hátt getum við séð fyrir hugsanlega erfiðleika í sannleikanum og undirbúið okkur svo að við séum viðbúin ef þeir verða á vegi okkar. Með því móti setja erfiðleikarnir okkur síður úr jafnvægi og skaða ekki samband okkar við Jehóva. (Sálm. 17:5) Skoðum þrennt sem getur valdið okkur erfiðleikum og hvernig við getum búið okkur undir það.a

BRÓÐIR EÐA SYSTIR MÓÐGAR ÞIG

3. Hvaða vandamál gætum við þurft að takast á við í söfnuðinum?

3 Manstu hvernig þér leið þegar þú komst í fyrsta sinn á samkomu og varðst vitni að kærleikanum meðal þjóna Jehóva? Varstu sannfærður um að þú hefðir fundið sannleikann? (Jóh. 13:35; Kól. 3:12) Það var reynsla systur sem heitir Blanca.b En eftir að hún lét skírast gerðist nokkuð sem hún átti ekki von á. Hún segir: „Systir í söfnuðinum kom illa fram við mig. Ég veitti því líka athygli að hún setti út á aðra bræður og systur. Þetta kom mér í opna skjöldu. Mér hafði verið kennt að vottar Jehóva leituðust við að vera friðsamir og kærleiksríkir.“ Bræður okkar og systur reyna auðvitað að þroska með sér kristilega eiginleika en þau eru ekki fullkomin. (Ef. 4:23, 24; 1. Jóh. 1:8) Fyrr eða síðar á eitthvert þeirra líklega eftir að gera eða segja eitthvað sem særir þig. (Jak. 3:8) Því miður hefur slíkt orðið til þess að sumir hafa hætt að þjóna Jehóva.

4. Hvað getur hjálpað okkur að vera viðbúin ef bróðir eða systir móðgar okkur? (Efesusbréfið 4:32)

4 Hvað geturðu gert til að vera viðbúinn ef trúsystkini særir þig eða móðgar? Temdu þér að fara eftir ráðunum í Efesusbréfinu 4:32. (Lestu.) Ef þú leggur þig fram um að sýna góðvild og samúð forðastu örugglega óþarfa árekstra við aðra. Einsettu þér að vera fús að fyrirgefa öðrum ef þeir gera á hlut þinn. Hvað getur auðveldað þér að gera það? Hugsaðu um hversu oft þú biður Jehóva að fyrirgefa þér það sem þér verður á og hversu fúslega hann gerir það. (Matt. 6:12) Ef þú kannt að meta hversu örlátur Jehóva er þegar hann fyrirgefur þér áttu auðveldara með að fyrirgefa öðrum.

5. Hvaða meginreglu Biblíunnar er gott að muna þegar einhver móðgar okkur? (Orðskviðirnir 19:11) (Sjá einnig myndir.)

5 Lestu Orðskviðina 19:11. Í Biblíunni segir að skynsemic auðveldi okkur að hafa hemil á reiði. Rima, sem hefur verið skírð í nokkur ár, hefur haft gagn af þessari meginreglu. Hún segir: „Þegar bræður og systur gera eitthvað særandi eða móðgandi rifja ég upp Orðskviðina 19:11. Ég hugsa um aðstæður þeirra og bakgrunn og reyni að skilja hvers vegna þau höguðu sér þannig. Ég býð þeim líka með mér í boðunina. Þá kynnist ég þeim betur.“ Þetta eru góð ráð. Við getum líka kynnst trúsystkinum okkar betur núna. Því betur sem þú skilur þau, því auðveldara áttu með að fyrirgefa þeim ef þau særa þig einhvern tíma.

Myndir: 1. Bróðir móðgast yfir því hvernig annar bróðir talar við hann þegar þeir vinna viðhaldsvinnu við ríkissal utandyra. 2. Seinna nýtur hann þess að vera með bróðurnum í boðuninni hús úr húsi.

Ef eitthvað hefur komið upp á milli þín og bróður eða systur í söfnuðinum skaltu reyna að fara með honum eða henni í boðunina. (Sjá 5. grein.)


6. Hvað auðveldar okkur að eiga gott samband við aðra í söfnuðinum?

6 Hvað geturðu gert til að eiga gott samband við aðra í söfnuðinum? Horfðu á góða eiginleika bræðra og systra þegar þú kynnist þeim. (Samanber Orðskviðina 10:12; Rómv. 12:10; Fil. 2:2, 3) Taktu eftir hvernig það hjálpaði nýlega skírðum bróður sem heitir Mark. Þegar hann fór að verja meiri tíma með bræðrum og systrum í söfnuðinum tók hann eftir ýmsum göllum þeirra. Hvað hjálpaði honum að láta það ekki koma sé úr jafnvægi? Hann segir: „Ég áttaði mig á að ég horfði of mikið á minniháttar galla sem bliknuðu í samanburði við allt það ranga sem viðgengst í heiminum. Mér varð ljóst að ég ætti ekki að einblína á ófullkomleika trúsystkina minna. Ég fór því að horfa á góða eiginleika þeirra í staðinn.“ Ef þú gerir eins muntu njóta þess að eiga gott samband við aðra í söfnuðinum.

ÞÚ FERÐ AÐ SAKNA ÞESS SEM ÁÐUR VAR

7. Hvað gæti orðið til þess að við færum að sakna þess sem við sögðum skilið við?

7 Þegar þú kynntist sannleikanum fannstu án efa til léttis að snúa baki við illum heimi Satans. Þér finnst kannski ótrúlegt að einhver geti saknað heimsins. En þegar þú gengur í gegnum erfiðleika gætirðu farið að hugsa til baka, og jafnvel þrá sumt af því sem þú sagðir skilið við þegar þú byrjaðir að þjóna Jehóva. (Samanber 4. Mósebók 11:4–6.) Sum trúsystkini hafa til dæmis sagt skilið við virta stöðu sem krafðist mikils tíma. Önnur hafa kannski átt nána vini sem hættu að umgangast þau þegar þau fóru að kynna sér Biblíuna. Og enn önnur trúsystkini hafa ef til vill sigrast á slæmum ávana sem veitti þeim ákveðna ánægju þó að hann væri óhreinn. Það væri sorglegt ef þjónn Jehóva leyfði einhverju úr fortíðinni að verða til þess að hann fjarlægðist Jehóva. Hvað geturðu gert til að þú snúir aldrei til baka til þess sem þú sagðir skilið við, sama hvaða erfiðleikar verða á vegi þínum?

8. Hvað lærum við af Abraham og Söru?

8 Í Biblíunni eru frásögur af trúföstum þjónum Guðs sem hefðu getað farið að sakna þess sem þeir sögðu skilið við. Til dæmis hlýddu Abraham og Sara fyrirmælum Jehóva um að yfirgefa víggirtu borgina Úr og búa í tjöldum. (Hebr. 11:8, 9) Þau hafa eflaust munað eftir þægindunum í Úr. En ef þau hefðu „látið hugann dvelja við staðinn“ eða horft löngunaraugum til fortíðarinnar hefði þeim getað þótt freistandi að snúa til baka í þægindin. Þess í stað horfðu þau til framtíðarinnar. – Hebr. 11:15, 16.

9. Hvaða augum leit Páll postuli það sem hann hafði sagt skilið við? (Filippíbréfið 3:7, 8, 13)

9 Páll postuli breytti um stefnu í lífinu til að þjóna Jehóva. Áður en hann varð kristinn hafði hann hlotið menntun hjá Gamalíel sem var mikilsvirtur lagakennari. (Post. 22:3) Páll hefði getað orðið háttsettur trúarleiðtogi í gyðingdóminum. (Gal. 1:13, 14) En þegar hann tók við fagnaðarboðskapnum sagði hann skilið við þessa framabraut. Var líf hans alltaf dans á rósum eftir að hann skipti um trú? Ekki aldeilis! Hann var barinn, fangelsaður og hataður af löndum sínum. (2. Kor. 11:23–26) Hann hefði getað einblínt á erfiðleikana og borið líf sitt saman við lífið áður og ályktað að hann hefði verið betur settur þá. Þess í stað hafði hann skýrt í huga hversu mikils heiðurs hann naut að fá að þjóna Jesú Kristi og eiga stórkostlega framtíð fyrir höndum. Páll var sannfærður um að slík blessun væri langtum dýrmætari en það sem hann hafði fórnað. – Lestu Filippíbréfið 3:7, 8, 13.

10. Hvað ættum við oft að hugsa um? (Markús 10:29, 30) (Sjá einnig myndir.)

10 Hvað lærum við? Ef þú ferð að hugsa um það sem þú sagðir skilið við til að þjóna Jehóva, mundu þá líka hvers vegna þú sagðir skilið við það. (Préd. 7:10) Berðu saman það sem þú sagðir skilið við og það sem þú hefur fengið með því að koma inn í sannleikann. Skapari alheimsins er náinn vinur þinn. (Orðskv. 3:32) Þú tilheyrir ástríkri fjölskyldu Jehóva sem er annt um þig. (Lestu Markús 10:29, 30.) Og þú átt dásamlega framtíðarvon. (Jes. 65:21–23) Ef þú hugsar oft um blessunina sem þú nýtur vegna þess að þú þjónar Jehóva eru minni líkur á að þú saknir þess sem þú sagðir skilið við.

Í stað þess að horfa löngunaraugum til þess sem þú hefur snúið baki við skaltu vera ákveðinn í að hafa ánægju af boðuninni sem Guð hefur falið þér. (Sjá 10. grein.)e


11. Hvað getum við lært af Rosemary?

11 Systir sem heitir Rosemary kynntist sannleikanum þegar hún var á sextugsaldri. Hvað gerði hún til að sakna ekki þess sem hún sagði skilið við? Hún segir: „Til að byrja með saknaði ég jólanna því að þetta var svo skemmtilegur tími með fjölskyldunni. Mér fannst svo gaman að gefa fólkinu mínu gjafir. Krakkarnir ljómuðu af ánægju þegar þeir tóku upp pakkana við jólatréð.“ Hvað gerði hún? Rosemary segir: „Mér tókst að finna eitthvað í staðinn fyrir jólin. Ég býð fjölskyldunni heim á einhverjum öðrum tíma á hverju ári. Ég gef þeim gjafir og segi þeim hversu dýrmæt þau eru mér.“ Rosemary þurfti að takast á við fleira. Hún segir: „Þegar ég kynntist sannleikanum yfirgáfu gömlu vinirnir mig. Stundum saknaði ég þeirra og var einmana.“d Hvað hjálpaði henni? Hún bauð mismunandi systrum í boðunina með sér. Hún segir: „Þannig hef ég eignast nýja vini sem mér þykir mjög vænt um.“ Hvað getum við lært af Rosemary? Það getur verið að þú saknir einhvers sem veitti þér ánægju áður en þú kynntist sannleikanum. En þú getur án efa fundið eitthvað í staðinn sem er enn betra. (Fil. 4:8, 9) Og mundu að Jehóva gefur þér alltaf miklu meira en þú missir.

AÐRIR YFIRGEFA JEHÓVA

12. Hvað getur gerst í söfnuðinum sem reynir verulega á okkur?

12 Þegar þú varðst vottur fannstu trúlega til léttis að segja skilið við spilltan heim og komast í skjól í söfnuði Jehóva. (Jes. 65:14) En af og til getur einhver í söfnuðinum gert sig sekan um alvarlega synd. Sumum er jafnvel vísað úr söfnuðinum. (1. Kor. 5:13) Tökum eftir hvaða áhrif slíkt hafði á systur sem heitir Samar. Hún segir: „Stuttu eftir að ég lét skírast gerðist öldungur sekur um alvarlega synd og var vísað úr söfnuðinum. Það sló mig nærri því út af laginu því að mér fannst óskiljanlegt að öldungur gæti syndgað svo alvarlega gegn Jehóva og söfnuðinum.“ Við ættum að sjálfsögðu alltaf að trúa því að bræður og systur elski Jehóva og vilji vera trúföst. (1. Kor. 13:4, 7) En við þurfum líka að vera raunsæ. Á hverju ári er fólki vísað úr söfnuðinum. Og það getur reynst sérstaklega erfitt ef einhver sem er þér nákominn eða þú lítur upp til ákveður að yfirgefa Jehóva.

13. Hvernig getum við byggt okkur upp til að það komi okkur ekki úr jafnvægi ef einhver nákominn okkur yfirgefur Jehóva?

13 Hvernig geturðu byggt þig upp núna til að þú missir ekki jafnvægið ef einhver nákominn þér yfirgefur Jehóva? Haltu áfram að styrkja sambandið við Jehóva. (Jak. 4:8) Láttu ekki samband þitt við hann vera háð því hvort aðrir séu trúfastir. Við þurfum til dæmis að hafa eigin sjálfsnám og bænasamband við Jehóva á dagskrá þótt við tilbiðjum hann saman sem fjölskylda og söfnuður. – Sálm. 1:2; 62:8.

14. Hvað lærum við af fordæmi Péturs postula? (Jóhannes 6:66–68)

14 Við getum líka lært af því hvernig Pétur postuli brást við þegar margir lærisveinar Jesú hættu að fylgja honum. Pétur skildi kannski ekki sjálfur hvað Jesús var að fara með því sem hann sagði. En tökum eftir viðbrögðum Péturs eins og kemur fram í Jóhannesi 6:66–68. (Lestu.) Í stað þess að hugsa um það sem aðrir sögðu eða gerðu beindi Pétur athyglinni að sannleikanum sem Jesús hafði kennt honum. Fyrir vikið var hann ekki sleginn út af laginu. Það sama á við nú á dögum. Það sem aðrir gera breytir ekki gildi sannleikans sem við höfum fundið í söfnuði Jehóva. Haltu fast í þann sannleika! Samar, sem minnst var á áður, segir: „Ég minni mig alltaf á að röng hegðun einstaklings í söfnuðinum endurspeglar ekki allan söfnuðinn eða kennsluna sem við fáum þar. Og Jehóva er hinn sami, hvernig sem fólk hegðar sér.“

15. Hvað lærum við af reynslu Emily?

15 Skoðum reynslu Emily. Aðeins viku eftir að hún lét skírast yfirgaf mamma hennar fjölskylduna og var vísað úr söfnuðinum. Hún segir: „Mér hefði aldrei dottið í hug að þetta gæti gerst. Þetta er það erfiðasta sem ég hef upplifað og ég sakna mömmu mikið.“ Hvað hjálpaði Emily? Hún segir: „Ég stend ekki ein. Ég hef bæði stuðning frá pabba og öðrum í söfnuðinum sem hafa reynst mér eins og fjölskylda. Allir glíma við einhver vandamál. Þess vegna er svo mikilvægt að standa þétt saman og hvetja hvert annað.“ (1. Pét. 5:9) Þú getur styrkt sambandið við bræður og systur þótt þú sért ekki að glíma við sérstaka erfiðleika. Haltu því áfram. Þá er minni hætta á því að þú verðir einmana, sama hvað á eftir að gerast.

16. Hverju megum við ekki gleyma? (Sjá einnig mynd.)

16 Mundu að Jehóva agar þá sem hann elskar. (Hebr. 12:6) Hann vill að allir sem hefur verið vísað úr söfnuðinum snúi til baka. (2. Pét. 3:9) Þú getur verið viss um að ef einhverjum nákomnum þér hefur verið vísað úr söfnuðinum geri öldungarnir allt sem þeir geta til að hjálpa honum að snúa aftur til Jehóva. – 2. Tím. 2:24, 25.

Tveir öldungar heimsækja mann sem var vísað úr söfnuðinum. Annar öldungurinn heldur á opinni biblíu á meðan hinn sýnir manninum kafla úr bæklingum „Snúðu aftur til Jehóva“.

Ef einhverjum nákomnum þér er vísað úr söfnuðinum skaltu muna að öldungarnir vilja hjálpa honum að snúa aftur til Jehóva. (Sjá 16. grein.)f


17. Um hvað geturðu verið fullviss?

17 Við höfum rætt fáein dæmi um þá erfiðleika sem þú getur mætt eftir að þú lætur skírast. Sumt gæti virst yfirþyrmandi en þú þarft ekki að óttast. Þú getur gert margt til að búa þig undir það. Og mundu að Jehóva hjálpar þér að vera trúfastur. Hann hefur hjálpað þér hingað til og mun halda því áfram að eilífu. (1. Pét. 5:10) Hann gefur þér alltaf þann styrk og úthald sem þú þarfnast til að takast á við hvaða prófraun sem er. Svo framarlega sem þú þiggur hjálp Jehóva getur ekkert komið upp á milli þín og hans. – Sálm. 119:165; Rómv. 8:38, 39.

HVAÐ GETUM VIÐ GERT TIL AÐ BÚA OKKUR UNDIR ÞESSA HUGSANLEGU ERFIÐLEIKA?

  • Bróðir eða systir móðgar okkur.

  • Við förum að sakna þess sem við sögðum skilið við.

  • Einhverjum er vísað úr söfnuðinum.

SÖNGUR 154 Kærleikur sem aldrei bregst

a Þessi námsgrein er sérstaklega ætluð þeim sem eru nýlega skírðir. En við getum samt öll haft gagn af henni.

b Nöfnum hefur verið breytt.

c Ef við erum skynsöm erum við ekki fljót til að móðgast ef einhver kemur illa fram við okkur heldur reynum við að skilja hvers vegna hann gerði það. Það getur hjálpað okkur að halda rónni og vera fús til að fyrirgefa.

d Við ættum öll að láta biblíunemendur og nýskírða einstaklinga finna að þeir séu velkomnir í söfnuðinn – ekki bara þeir sem stýra biblíunámskeiði með þeim. Sjá 15. og 16. grein í námsgreininni „Allir í söfnuðinum geta hjálpað biblíunemendum til skírnar“ í Varðturninum mars 2021.

e MYND: Systir í boðuninni sér leikmenn á velli. Hún minnist þess þegar hún sjálf æfði sömu íþrótt. Seinna fær hún tækifæri til að tala við konu í liðinu um trúna, ef til vill fyrrverandi liðsfélaga.

f MYND: Tveir öldungar heimsækja mann sem hefur verið vísað úr söfnuðinum og hvetja hann til að snúa aftur til Jehóva.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila