Fræðslugögn sem hvetja og styrkja
1 Þau hafa komið að góðum notum við að fræða fólk um Biblíuna og votta Jehóva. Þau hafa hvatt marga til að taka eindregna afstöðu með sannleikanum. Þau hafa styrkt trú vígðra þjóna Guðs og gert þá þakklátari. Við erum að tala um myndböndin sem skipulag Jehóva gefur út. Hefurðu horft á öll tíu myndböndin? Hvenær gerðirðu það síðast? Notarðu þau í boðunarstarfinu? Á landsmótinu var greint frá útkomu 11. myndbandsins, Our Whole Association of Brothers (Bræðrafélag okkar). Hefurðu pantað þér eintak? Hvernig geturðu haft enn meira gagn af þessum afbragðsgóðu verkfærum?
2 Í námsgreininni, „Fjölskyldur, nemið orð Guðs reglulega saman,“ í Varðturninum 1. ágúst 1999, vorum við hvött til að „nota hluta námstímans til að horfa á kafla úr einhverju myndbandi Félagsins . . . og ræða síðan um efnið.“ Í samræmi við þessi góðu ráð verður fjallað um eitt myndbandanna á þjónustusamkomunni annan hvern mánuð. Við hvetjum alla safnaðarmenn til að horfa á myndbandið heima áður en það verður tekið fyrir á þjónustusamkomunni.
3 Í þessum mánuði byrjum við á fyrsta myndbandinu sem gefið var út, Jehovah’s Witnesses — The Organization Behind the Name (Vottar Jehóva — skipulagið að baki nafninu). Horfðu á það og reyndu að svara eftirfarandi spurningum:
◼ Fyrir hvað eru vottar Jehóva best þekktir?
◼ Hvaða ritningarstað tengist allt sem gert er á Betel?
◼ Hvaða biblíuatburð sástu sviðsettan, ljósmyndaðan og síðan teiknaðan fyrir ritin?
◼ Hvað vekur aðdáun þína í sambandi við gerð ritanna?
◼ Hve mörg biblíurit prentaði Félagið á árunum 1920 til 1990?
◼ Hverjir meðal fólks Guðs ættu sérstaklega að sækjast eftir Betelstarfi? — Orðskv. 20:29.
◼ Á hvaða vegu er Betelfjölskyldan öllum vottum Jehóva afbragðsfordæmi?
◼ Hvað hrífur þig mest í sambandi við það starf sem framkvæmt er á Betel til að koma fagnaðarerindinu til sem flestra?
◼ Hvernig er alþjóðastarfið fjármagnað?
◼ Hvaða starf getum við stutt með ráðum og dáð, og með hvaða hugarfari? — Jóh. 4:35, Post. 1:8.
◼ Hvað finnst þér um skipulagið að baki nafninu?
◼ Hvernig geturðu notað myndbandið í boðunarstarfinu?
Í desember verður fjallað um myndbandið The Bible — Accurate History, Reliable Prophecy (Biblían — nákvæm saga, áreiðanleg spádómsbók).