Gefðu gaum að dásemdarverkum Guðs
1 Við áttum þrjá yndislega daga saman á landsmótinu „Gerendur orðsins“ í síðasta mánuði þar sem við gátum hvílt hugann af daglegu amstri og einbeitt okkur að dásemdarverkum Jehóva. Dagskránni var ætlað að efla trúna á Guð og orð hans, styrkja tengsl okkar við hann og glæða með okkur enn meiri eldmóð gagnvart boðunarstarfinu. Hefurðu notið góðs af því sem þú lærðir? — Jóh. 13:17.
2 Fjölskyldur hlýða orði Guðs: Ræðusyrpan „Hlýddu orði Guðs“ hvatti okkur til að huga að andlegu ástandi fjölskyldunnar. Börn njóta þess að læra og guðræknir foreldrar voru því hvattir til að nota fjölskyldunámið til að treysta andlega undirstöðu heimilisins. Foreldrar, kennið börnunum að gefa viðhorfum Guðs gaum. Sýnið sjálf hve heitt þið elskið hann og velgjörðir hans. (Sálm. 103:2) Setjið ykkur sameiginleg andleg markmið, vinnið að því að ná þeim og þjónið Jehóva af heilum hug.
3 Orð Guðs lýsir upp leiðina: Það gladdi okkur mjög að fá í hendur fyrra bindi bókarinnar Spádómur Jesaja — ljós handa öllu mannkyni. Ertu langt kominn með að lesa hana? Jesajabók greinir frá dapurlegum dómum yfir óguðlegum þjóðum og fögrum guðsríkisfyrirheitum til handa þjónum Jehóva. (Jes. 34:2; 35:10) Hún byggir upp trú og traust til Guðs og vega hans. — Jes. 12:2-5.
4 Þegar við lesum bókina Spádómur Jesaja 1 komum við fljótt auga á hvernig Jesaja var Jehóva ráðvandur þrátt fyrir illskuna umhverfis. Þegar honum var boðið að vera erindreki Guðs svaraði hann: „Hér er ég, send þú mig!“ (Jes. 6:8) Fúsleiki hans ætti að hvetja þig til að halda áfram að boða fagnaðarerindið og eiga heilshugar þátt í að bera vitni fyrir „öllum þjóðum.“ — Matt. 24:14.
5 Ef við gefum gaum að verkum Jehóva upphefjum við mikilleik hans. Metum þess vegna að verðleikum þau sérréttindi að vera gerendur orðsins.