Hvers vegna að vera þakklátur?
LÍTTU á forsíðu þessa tímarits. Hún minnir okkur sannarlega á að til er margvísleg fegurð sem vegur upp á móti þeim ömurleika og eymd sem við sjáum allt í kringum okkur.
Kannt þú að meta það sem fagurt er? Hugsaðu um regnbogann með heiðríka, fíngerða litablöndu eftir myrkur stormsins. Ímyndaðu þér beljandi foss. Eða reyndu að sjá fyrir þér dýrin ærslast með ungviði sínu. Eða gerðu þér í hugarlund fagran blómagarð eða ríkulega uppskeru hveitis. Já, þetta er hversdagsleg sjón fyrir mörgum. En hvaða áhrif hefur þetta á þig?
Auðvelt að taka sem sjálfsögðum hlut
Það er venjan að því oftar sem við reynum eitthvað, þeim mun hversdagslegra verður það — og auðveldara að taka sem sjálfsögðum hlut. Þessi galli getur virst meira áberandi á hinni hraðfleygu 20. öld. Það hefur þó alltaf verið ljóður á ráði ófullkominna manna að gefa sér ekki tíma til að hugleiða eða gefa gaum þeirri blessun sem þeir njóta eða hvers vegna þeir ættu að vera þakklátir.
Sálmaritarinn Davíð lét hins vegar oft í ljósi þakklæti sitt í innblásnum ljóðum. Þessi orð, sem beint er til Guðs í einu af söngljóðum Davíðs, eru fyrsta flokks dæmi um þakklæti:
„Þegar ég horfi á himininn, verk handa þinna,
tunglið og stjörnurnar, er þú hefir skapað,
hvað er þá maðurinn þess, að þú minnist hans,
og mannsins barn, að þú vitjir þess?
Þú lést hann ríkja yfir handaverkum þínum,
allt lagðir þú að fótum hans:
sauðfénað allan og uxa,
og auk þess dýr merkurinnar,
fugla loftsins og fiska hafsins,
allt það er fer hafsins vegu.
[Jehóva], Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina! — Sálmur 8:4, 5, 7-10.
Þakklæti getur bælt niður drunga
Þakklæti sálmaritarans vegna fegurðar sköpunarverksins hjálpaði til við að hrekja á brott hvern þann drunga sem settist að vegna óþægilegrar sjónar eða erfiðra kringumstæðna. Þú getur sjálfur orðið fyrir sömu reynslu. Hvernig? Með því að leggja þig fram við að meta betur hið fjölmarga sem fagurt er í kringum þig. Á þann hátt getur þú aukið á eigin hamingju og þeirra sem nálægt þér eru.
Hví ekki að láta þess vegna þá fegurð og þau undur, sem við sjáum dags daglega, hvetja okkur til innilegs þakklætis í garð skaparans sem vill okkur svo vel? Hugleiðum nú nokkrar ástæður í viðbót til að finna til þakklætis.