Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • wcg kafli 43 bls. 196–199
  • Hann hugsaði vel um fjölskylduna

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hann hugsaði vel um fjölskylduna
  • Verum hugrökk og treystum Jehóva
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Kafaðu dýpra
  • Hugleiddu og heimfærðu
  • Horfðu á heildarmyndina
  • Skoðaðu meira
  • Hann stóðst freistingu
    Verum hugrökk og treystum Jehóva
  • Ófrísk en ógift
    Mesta mikilmenni sem lifað hefur
  • „Ekki kem ég í Guðs stað“
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2015
  • „Hvers vegna skyldi ég þá aðhafast svo illt?“
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2015
Sjá meira
Verum hugrökk og treystum Jehóva
wcg kafli 43 bls. 196–199

43 JÓSEF

Hann hugsaði vel um fjölskylduna

Prentuð útgáfa
Prentuð útgáfa

ÞAÐ er krefjandi hlutverk að vera góður faðir og stundum útheimtir það hugrekki. En hjá Jósef, sem var smiður í Nasaret, reyndi á hugrekkið jafnvel áður en hann varð faðir. Hann fékk að vita að María, unnusta hans, væri barnshafandi en hann átti ekki barnið. María sagði Jósef alla söguna en hann átti mjög erfitt með að skilja þetta og trúa því. Hvað átti hann að gera?

Biblían segir að ‚Jósef hafi verið réttlátur maður‘. Hann var réttsýnn og vandaður og hlýddi lögum Jehóva en hann var líka góður og miskunnsamur. Hann hugsaði málið vel og vandlega og ákvað að skilja við Maríu með leynd til að vernda hana og niðurlægja hana ekki. (Á þeim tíma var trúlofun álitin jafn bindandi og hjónaband.) En Jehóva skarst í leikinn. Hann sendi engil sem talaði við Jósef í draumi og sagði: „Vertu óhræddur að taka Maríu konu þína heim til þín.“ Engillinn fullvissaði Jósef um að María hefði sagt honum sannleikann. Hann sagði að barnið væri sonur Guðs og yrði Messías.

Jósef var falin mikil ábyrgð – að ala upp son Guðs.

Jósef gerði „eins og engill Jehóva hafði sagt honum“. Hann axlaði þá ábyrgð sem Jehóva hafði falið honum: að annast eiginkonu sína og þýðingarmesta barn sem myndi nokkurn tíma fæðast. Jósef myndi þurfa á öllu sínu hugrekki að halda.

Áður en langt um leið fyrirskipaði Ágústus keisari að manntal skyldi tekið og Jósef þurfti þá að fara til Betlehem til að láta skrá sig. Við vitum ekki hvort tilskipunin náði líka til Maríu en Jósef hefur líklega fundist hann vera í betri aðstöðu til að vernda hana ef þau færu saman. Þau lögðu því upp í þetta langa ferðalag þó að hún ‚ætti von á sér um þetta leyti‘. Þegar þau komu til Betlehem byrjuðu hríðirnar og María fæddi Jesú í gripahúsi.

Jósef vann hörðum höndum til að sjá fyrir fjölskyldunni en þau höfðu ekki úr miklu að spila. Þegar þau María fóru með barnið í musterið í Jerúsalem færðu þau fórn sem fátækir máttu færa. Einhverju síðar, þegar þau bjuggu í húsi í Betlehem, komu stjörnuspekingar í heimsókn, líklega frá Babýlon. Þeir höfðu séð dularfulla „stjörnu“ sem leiddi þá þangað. Þeir færðu fjölskyldunni verðmætar gjafir. Ekki leið á löngu áður en engill Jehóva birtist Jósef og varaði hann við því að hinn illi konungur Heródes vildi drepa Jesú. Engillinn sagði Jósef að flýja með fjölskylduna frá Betlehem til Egyptalands.

Jósef á leið með fjölskylduna inn í egypskan bæ. Gyðingar og Egyptar sem búa þar fylgjast með þeim. María situr á asna með Jesú í fanginu.

Jósef tók í sig kjark og lagði af stað með konu og barn í skjóli nætur til framandi lands. Hvernig átti hann að sjá fyrir þeim í Egyptalandi? Hann hefur eflaust verið þakklátur fyrir gjafirnar sem þau höfðu fengið frá stjörnuspekingunum. Þegar Heródes var dáinn sagði Jehóva Jósef að snúa aftur með fjölskylduna heim til Ísraels. En Betlehem var á svæði þar sem annar grimmur valdhafi réð ríkjum. Jósef fékk því viðvörun frá Guði um að fara ekki þangað þannig að hann flutti með fjölskylduna til Nasaret.

Þar eignuðust þau María að minnsta kosti sex börn til viðbótar. Jósef vann sem trésmiður til að sjá fyrir fjölskyldunni en hann sá líka vel um að fullnægja andlegum þörfum hennar. Þau sóttu samkunduna reglulega til að fræðast um Jehóva og ferðuðust líka til Jerúsalem til að halda heilagar hátíðir þar. Síðasta skiptið sem minnst er á Jósef í Biblíunni er við eina slíka hátíð. Þau höfðu týnt Jesú, sem var þá 12 ára, og óttuðust að finna hann ekki aftur. Við getum rétt ímyndað okkur hvað Jósef hefur létt þegar þau fundu hann í musterinu! Hann fór heim með þeim og „var þeim hlýðinn áfram“.

Það er ósagt látið í Biblíunni hvenær Jósef dó en hann hlýtur að hafa kennt Jesú vel á meðan hann lifði. Jesús var kallaður „sonur smiðsins“ en líka „smiðurinn“. Faðir hans hafði greinilega kennt honum iðnina. Jósef er góð fyrirmynd sem Jehóva vill að allir feður fylgi. Hann var hugrakkur, trúr og góður faðir. Hann verndaði fjölskylduna, sá fyrir henni og fræddi hana um Jehóva.

Lestu frásögn Biblíunnar:

  • Matteus 1:18–25; 2:1–23; 13:55

  • Markús 6:3

  • Lúkas 2:1–7, 22–24, 41–51

Til umræðu:

Hvernig sýndi Jósef hugrekki?

Kafaðu dýpra

  1. 1. Nú var María dóttir Elí. Hvers vegna segir þá í Lúkasi 3:23 að Jósef hafi verið ‚sonur Elí‘? (w17.08 32 gr. 4)

  2. 2. Hver gæti verið ástæðan fyrir því að Jósef hafði ekki kynmök við Maríu fyrr en eftir að Jesús fæddist? (w03 15.12. 5 gr. 5 – wcgr)

  3. 3. Hvað gefur til kynna að Jósef hafi verið duglegur við vinnu? (ia bls. 166–167 gr. 15–18 – wcgr) A

    Jósef gerir við tréhjól á smíðaverkstæðinu. María og Jesús ungur spjalla við nágranna.

    Mynd A

  4. 4. Hvers vegna má álykta að Jósef hafi dáið meðan Jesús var enn frekar ungur? (w17.07 13 gr. 8, nm.)

Hugleiddu og heimfærðu

  • Jósef hlýddi Jehóva jafnvel þótt það reyndi stundum á. Hvað geta foreldrar lært af honum? (Matt. 1:20, 24; 2:13–15, 19–21)

  • Hvað getum við lært af Jósef um að láta tilbeiðsluna á Jehóva skipa fyrsta sæti í fjölskyldulífinu? (Lúk. 2:41) B

    Fjölskylda býr sig undir að leggja af stað á mót. Pabbinn hjálpar yngri syninum að hnýta bindið á meðan mamman og eldri sonurinn hafa sig til.

    Mynd B

  • Á hvaða fleiri vegu getur þú sýnt hugrekki eins og Jósef?

Horfðu á heildarmyndina

  • Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?

  • Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?

  • Um hvað langar þig að spyrja Jósef þegar hann rís upp?

Skoðaðu meira

Horfðu á þetta myndband og sjáðu hvernig Jósef lét vilja Jehóva ráða ferðinni.

‚Hann gerði eins og engill Jehóva sagði honum‘ (4:39)

Hvernig getum við líkt eftir Jósef og Maríu þegar stjórnvöld setja lög sem virðast óþægileg eða ósanngjörn?

„Ert þú ‚fús til að hlýða‘?“ (w23.10 8–10 gr. 9–14)

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila