38 HEBREARNIR ÞRÍR
Þeir „stóðust mátt eldsins“
ÞEIR Hananja, Mísael og Asarja hafa örugglega óskað þess að Daníel væri með þeim þegar þeir urðu fyrir óvæntri prófraun. Daníel var góður vinur þeirra og mikil trúarhetja. En hann var greinilega ekki nærstaddur þegar þremenningunum, sem Babýloníumenn kölluðu Sadrak, Mesak og Abed Negó, var ógnað.
Þetta hófst með því að Nebúkadnesar lét reisa gríðarstórt líkneski. Það var á við níu hæða hús og næstum þrír metrar á breidd. Konungur skipulagði mikil hátíðahöld til að vígja líkneskið og fyrirskipaði að allir embættismenn sínir væru viðstaddir. Hebrearnir þrír urðu að hlýða tilskipun konungs og sækja athöfnina.
Þögn sló á mannfjöldann þegar kallari las upp fyrirskipun konungs. Fyrst yrði spiluð tónlist sem líklega var ætlað að skapa réttu stemminguna meðal viðstaddra. Síðan áttu allir að „falla fram og tilbiðja gulllíkneskið“. Hvað áttu ungu mennirnir þrír að gera? Þeir þekktu vel boðorð Jehóva sem bannaði skurðgoðadýrkun. – 2. Mós. 20:4, 5.
Þeir þurftu að taka afdrifaríka ákvörðun frammi fyrir miklum mannfjölda – að tilbiðja skurðgoð eða deyja.
Tónlistin hófst. Í sömu svipan féll mannfjöldinn fram og tilbað líkneskið. En þrír menn stóðu kyrrir og það vakti sannarlega athygli. Hópur Kaldea greip tækifærið að klaga og rægja þessa ungu Gyðinga. Þeir sögðu við Nebúkadnesar: „Þessir menn virða þig einskis, konungur. Þeir þjóna ekki guðum þínum og neita að tilbiðja gulllíkneskið sem þú hefur reist.“ Konungur lét sækja þremenningana og spurði þá bálreiður hvort ásakanirnar ættu við rök að styðjast. Áður en þeir gátu svarað hafði hann í hótunum við þá. Hann gaf þeim annað tækifæri til að hlýða en ef þeir gerðu það ekki yrði þeim „umsvifalaust kastað í logandi eldsofninn“. Hann fullyrti að enginn guð gæti bjargað þeim.
Hvorki Hananja, Mísael né Asarja hikaði. Þeir sögðu konungi að ef þeim yrði kastað í ofninn gæti Guð þeirra vissulega bjargað þeim frá slíkum dauðdaga. Þeir bættu síðan við: „En þó að hann geri það ekki skaltu samt vita, konungur, að við ætlum hvorki að þjóna guðum þínum né tilbiðja gulllíkneskið sem þú hefur reist.“ Nebúkadnesar var viti sínu fjær af reiði. Hann fyrirskipaði að ofninn skyldi kyntur margfalt meira en venjulega og að binda skyldi þremenningana og kasta þeim í eldinn. Svo heitur var ofninn að logarnir urðu mönnunum sem köstuðu Hebreunum í ofninn að bana.
En nú sá Nebúkadnesar nokkuð sem skaut honum skelk í bringu. Inni í ofninum voru ekki þrír menn heldur fjórir. Þeir gengu um í eldinum en virtust óskaddaðir! Konungurinn hrópaði upp yfir sig að sá fjórði liti út „eins og sonur guðanna“. Nebúkadnesar fór eins nálægt ofninum og hann gat og kallaði til mannanna að koma út úr eldinum.
Sjáum mennina fyrir okkur gapandi af undrun þegar Hebrearnir koma út. Þeir eru óskaddaðir – hvorki þeir né föt þeirra hafa sviðnað. Það er ekki einu sinni brunalykt af þeim. En böndin sem þeir voru bundnir með eru horfin. Nebúkadnesar, þessi voldugi konungur, fylltist lotningu og hrósaði Hebreunum þrem fyrir að hlýða Guði sínum. „Þeir treystu honum,“ sagði hann, „og óhlýðnuðust skipun konungs og vildu frekar deyja en að heiðra eða tilbiðja nokkurn annan guð en sinn Guð.“
Þessi stolti einvaldur lýsti yfir að hver sá maður í ríki hans sem lastaði Jehóva skyldi tekinn af lífi. Og hann hækkaði þremenningana í tign. En Jehóva gerði miklu meira en það – hann gleymdi ekki trú þeirra. Mörgum öldum síðar innblés hann Páli postula að tala um þá sem „stóðust mátt eldsins“ vegna einstakrar trúar sinnar. Hann hafði eflaust í huga þessa hugrökku ungu menn, Hananja, Mísael og Asarja.
Lestu frásögn Biblíunnar:
Til umræðu:
Hvernig sýndu Hananja, Mísael og Asarja hugrekki?
Kafaðu dýpra
1. Hvernig styðja fornleifafundir frásöguna í Daníelsbók 3. kafla? (w23.07 31) A
© The Trustees of the British Museum. Licensed under CC BY-NC-SA 4.0. Source. Modifications: Box added
Mynd A: Múrsteinn úr brenndum leir með nafni Nebúkadnesars.
2. Hvað er líklegt að babýlonsk nöfn Hebreanna þriggja merki? (dp bls. 35 gr. 14)
3. Hvað bendir til þess að Nebúkadnesar hafi verið mjög trúaður? (dp bls. 69 gr. 3) B
Mynd B: Nebúkadnesar reisti og gerði upp musteri margra babýlonskra guða.
4. Hvers vegna ætli menn af ýmsum „þjóðum, þjóðflokkum og málhópum“ hafi verið tilbúnir til að falla fram fyrir líkneski Nebúkadnesars þó að þeir tilbæðu eflaust sína eigin guði? (Dan. 3:7; dp bls. 73 gr. 10)
Hugleiddu og heimfærðu
Hebrearnir þrír voru trúfastir í prófraun sem snerist um mat. Þeir voru líka trúfastir síðar þegar lífi þeirra var ógnað. Hvað lærum við af því? (Lúk. 16:10) C
Mynd C
Hvernig getum við sýnt eftirfarandi eiginleika eins og Hebrearnir þrír þegar við erum ofsótt? (Dan. 3:16–18)
Auðmýkt
Mildi
Trúfesti
Hvernig getur þú sýnt hugrekki eins og Hebrearnir þrír?
Horfðu á heildarmyndina
Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?
Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?
Um hvað langar þig að spyrja Hananja, Mísael og Asarja þegar þeir rísa upp?
Skoðaðu meira
Hvernig getur þjónn Guðs sýnt virðingu en samt verið hlutlaus ef hann er viðstaddur þjóðernislega athöfn?
Settu þig inn í þessa frásögu og kannaðu hvað fleira má læra af henni.
„Bjargað úr logandi eldsofni“ („Biblíuverkefni“ á jw.org – wcgr)