37 DANÍEL
Hann var ákveðinn í að óhreinka sig ekki
DANÍEL var langt að heiman. Fjölskylda hans var ein af mörgum sem höfðu verið fluttar frá heimalandi sínu, Júda, alla leið til Babýlonar. Ferðalagið gæti hafa tekið um fjóra mánuði. Daníel og aðrir ungir menn úr hópi útlaganna voru teknir frá fjölskyldum sínum og farið var með þá til höfuðborgarinnar. Daníel eignaðist þrjá góða vini úr hópi Hebreanna, þá Hananja, Mísael og Asarja. Félagarnir komust fljótlega að raun um til hvers Babýloníumenn ætluðust af þeim: að aðlagast siðum þeirra og menningu.
Daníel var langt að heiman og fjarri fjölskyldunni. Það kostaði hann hugrekki að vera Jehóva trúr.
Nebúkadnesar konungur Babýlonar byrjaði á því að láta Aspenas hirðstjóra sinn breyta nöfnum þeirra. Mörg hebresk nöfn lofuðu hinn sanna Guð. Nafnið Daníel merkir til dæmis ‚Guð er dómari minn‘. En í Babýlon var líka algengt að mannanöfn lofuðu guði landsins. Daníel fékk því nafnið Beltsasar sem virðist vera hluti af bæn um að falsguðinn Bel verndi líf konungs. Konungurinn vildi líka innræta þessum ungmennum hugsunarhátt Babýloníumanna. Hann skipaði svo fyrir að þeim skyldi kennt að tala og skrifa mál Kaldea svo að þeir gætu þjónað honum í konungshöllinni. En þetta var bara upphafið.
Konungurinn fól Aspenasi að hafa umsjón með menntun þessara ungu útlaga. Þeir áttu að borða af kræsingum konungs, besta mat sem völ var á, og drekka fínasta vín. Sumum ungmennanna hefur ef til vill fundist það mikill heiður. En Daníel áttaði sig á að því fylgdi ákveðin hætta fyrir hann og félaga hans þrjá. Hverju hafði hann áhyggjur af?
Daníel hefur ef til vill velt fyrir sér spurningum eins og þessum: Babýloníumenn vita að það er sumt sem við borðum ekki vegna þess að lög Jehóva banna það. Reyna þeir að fá okkur til að óhlýðnast Jehóva með því að gefa okkur mat sem hann segir að sé óhreinn? Ef þeir gefa okkur kjöt, er það þá blóðgað eða reyna þeir að plata okkur til að borða blóð? Og yrði litið svo á að það væri þáttur í tilbeiðslu á falsguðum að borða af matnum? Kannski velti hann líka fyrir sér hvort þeir myndu eiga erfitt með að varðveita góða dómgreind ef þeir fengju mikið af víni.a
Daníel hefur eflaust beðið mikið til Guðs og rætt málið við vini sína þrjá. Hann „var ákveðinn í hjarta sínu“ að gera það sem þyrfti til að þóknast Jehóva. Hann kom að máli við Aspenas og spurði hann háttvíslega hvort hann og vinir hans mættu sleppa öllum mat sem gæti óhreinkað þá. Jehóva var með Daníel og sá til þess að hirðstjórinn væri vinsamlegur í hans garð. Hirðstjórinn hafði samt áhyggjur af því að það kæmi niður á heilsu þeirra ef þeir borðuðu ekki það sem sett var fyrir þá. Og hann vissi að Nebúkadnesar myndi refsa honum ef svo færi. Daníel lét kyrrt liggja í bili en kom síðan með tillögu sem hann bar upp við gæslumanninn sem Aspenas hafði sett yfir hópinn: Leyfðu okkur að borða bara grænmeti og drekka vatn næstu tíu dagana. Berðu okkur fjórmenningana síðan saman við hin ungmennin. Gæslumaðurinn féllst á það.
Tíu dögum síðar lá niðurstaðan fyrir – ungu mennirnir fjórir litu betur út en allir hinir. Þeir voru svo hraustir að sjá að þeir fengu jafnvel leyfi til að halda sig áfram við sama mataræði. Jehóva hafði greinilega blessað trú og hugrekki Daníels og vina hans. Þeir gleymdu þessu aldrei.
Eins og fram kemur í næsta kafla átti eftir að reyna verulega á hugrekki þessara þriggja vina Daníels. Daníel sjálfur varð um það bil 100 ára gamall og það reyndi oftar en einu sinni á hugrekki hans líka. Hann þurfti að ráða drauma sem Jehóva hafði látið Nebúkadnesar dreyma, jafnvel þegar draumarnir boðuðu ógæfu fyrir hinn stolta konung og ríki hans. Áratugum síðar túlkaði Daníel boðskap sem Guð lét skrifa á vegg þó að hann hafi sannarlega verið óhagstæður fyrir Belsassar sem var konungur á þeim tíma. Og á gamals aldri horfðist hann í augu við dauðann þegar honum var kastað í gryfju fulla af hungruðum ljónum. En Daníel sýndi alltaf sama hugrekki og hann hafði sýnt ungur að árum. Það kemur ekki á óvart að engill Jehóva skuli hafa sagt að Daníel væri „mikils metinn“.
Lestu frásögn Biblíunnar:
Til umræðu:
Hvernig sýndi Daníel hugrekki?
Kafaðu dýpra
1. Stangast Daníel 1:1 á við Jeremía 25:1? (dp bls. 18–19 gr. 14, 15)
2. Hvernig staðfestir babýlonsk áletrun að Nebúkadnesar hafi verið með fjárhirslu fyrir guð sinn? (Dan. 1:2; dp bls. 32 gr. 6) A
© The Trustees of the British Museum. Licensed under CC BY-NC-SA 4.0. Source. Modifications: Box added
Mynd A: Forn áletrun þar sem Nebúkadnesar talar um „fjárhirslu“ í musteri Meródaks.
3. Hvaða hlutverk höfðu „galdraprestar“? (Dan. 1:20; it „Töfrar og galdrar“ gr. 2–6 – wcgr) B
Mynd B: Babýlonsk leirtafla sem lýsir því hvernig „lækna“ megi sjúkling sem talið var að draugur hefði ráðist á.
4. Hvað var líklega fólgið í fæðinu sem Daníel og félagar hans fengu? (Dan. 1:12; dp bls. 40 gr. 25)
Hugleiddu og heimfærðu
Hvað geta ungmenni lært af Daníel um að vera Jehóva trúföst, jafnvel þegar þau eru fjarri fjölskyldunni?
Daníel var „ákveðinn í hjarta sínu“ að hlýða Jehóva. Hvernig veitti það honum hugrekki? (Dan. 1:8) Hvernig getum við líkt eftir honum? C
Mynd C
Á hvaða fleiri vegu getur þú sýnt hugrekki eins og Daníel?
Horfðu á heildarmyndina
Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?
Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?
Um hvað langar þig að spyrja Daníel þegar hann rís upp?
Skoðaðu meira
Horfðu á myndband sem fjallar um þessa atburði.
Hvernig getur ungt fólk líkt eftir hugrekki og trúfesti Daníels?