36 JÓSÍA
Hann sneri þjóðinni aftur til Jehóva
JÓSÍA var ekki nema sex ára þegar afi hans, Manasse konungur, dó. Hann vissi líklega að afi hans hafði breytt um stefnu og farið að þjóna Jehóva. Vel má vera að það hafi haft djúpstæð áhrif á Jósía. En Amón faðir hans tók nú við sem konungur. Amón var vondur maður og dró þjóðina aftur út í falsguðadýrkun og alls konar vonskuverk. Hann dó eftir aðeins tvö ár í hásæti. Jósía tók þá við sem konungur, aðeins átta ára gamall.
Ýmsir höfðu líklega góð áhrif á Jósía um ævina, svo sem spámennirnir Sefanía og Jeremía, Hulda spákona og Hilkía æðstiprestur. Í Biblíunni segir um Jósía: „Þegar hann var enn ungur [um 16 ára], fór hann að leita Guðs Davíðs forföður síns.“ Um tvítugt stóð hann fyrir miklum umbótum í Júda. Jehóva lét þennan unga og atorkumikla konung snúa þjóðinni frá skurðgoðadýrkun og öðrum illskuverkum.
Jósía fór meira að segja inn á landsvæðið sem tíuættkvíslaríkið Ísrael hafði ráðið yfir. Ísraelsmennirnir sem bjuggu þar höfðu flestir verið fluttir í útlegð fyrir löngu og nú bjuggu aðallega útlendingar á svæðinu. Jósía lagði samt leið sína þangað til að eyðileggja ölturu og skurðgoð þar.
Þótt ungur væri háði Jósía konungur hetjulega baráttu til að snúa fólki aftur til Jehóva.
Nokkrum árum síðar hlaut Jósía óvænta blessun. Meðan viðgerðir stóðu yfir á heilögu musteri Jehóva fann Hilkía æðstiprestur merkilegan hlut: bókrollu með lögunum sem Jehóva hafði gefið Móse. Hún var margra alda gömul, hugsanlega skrifuð af Móse sjálfum! Farið var með bókrolluna til Jósía og hann hlustaði af athygli meðan hún var lesin upp fyrir hann. Hann varð miður sín þegar hann heyrði hvað stóð í henni. Það rann upp fyrir honum hversu langt þjóðin hafði villst frá Jehóva og lögum hans. Hann gerði sér grein fyrir hversu mikil reiði Jehóva gagnvart þjóð sinni hlaut að vera. Myndi Jósía hafa hugrekki til að gera það sem gera þurfti?
Jósía sendi fimm menn í flýti til Huldu spákonu til að fá að vita hvað Jehóva ætlaði að gera. Hún upplýsti að Júdamenn hefðu sannarlega misboðið Jehóva með langvarandi uppreisn sinni. Miklar hörmungar myndu koma yfir Júda og Jerúsalem. En Jehóva hafði tekið eftir hjartalagi Jósía, hugrekki hans og umbótum þannig að dóminum yrði ekki fullnægt fyrr en eftir hans dag.
Jósía gerði samt allt sem hann gat til að snúa þegnum sínum aftur til Jehóva. Hann og þjóðin öll gáfu Jehóva hátíðlegt loforð um að fylgja öllum lögum hans. Hann gerði síðan öflugt átak til að uppræta skurðgoðadýrkun. Til að efla sanna tilbeiðslu lét konungurinn líka halda mikla páskahátíð. Hann og höfðingjar hans gáfu tugþúsundir skepna til að færa Jehóva að fórn og söngvarar sungu lofsöngva. Þetta var einhver mesta páskahátíð sem þjóð Guðs hafði nokkurn tíma haldið.
Jósía sýndi mikið hugrekki og sterka trú í baráttu sinni gegn falsguðadýrkun. Í einu tilviki uppfyllti hann 300 ára gamlan spádóm þegar hann lét brenna mannabein á heiðnu altari og leggja tilbeiðslustaðinn í rúst. (1. Kon. 13:2) Í Júda eyðilagði hann jafnvel ölturu og skurðgoð sem staðið höfðu kynslóðum saman, síðan Salómon konungur gerðist fráhverfur Jehóva. En Jósía tók að minnsta kosti eina mjög óskynsamlega ákvörðun. Hann fór í herferð til að berjast gegn egypskum faraó sem hét Nekó. Nekó varaði Jósía við að blanda sér í átökin og sagði honum réttilega að boðin væru frá Jehóva komin. En Jósía virðist ekki hafa leitað til spámanna Jehóva til að kanna hvort Nekó væri raunverulega að flytja boð frá Jehóva. Hann lét bara vaða. Það virtist kannski bera vott um hugrekki að leggja í stríð við öflugan her en í rauninni var það glannalegt og óskynsamlegt. Jósía var aðeins 39 ára og þetta kostaði hann lífið.
Gleymdi Jehóva öllu því góða sem Jósía hafði gert? Alls ekki. Jeremía spámaður orti sorgarljóð um hinn fallna konung. Þjónar Guðs virðast hafa sungið þetta sorgarljóð kynslóðum saman. Kannski á Jósía einhvern tíma eftir að lesa hina innblásnu frásögu af stjórnartíð sinni og um sorgarljóðin sem sungin voru honum til lofs. Það er greinilegt að Jehóva elskaði Jósía og gleymdi aldrei trú hans og hugrekki.
Lestu frásögn Biblíunnar:
Til umræðu:
Hvernig sýndi Jósía hugrekki?
Kafaðu dýpra
1. Hvað vitum við um Safan, afritara og ritara Jósía? (w02 15.12. 19 gr. 2–6 – wcgr)
2. Af hverju reif Jósía föt sín þegar lesið var upp úr lögunum fyrir hann? (w14 15.4. 32)
3. Hvað rökstyður að Nekó faraó sé sannsöguleg persóna? (2. Kron. 35:22; it „Nekó“ gr. 2 – wcgr) A
StockStudio/Alamy Stock Photo
Mynd A: Megiddó, þar sem Jósía barðist gegn Nekó faraó.
Mynd A: Megiddó, þar sem Jósía barðist gegn Nekó faraó.
StockStudio/Alamy Stock Photo
4. Hulda sagði fyrir að Jósía yrði „lagður í gröf [sína] í friði“. Hvernig rættist þessi spádómur fyrst Jósía féll í bardaga? (2. Kon. 22:20; w00 15.9. 30 gr. 2, 3 – wcgr)
Hugleiddu og heimfærðu
Sumir þjónar Guðs ólust upp við mjög erfiðar aðstæður. Hvaða lærdóm geta þeir dregið af Jósía, en faðir hans var fráhvarfsmaður?
Jósía lagði sig fram um að skilja Ritningarnar. (2. Kron. 34:21) Hvernig getum við líkt eftir honum? B
Mynd B
Á hvaða fleiri vegu getur þú sýnt hugrekki eins og Jósía?
Horfðu á heildarmyndina
Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?
Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?
Um hvað langar þig að spyrja Jósía þegar hann rís upp?
Skoðaðu meira
Hvað geturðu lært af ákvörðunum Jósía og tveggja annarra ungra konunga í Júda?
Hreinsaði Jósía landið af skurðgoðadýrkun í eigin krafti? Því er svarað í þessu myndbandi.
Sagan um Jósía: Elskaðu Jehóva og hataðu illt – 2. hluti – útdráttur (3:43)