Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • ijwbq grein 151
  • Hvað eru boðorðin tíu?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hvað eru boðorðin tíu?
  • Biblíuspurningar og svör
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Svar Biblíunnar
  • Listi yfir boðorðin tíu
  • Hvers vegna er boðorðunum tíu ekki alltaf raðað eins?
  • Hver var tilgangurinn með boðorðunum tíu?
  • Verða kristnir menn að halda boðorðin tíu?
  • Skipta boðorðin tíu máli fyrir fólk nú á dögum?
  • Meginreglur úr boðorðunum tíu sem er líka að finna í Nýja testamentinu
  • Hvað þýða boðorðin tíu fyrir þig?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1990
  • Eru boðorðin tíu bindandi fyrir okkur?
    Þú getur lifað að eilífu í paradís á jörð
  • Boðorðin tíu og þú
    Líf okkar og boðun - vinnubók fyrir samkomur – 2020
  • Hvernig lítur þú á boðorðin tíu?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1990
Sjá meira
Biblíuspurningar og svör
ijwbq grein 151
Boðorðin tíu á steintöflum

Hvað eru boðorðin tíu?

Svar Biblíunnar

Boðorðin tíu eru lög sem Guð gaf Ísraelsþjóðinni til forna. Þessi lög eru líka kölluð „orðin tíu“ sem er bein þýðing á hebreska orðalaginu asereth haddevarim. Þetta orðalag kemur þrisvar fyrir í Fimmbókaritinu (Tórunni), Mósebókunum fimm. (2. Mósebók 34:28; 5. Mósebók 4:13; 10:4) Samsvarandi orðalag á grísku er deka (tíu) logous (orð).

Guð skrifaði boðorðin tíu á tvær steintöflur og afhenti spámanninum Móse þær á Sínaífjalli. (2. Mósebók 24:12-18) Boðorðin tíu eru skráð í 2. Mósebók 20:1-17 og 5. Mósebók 5:6-21.

  • Listi yfir boðorðin tíu

  • Hvers vegna er boðorðunum tíu ekki alltaf raðað eins?

  • Hver var tilgangurinn með boðorðunum tíu?

  • Verða kristnir menn að halda boðorðin tíu?

  • Skipta boðorðin tíu máli fyrir fólk nú á dögum?

  • Meginreglur úr boðorðunum tíu sem er líka að finna í Nýja testamentinu

Listi yfir boðorðin tíu

  1. Þú átt að tilbiðja Jehóva Guð einan. – 2. Mósebók 20:3.

  2. Ekki stunda skurðgoðadýrkun. – 2. Mósebók 20:4-6.

  3. Ekki leggja nafn Guðs við hégóma. – 2. Mósebók 20:7.

  4. Haltu hvíldardaginn. – 2. Mósebók 20:8-11.

  5. Heiðraðu foreldra þína. – 2. Mósebók 20:12.

  6. Ekki fremja morð. – 2. Mósebók 20:13.

  7. Ekki drýgja hór. – 2. Mósebók 20:14.

  8. Ekki stela. – 2. Mósebók 20:15.

  9. Ekki bera ljúgvitni. – 2. Mósebók 20:16.

  10. Ekki girnast. – 2. Mósebók 20:17.

Hvers vegna er boðorðunum tíu ekki alltaf raðað eins?

Boðorðin eru ekki númeruð í Biblíunni. Þar af leiðandi eru skiptar skoðanir á því hvernig eigi að raða þeim. Listinn hér að ofan sýnir algenga uppröðun. En sumir raða boðorðunum tíu öðruvísi. Munurinn snertir fyrsta, annað og síðasta boðorðið.a

Hver var tilgangurinn með boðorðunum tíu?

Boðorðin tíu voru hluti af Móselögunum. Þessi lög innihéldu yfir 600 lagaákvæði og voru eins konar samningur eða sáttmáli Guðs við Ísrael til forna. (2. Mósebók 34:27) Guð lofaði Ísraelsþjóðinni að henni myndi vegna vel ef hún hlýddi Móselögunum. (5. Mósebók 28:1-14) En aðal markmið laganna var að undirbúa Ísraelsþjóðina fyrir komu Messíasar eða Krists. – Galatabréfið 3:24.

Verða kristnir menn að halda boðorðin tíu?

Nei, Guð gaf Ísraelsþjóðinni til forna lögmálið, þar á meðal boðorðin tíu. (5. Mósebók 5:2, 3; Sálmur 147:19, 20) Móselögin eru ekki bindandi fyrir kristna menn, Gyðingar sem tóku kristna trú voru meira að segja ,leystir undan lögmálinu‘. (Rómverjabréfið 7:6)b „Lögmál Krists“ kom í staðinn fyrir Móselögin og fól í sér allt sem Jesús hafði kennt lærisveinum sínum að gera. – Galatabréfið 6:2; Matteus 28:19, 20.

Skipta boðorðin tíu máli fyrir fólk nú á dögum?

Já, vegna þess að boðorðin tíu endurspegla viðhorf Guðs og það getur verið gagnlegt fyrir okkur að kynna okkur þau. (2. Tímóteusarbréf 3:16, 17) Boðorðin tíu eru byggð á traustum meginreglum sem verða aldrei úreltar. (Sálmur 111:7, 8) Margar þeirra eru reyndar grunnurinn að kenningum hins svokallaða Nýja testamentis. – Sjá „Meginreglur úr boðorðunum tíu sem er líka að finna í Nýja testamentinu“.

Jesús kenndi að öll Móselögin, þar á meðal boðorðin tíu, hvíldu á tveimur grundvallarboðorðum. Hann sagði: „Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum. Þetta er hið æðsta og fremsta boðorð. Annað er hliðstætt þessu: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. Á þessum tveimur boðorðum hvílir allt lögmálið og spámennirnir.“ (Matteus 22:34-40) Þótt kristnir menn þurfi ekki að fara eftir Móselögunum, þá eiga þeir að elska Guð og náungann. – Jóhannes 13:34; 1. Jóhannesarbréf 4:20, 21.

Meginreglur úr boðorðunum tíu sem er líka að finna í Nýja testamentinu

Meginregla

Í Nýja testamentinu

Þú átt að tilbiðja Jehóva Guð einan

Opinberunarbókin 22:8, 9

Ekki stunda skurðgoðadýrkun

1. Korintubréf 10:14

Heiðra nafn Guðs

Matteus 6:9

Taktu frá tíma til að tilbiðja Guð

Hebreabréfið 10:24, 25

Sýndu foreldrum þínum virðingu

Efesusbréfið 6:1, 2

Ekki fremja morð

1. Jóhannesarbréf 3:15

Ekki drýgja hór

Hebreabréfið 13:4

Ekki stela

Efesusbréfið 4:28

Ekki bera ljúgvitni

Efesusbréfið 4:25

Ekki girnast

Lúkas 12:15

a Samkvæmt erfikenningum Gyðinga er 2. Mósebók 20:2 fyrsta ,orðið‘ og vers 3-6 eru álitin vera eitt vers, það er að segja annað ,orðið‘. (The Jewish Encyclopedia) Hins vegar líta kaþólikkar á 2. Mósebók 20:1-6 sem eitt boðorð. Þess vegna verður bannið við að vanhelga nafn Guðs annað boðorðið. Til að halda fjölda boðorðanna skipta þeir því síðasta, um að girnast ekki eiginkonu og eigur náungans, í tvö boðorð.

b Í Rómverjabréfinu 7:7 er tíunda boðorðið notað sem dæmi um „lögmálið“ og staðfestir þar með að boðorðin tíu voru hluti af Móselögunum.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila