HALTU VÖKU ÞINNI
Hvernig geturðu varðveitt hamingjuna á óvissutímum? – Hvað segir Biblían?
Við lifum á óvissutímum þar sem við höfum ekki alltaf stjórn á því hvað gerist í lífi okkar. En hamingja okkar veltur oft meira á viðhorfum okkar en aðstæðum. Í Biblíunni segir: „Sá sem er léttur í lund er alltaf í veislu.“ (Orðskviðirnir 15:15) Hann er líka glaður þó að hann gangi í gegnum erfiðleika. Hvað getum við gert til að auka við hamingju okkar? Sjáðu hvernig ráð Biblíunnar geta hjálpað.
Að takast á við áhyggjur
Í Biblíunni segir: „Áhyggjur íþyngja hjartanu en uppbyggjandi orð gleður það.“ – Orðskviðirnir 12:25.
Biblían getur hjálpað þér að takast á við áhyggjur og kvíða. Lestu greinina „Sjónarmið Biblíunnar – áhyggjur“ til að sjá hvernig hún gerir það.
Að glíma við einmanaleika
Í Biblíunni segir: „Sannur vinur elskar alltaf og er sem bróðir á raunastund.“ – Orðskviðirnir 17:17.
Biblían er með ráð um hvernig við getum styrkt vináttubönd okkar við aðra og dregið með því úr einmanaleika. Lestu greinina „Að sigrast á einmanaleika með hjálp vina – hvernig getur Biblían hjálpað?“
Ræktaðu með þér kærleika til Guðs og náungans
Í Biblíunni segir: „Þú skalt elska Jehóva Guð þinn af öllu hjarta þínu, allri sál þinni og öllum huga þínum … Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“a – Matteus 22:37–39.
Bænin getur hjálpað okkur að rækta með okkur kærleika til Guðs. Lestu meira um það í greininni „Heyrir Guð bænir okkar?“
Við sýnum öðrum kærleika með því að fara eftir meginreglu sem oft er kölluð gullna reglan. Lestu greinina „Hver er gullna reglan?“ til að læra meira um hana.
Langar þig til að fræðast meira um hvernig Biblían getur hjálpað þér að varðveita hamingjuna á þessum óvissutímum? Við hvetjum þig til að prófa ókeypis biblíunámskeið.
a Jehóva er nafn Guðs. – Sálmur 83:18.