Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • ijwhf grein 11
  • Þegar unglingurinn bregst trausti þínu

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þegar unglingurinn bregst trausti þínu
  • Góð ráð handa fjölskyldunni
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Er unglingurinn minn uppreisnarseggur?
  • Hvað ef unglingurinn minn hefur blekkt mig?
  • Hverjum er um að kenna?
  • Hvernig get ég hjálpað unglingnum að byggja aftur upp traustið sem hann brást?
  • Að setja unglingnum reglur
    Vaknið! – 2013
  • Ræddu við unglinginn án þess að rífast
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2014
  • Að eiga tjáskipti við unglinginn
    Vaknið! – 2013
  • Að kenna unglingnum að virða heimilisreglurnar
    Vaknið! – 2013
Sjá meira
Góð ráð handa fjölskyldunni
ijwhf grein 11
Faðir og móðir eru vonsvikin út í unglingsson sinn.

GÓÐ RÁÐ HANDA FJÖLSKYLDUNNI | UPPELDI

Þegar unglingurinn bregst trausti þínu

Sumir unglingar taka ekki mark á útivistarreglunum sem þeim eru settar. Aðrir blekkja foreldra sína, kannski með því að ljúga að þeim eða laumast út úr húsinu til að vera með vinum sínum. Hvað geturðu gert ef unglingurinn þinn bregst trausti þínu?

  • Er unglingurinn minn uppreisnarseggur?

  • Hvað ef unglingurinn minn hefur blekkt mig?

  • Hverjum er um að kenna?

  • Hvernig get ég hjálpað unglingnum að byggja aftur upp traustið sem hann brást?

  • Hvað segja foreldrar?

Er unglingurinn minn uppreisnarseggur?

Það þarf ekki að vera. Í Biblíunni segir að ‚heimskan setjist að í hjarta sveinsins‘ og unglingar sýna oft fram á sannleika þess. (Orðskviðirnir 22:15) „Unglingar taka stundum heimskulegar skyndiákvarðanir,“ skrifar doktor Laurence Steinberg. „Búist við einhverjum mistökum.“a

Hvað ef unglingurinn minn hefur blekkt mig?

Ekki hugsa sem svo að það sé markmið unglingsins að standa uppi í hárinu á þér. Rannsóknir sína að unglingum er ekki sama hvað foreldrum þeirra finnst um þá þó að þeir hagi sér kannski þannig. Þó að unglingurinn beri þess kannski ekki merki er hann sennilega vonsvikinn út í sjálfan sig og svekktur yfir því að hafa valdið þér vonbrigðum.

Myndir: 1. Röntgenmynd af fótbroti. 2. Fótur í gifsi. 3. Maður labbar þegar fótbrotið er gróið.

Þegar bein brotnar getur það endurheimt fyrri styrk eftir að það grær. Sama er að segja um traust sem bregst.

Hverjum er um að kenna?

  • Er það umhverfið? Í Biblíunni segir: „Vondur félagsskapur spillir góðum venjum.“ (1. Korintubréf 15:33) Vinir hafa sterk áhrif á unglinga. Og það er líka annað sem hefur sterk áhrif, eins og samfélagsmiðlar og markaðssetning. Auk þess hafa unglingar litla lífsreynslu svo það er ekki erfitt að skilja hvers vegna þeir taka stundum heimskulegar ákvarðanir. Þeir þurfa auðvitað að læra að axla ábyrgð á ákvörðunum sínum til að verða ábyrgir fullorðnir einstaklingar.

  • Hvað hef ég gert? Þú gætir kannski velt fyrir þér hvort þú hafir verið of strangur og þannig valdið því að unglingurinn hagar sér illa. Eða þú gætir velt fyrir þér hvort þú hafið verið of undanlátsamur og gefið unglingnum þannig of mikið frelsi. Í stað þess að hugsa um hvernig þú gætir hafa átt þátt í vandamálinu skaltu hugsa um hvað þú getur gert núna til að leysa vandann.

Hvernig get ég hjálpað unglingnum að byggja aftur upp traustið sem hann brást?

  • Hafðu stjórn á því hvernig þú bregst við. Unglingurinn þinn býst eflaust við því að þú reiðist. Prófaðu að bregðast öðruvísi við. Ræddu í rólegheitum við unglinginn um hvers vegna hann gerði það sem hann gerði. Var hann forvitinn? Leiddist honum? Var hann einmanna og vantaði félagskap? Ekkert af þessu réttlætir það sem hann gerði en það getur hjálpað þér – og unglingnum – að skilja betur hvað varð til þess að hann gerði það sem hann gerði.

    Meginregla: „Hver og einn á að vera fljótur til að heyra, seinn til að tala og seinn til að reiðast.“ – Jakobsbréfið 1:19.

  • Hjálpaðu unglingnum að velta fyrir sér því sem gerðist. Spyrðu spurninga eins og: Hvað lærðirðu af þessari reynslu? Hvað myndirðu gera öðruvísi næst þegar þú lendir í svipuðum aðstæðum? Spurningar sem þessar geta hjálpað þér að kenna unglingnum að hugsa rökrétt.

    Meginregla: „Áminntu, ávítaðu og hvettu með mikilli þolinmæði og góðri kennslu.“ – 2. Tímóteusarbréf 4:2.

  • Kenndu honum að verkin hafa afleiðingar. Það er áhrifaríkast að láta afleiðingarnar tengjast því sem unglingurinn gerði af sér. Til dæmis ef hann brást trausti þínu með því að nota bílinn þinn í leyfisleysi gætu afleiðingarnar verið þær að hann fær takmörkuð not af bílnum í einhvern tíma.

    Meginregla: „Það sem maður sáir, það uppsker hann.“ – Galatabréfið 6:7.

  • Leggðu áherslu á hvernig hann getur byggt upp traustið aftur. Það tekur auðvitað tíma en unglingurinn ætti samt að vita að með tímanum er hægt að byggja upp traust á ný. Hjálpaðu honum að sjá ljósið við enda ganganna ef svo má að orði komast. Ef unglingnum finnst hann aldrei geta byggt upp traustið aftur gæti hann gefist upp á að reyna.

    Meginregla: „Reitið ekki börn ykkar til reiði svo að þau missi ekki kjarkinn.“ – Kólossubréfið 3:21.

Ljósapera.

Ráð: Sýndu gott fordæmi með því að biðja unglinginn þinn afsökunar þegar þú gerir mistök eða tekur slæma ákvörðun.

Hvað segja foreldrar?

Joseph og Lisa.

„Foreldrar geta talað um traust en ef þeim er ekki sjálfum treystandi hefur það sem þeir segja enga merkingu. En þegar börn sjá foreldrana sýna gott fordæmi í að vera traustsins verðir vilja þau vera það líka og þau verða ánægð með sig þegar þau ná því.“ – Joseph og Lisa kona hans.

Karyn og Daniel.

„Að byggja upp gott samband við börnin þegar þau eru yngri hjálpar þegar þau verða unglingar og málin flækjast. Foreldrar verða líka að læra að gefa börnunum meira sjálfstæði smátt og smátt en gefa þeim skýr mörk. Þegar unglingar finna að foreldrar þeirra eru að reyna að skilja þá og gefa þeim meira frelsi í samræmi við það sem þeir hafa áunnið sér bregst traustið sjaldnar.“ – Karyn og Daniel maður hennar.

Til upprifjunar: Þegar unglingurinn bregst trausti þínu

  • Hafðu stjórn á því hvernig þú bregst við. Ræddu í rólegheitum við unglinginn um hvers vegna hann gerði það sem hann gerði.

  • Hjálpaðu unglingnum að velta fyrir sér því sem gerðist. Spyrðu spurninga eins og: Hvað lærðirðu af þessari reynslu? Hvað myndirðu gera öðruvísi næst?

  • Kenndu honum að verkin hafa afleiðingar. Það er áhrifaríkast að láta afleiðingarnar tengjast því sem hann gerði af sér.

  • Leggðu áherslu á hvernig hann getur byggt upp traustið aftur. Ef unglingnum finnst hann aldrei geta byggt upp traustið aftur gæti hann gefist upp á að reyna.

a Úr bókinni You and Your Adolescent.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila