Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w26 júní bls. 31
  • Spurningar frá lesendum

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Spurningar frá lesendum
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
  • Svipað efni
  • Frásaga sem hefur þýðingu fyrir okkur
    Líf okkar og boðun - vinnubók fyrir samkomur – 2019
  • Sáttmáli Guðs við „vin“ sinn er nú þegar milljónum til gagns
    Öryggi um allan heim undir stjórn Friðarhöfðingjans
  • Frásaga með „táknræna merkingu“ sem á erindi til okkar
    Varðturninn: Frásaga með „táknræna merkingu“ sem á erindi til okkar
  • Sáttmálar Guðs og eilífur tilgangur hans
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1989
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
w26 júní bls. 31

SPURNINGAR FRÁ LESENDUM

Hvaða tvo sáttmála talar Páll um í Galatabréfinu 4:24?

Eftir að Páll postuli talar um samband Abrahams við Söru og Hagar segir hann: „Þetta hefur táknræna merkingu. Konurnar tákna tvo sáttmála.“ (Gal. 4:22–24) Áður skildum við það þannig að þessir tveir sáttmálar væru lagasáttmálinn og nýi sáttmálinn. En eftir frekari rannsóknir teljum við ástæðu til að skilja þetta öðruvísi. Svo virðist sem Páll hafi verið að vísa í Abrahamssáttmálann en ekki nýja sáttmálann. Skoðum aðeins betur hvers vegna Páll orðaði þetta svona.a

Páll tengdi þjónustustúlkuna Hagar við Sínaífjall. (Gal. 4:25) Hagar táknaði lagasáttmálann sem var gerður á Sínaífjalli árið 1513 f.Kr. (2. Mós. 19:5, 6) Enginn ófullkominn maður gat farið fullkomlega eftir Móselögunum og því minntu þau Gyðingana á að þeir væru þrælar syndarinnar. Þessi sáttmáli auðveldaði Ísraelsmönnum að bera kennsl á Messías. Hann var eini maðurinn sem myndi geta farið fullkomlega eftir lögunum. Þegar Messías fórnaði fullkomnu lífi sínu gerði hann ófullkomnum mönnum mögulegt að fá lausn undan synd og dauða. (Gal. 3:19, 24, 25) Eftir að Jesús hafði uppfyllt loforð Guðs var ekki lengur þörf á Móselögunum. – Rómv. 10:4.

Páll bar líka saman Hagar og Söru, ‚frjálsu konuna‘ sem fæddi son „samkvæmt loforði“. (Gal. 4:23) Loforðið var Abrahamssáttmálinn. (Gal. 3:29; 4:28, 30) Í 1. Mósebók 22:18 talar Jehóva um sáttmálann og segir: „Vegna afkomanda þíns [Abrahams] munu allar þjóðir jarðar hljóta blessun því að þú hlýddir á mig.“

Þessi sáttmáli við Abraham gaf frekari upplýsingar um loforð Jehóva í Edengarðinum. (1. Mós. 3:15) Hann opinberaði að ‚afkomandinn‘ sem sagt var fyrir um myndi verða afkomandi Abrahams. Páll sagði að ‚afkomandinn‘ ætti fyrst og fremst við um Jesú Krist. En þeir sem ‚tilheyra Kristi‘, erfingjarnir 144.000 sem munu stjórna með Kristi í ríki hans, eru líka táknrænir afkomendur Abrahams. (Gal. 3:16, 29; Opinb. 14:1–3) Þeir sem viðurkenna Jesú og hlýða honum eiga eftir að njóta mikillar blessunar þegar loforð Guðs til Abrahams verður uppfyllt.

Hvers vegna talaði Páll um konurnar tvær? Hann sýndi að ef Gyðingar á hans dögum krefðust þess að halda áfram að fylgja lögunum yrðu þeir áfram í þrælkun, eins og Hagar. En ef þeir viðurkenndu mikilvægasta „afkomanda“ Abrahams, Jesú Krist, yrðu þeir frjálsir, eins og Sara. Þeir myndu fá frelsi undan synd og dauða. (Jóh. 8:32–34) Ef þeir viðurkenndu ekki Jesú skildu þeir ekki hvert var aðalmarkmið Móselaganna, en það var að leiða þá til Krists.

Margir þeirra sem Páll skrifaði til í Galatíu voru ekki Gyðingar og voru aldrei undir Móselögunum. Sumir sem fylgdu siðum og skoðunum Gyðinga kröfðust þess að Kristnir menn af þjóðunum færu eftir lögunum, þar á meðal ákvæðinu um umskurð. Páll færði rök fyrir því að það væri heimskulegt af þeim að láta leggja á sig „þrælkunarok“ Móselaganna þar sem þeir höfðu þegar fengið það „frelsi“ sem tilheyrði Kristi. – Gal. 5:1, 10–14.

a Þetta er leiðrétting á því sem stóð í grein úr Varðturninum sem heitir „Frásaga með ‚táknræna merkingu‘ sem á erindi til okkar“.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila