Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w26 maí bls. 14–19
  • Taktu skynsamlegar ákvarðanir varðandi framhaldsnám

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Taktu skynsamlegar ákvarðanir varðandi framhaldsnám
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • ÆTTIRÐU AÐ FARA Í FRAMHALDSNÁM?
  • HVERS VEGNA ÞETTA NÁM?
  • HUGSAÐU UM KOSTINA OG GALLANA
  • Haltu sambandinu við Jehóva sterku á meðan þú ert í framhaldsnámi
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
  • Er Biblían á móti menntun?
    Vaknið! – 1998
  • Menntun — notaðu hana til að lofa Jehóva
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1996
  • Menntun sem hefur tilgang
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1993
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
w26 maí bls. 14–19

20.–26. JÚLÍ 2026

SÖNGUR 133 Tilbiðjum Jehóva á æskuárunum

Taktu skynsamlegar ákvarðanir varðandi framhaldsnám

„Skynsamur maður íhugar hvert skref.“ – ORÐSKV. 14:15.

Í HNOTSKURN

Við skoðum ýmislegt sem þú þarft að hugsa um ef þú ert að íhuga framhaldsnám og hvernig meginreglur úr Biblíunni geta hjálpað þér að taka góða ákvörðun.

1, 2. (a) Hvaða ákvarðanir þarf ungt fólk að taka? (b) Hvað er átt við með orðinu „framhaldsnám“ í þessari námsgrein? (Sjá orðaskýringu.)

„HVAÐ ætlarðu að verða þegar þú ert orðinn stór?“ Þetta er spurning sem margir krakkar fá að heyra. Besta framtíðarstarfið er að þjóna Jehóva í fullu starfi. En þú þarft líka að vinna fyrir þér. (2. Þess. 3:10) Þú hefur eflaust velt fyrir þér hvað þú eigir eftir að vinna við.

2 Sumt ungt fólk velur að fara í framhaldsnám eftir skyldunámið til að eiga auðveldara með að finna vinnu seinna.a Oft hjálpa foreldrarnir þeim að velja. Hefurðu velt fyrir þér hvort þú ættir að fara í framhaldsnám og þá hvernig nám? Í þessari námsgrein skoðum við frumreglur úr Biblíunni sem geta hjálpað þér að taka skynsamlegar ákvarðanir um menntun. Þótt þessari námsgrein sé fyrst og fremst beint til unga fólksins getur hún hjálpað öllum þjónum Guðs sem eru að hugleiða frekara nám. Frumreglurnar eru líka góðar fyrir foreldra til að leiðbeina börnunum sínum.

ÆTTIRÐU AÐ FARA Í FRAMHALDSNÁM?

3. Hvers vegna hugleiða sumir þjónar Jehóva að fara í framhaldsnám?

3 Sums staðar er hægt að sjá nægilega vel fyrir sér eftir skyldunám. Annars staðar getur þurft framhaldsmenntun til að fá vinnu með betri vinnutíma eða betri launum. Hún gæti gert þjóni Jehóva kleift að verja meiri tíma í boðuninni eða annarri þjónustu fyrir Jehóva. En framhaldsnám kostar fórnir og það getur haft í för með sér ákveðnar áskoranir fyrir þjón Jehóva.

4. Hver ber ábyrgð á að ákveða hvort þjónn Guðs fari í framhaldsnám? (Sjá einnig neðanmáls.)

4 Biblían segir að hver og einn þurfi að „bera sína byrði“. (Gal. 6:5, sjá skýringu í námsbiblíunni á tungumáli sem þú skilur.) Hver og einn fullorðinn þjónn Guðs verður að taka sína ákvörðun um hvort hann fari í framhaldsnám.b Foreldrar bera líka ábyrgð á að taka ákvörðun um menntun barna sinna undir lögaldri. (Ef. 6:1) Og leiðsögn foreldranna undirbýr barnið til að taka skynsamlegar ákvarðanir um framhaldsnám. – Orðskv. 22:6.

5. Hvenær ætti einstaklingur að taka ákvörðun um framhaldsnám og hvers vegna? (Sjá einnig mynd.)

5 Ungt fólk þarf oft að taka ákvörðun um framhaldsnám áður en skyldunáminu lýkur. Það er að sjálfsögðu skynsamlegt fyrir ungling að ræða málið við foreldrana tímanlega áður en hann þarf að ákveða sig. Þá hafa þeir tíma til að skoða möguleikana með honum. Þau geta kannski hjálpast að við að velja fög í skólanum sem búa hann undir þá menntun eða vinnu sem hann stefnir á. Þarf að taka ákvörðun áður en hann klárar skyldunámið? Það þarf ekki að vera. (Orðskv. 21:5) Sumir unglingar hafa kosið að klára skólann, fá sér vinnu og hefja brautryðjandastarf á meðan þeir ákveða hvort þeir fari í framhaldsnám. Það er jafnvel hægt að taka ákvörðun um það seinna á ævinni.

Ung systir ræðir við foreldra sína um möguleikana á framhaldsnámi. Þau skoða nokkra bæklinga frá skólum, myndband í Sjónvarpi Votta Jehóva og Biblíuna.

Foreldrar hjálpa dóttur sinni að taka skynsamlega ákvörðun um framhaldsmenntun. (Sjá 5. grein.)


6. Hvað getur auðveldað þér að taka skynsamlega ákvörðun varðandi framhaldsmenntun?

6 Hvað getur auðveldað þér að taka skynsamlega ákvörðun varðandi framhaldsmenntun? Gleymdu ekki að gera það að bænarefni. (Jak. 1:5) Hugsaðu auk þess um þetta: Í fyrsta lagi skaltu spyrja þig hvers vegna þú ert að hugsa um þessa menntun. (Sálm. 26:2) Og í öðru lagi skaltu hugsa vandlega um kosti og galla hennar. (Orðskv. 14:15) Skoðum hvort fyrir sig.

HVERS VEGNA ÞETTA NÁM?

7. Hvað ættu þjónar Guðs að taka með í reikninginn þegar þeir hugsa um framhaldsnám?

7 Ef þú ert að velta fyrir þér frekari menntun er mikilvægt að þú spyrjir þig: Hvers vegna vil ég þessa menntun? Margir sækja sér menntun til að geta fengið vinnu sem þá langar í eða sem er vel launuð. Er rangt að hugsa þannig? Það þarf ekki að vera. (1. Tím. 5:8) En Biblían varar við efnishyggju og að hugsa sem svo að peningar séu það eina sem geti veitt okkur öryggi. (Orðskv. 23:4, 5; 1. Tím. 6:8–10; 1. Jóh. 2:17) Ef markmiðið er að verða ríkur eða njóta virðingar gætirðu uppskorið tómleikatilfinningu og jafnvel fjarlægst Jehóva.

8, 9. (a) Hvernig ættu þjónar Guðs að líta á menntun? (Matteus 6:33) (b) Hvað lærum við af Josefinu, Morine og Irisi?

8 Hvernig ættum við að líta á menntun? Ekkert ætti að vera mikilvægara fyrir okkur en þjónustan við Jehóva. (Matt. 22:37, 38; Fil. 3:8) Við ættum því að líta á menntun sem leið til að sjá fyrir okkur svo að við getum einbeitt okkur að því að þjóna Jehóva af heilum hug. – Lestu Matteus 6:33.

9 Skoðum hvað hjálpaði nokkrum þjónum Jehóva að hafa rétt viðhorf til framhaldsmenntunar. Josefina, sem er frá Síle, segir: „Veraldleg menntun var leið til að þjóna Jehóva eins vel og mögulegt er. Andlegu markmiðin þurftu að vera í fyrsta sæti og námið að snúast um þau, en ekki öfugt.“ Systir sem heitir Morine valdi sér eins árs starfsnám í hársnyrtiiðn. Hún útskýrir hvers vegna: „Mig langaði að þjóna Jehóva þar sem þörfin er mikil þannig að ég leitaði að námi sem hjálpaði mér að ná því markmiði. Eftir námið vann ég við iðnina og safnaði mér peningum til að geta flust. Á nýjum stað nýtti ég síðan menntunina til að finna mér vinnu.“ Iris fór í lengra nám, í tannlækningum. Hún segir: „Framhaldsmenntun getur haft ýmsa kosti en hún veitir aldrei sanna velgengni og ánægju. Uppskriftin er einföld: Ef líf þitt snýst um Jehóva er öruggt að þér gangi vel og að þú verðir ánægður.“ Ef vináttan við Jehóva er það mikilvægasta í lífi okkar tökum við ákvarðanir sem veita okkur varanlega hamingju.

HUGSAÐU UM KOSTINA OG GALLANA

10. Hvernig getum við notað meginregluna í 5. Mósebók 32:29 til að ákveða hvort við förum í framhaldsnám?

10 Þú ert kannski með ákveðna vinnu í huga. En það er líka gott að hugsa um fleiri möguleika, annaðhvort á sama sviði eða einhverju öðru. (Samanber Orðskviðina 18:17.) Núna eru í boði námsleiðir sem voru ekki til áður, svo sem námskeið á netinu. Gleymdu ekki heldur að velta fyrir þér hvort þú getir séð fyrir þér án frekari menntunar. Johanna er frá Finnlandi. Hún fór ekki í framhaldsnám. Hún segir: „Ég fékk mér hlutastarf og byrjaði sem brautryðjandi strax eftir skyldunám. Ég hef verið í ýmiss konar vinnu og séð að Jehóva stendur alltaf við loforð sitt um að sjá okkur fyrir því sem við þurfum.“ Hafðu í huga að allar ákvarðanir sem maður tekur varðandi framhaldsnám – hvort maður velur að fara í skóla og hvers konar skóla maður velur – hafa bæði kosti og galla. Spyrðu þig: Eru kostirnir fleiri en gallarnir? (Lestu 5. Mósebók 32:29; 1. Kor. 10:23) Skoðum hvað getur hjálpað þér að svara því.

11. Hvers vegna er mikilvægt að íhuga hversu mikill tími fer í námið? (Sjá einnig myndir.)

11 Dagskráin. Hugsaðu um hversu mikill tími fer í hverri viku í að sækja tíma, fá þjálfun og að gera heimavinnu. Muntu enn þá hafa tíma fyrir andlegu dagskrána og til að hjálpa til á heimilinu? (Fil. 1:10) Verðurðu of þreyttur eftir skóladaginn til að undirbúa þig fyrir samkomur og sinna sjálfsnámi? Það er reynsla Jerozar frá Indlandi. Hann segir: „Ég átti erfitt með að einbeita mér að þjónustunni við Jehóva. Stundum missti ég af samkomu. Þegar ég lít til baka sé ég að námið tók allt of mikinn tíma og orku.“ En sumt nám er ekki eins tímafrekt og sumt krefst ekki mikillar heimavinnu. Rabeca frá Mósambík er til dæmis ánægð með það sem hún valdi. Hún segir: „Námskeiðið tók aðeins tvær klukkustundir á dag þannig að ég gat haldið áfram í brautryðjandastarfinu.“

Myndir: Bróðir íhugar hvort hann geti farið í framhaldsnám en jafnframt sinnt öllum skyldum sem hann hefur. 1. Hann réttir fólki hljóðnemann á samkomu. 2. Hann tekur þátt í boðuninni hús úr húsi. 3. Hann vinnur á kaffihúsi. 4. Hann situr á skólabekk.

Ef þú ert að hugsa um að fara í framhaldsnám skaltu fullvissa þig um að þú munir líka hafa tíma til að sinna öllum mikilvægum skyldum. (Sjá 11. grein.)


12. Hvernig er hægt að nota tímann sem best með tilliti til menntunar? (Prédikarinn 12:1)

12 Tímalengdin. Veltu fyrir þér hversu marga mánuði eða ár það muni taka þig að ljúka náminu. Værirðu að nota tímann eins vel og þú getur? (Ef. 5:15–17) Ef þú ert unglingur, mun námið þá gera þér kleift að gefa Jehóva þitt besta á unglingsárunum, til dæmis með því að vera brautryðjandi? (Lestu Prédikarann 12:1.) Eru til styttri námsleiðir í sama fagi? Verknám eða iðnnám gæti til dæmis gefið þér hagnýta færni á styttri tíma og með minni kostnaði en háskólanám. Mario frá Síle segir: „Ég valdi tveggja ára tækninám sem kostaði minna en háskólanám. Kennslan var bara fjóra daga í viku sem gaf mér tækifæri til að vera brautryðjandi samhliða náminu.“

13. Hvaða áhrif getur það haft að stunda nám fjarri fjölskyldunni?

13 Staðsetningin. Þú finnur kannski skóla nálægt heimilinu. En hvað ef þú finnur skóla sem þér líst á fjarri heimilinu? Og hvað ef þú þarft að búa á stúdentagörðum? Vertu meðvitaður um að það getur verið hættulegt fyrir trú þína að stunda nám fjarri fjölskyldunni, sérstaklega ef þú þarft að deila húsnæði með fólki sem er ekki í trúnni. (Orðskv. 22:3; 1. Kor. 15:33) Matias, sem er frá Mósambík, fór í ódýrt eins árs nám. En hann sér eftir því. Hann segir: „Ég þurfti að vera á heimavistarskóla allan tímann og varð á hverjum degi fyrir freistingum til að gera eitthvað rangt. Ég mæli ekki með því að fara í nám þar sem þú þarft að vera í burtu frá fjölskyldunni.“ Systir frá Rússlandi segir: „Ég forðaðist hættur og freistingar með því að búa heima hjá mömmu og pabba í stað þess að vera á heimavist eða stúdentagörðum.“ Kannski geturðu jafnvel fundið námskeið á netinu.

14. Hvernig getur meginreglan í Lúkasi 14:28 hjálpað þér að taka góða ákvörðun um nám?

14 Kostnaðurinn. Sumt nám er ódýrt eða jafnvel greitt af ríkinu. Þá getur framhaldsnám verið mögulegur kostur til að ná sér í þekkingu og færni til að geta fengið vinnu. En oft er framhaldsnám dýrt. Það getur líka verið ýmiss konar óbeinn kostnaður, svo sem einkakennsla til að fá inngöngu í námið. Sumir eru með margra ára skuldir á bakinu eftir nám. Adilson frá Mósambík sér eftir því sem hann valdi. Hann segir: „Fjölskyldan fórnaði mat og öðrum nauðsynjum til að ég gæti farið í fjögurra ára nám.“ Þegar þú kynnir þér skólanám skaltu spyrja þig: Hvað mun það kosta? Hef ég eða fjölskylda mín efni á því? Er til ódýrari leið? (Lestu Lúkas 14:28.) Hversu lengi verð ég að borga niður skuldir ef ég þarf að taka lán? Mun ég fá vinnu með nógu góðum launum til að geta borgað niður námslánið? – Orðskv. 22:7.

15. Hvers vegna ættirðu að hugsa um atvinnumöguleikana áður en þú velur menntun?

15 Atvinnumöguleikarnir. Skoðaðu vinnumarkaðinn þar sem þú býrð eða ætlar að búa. Auðveldar menntunin þér að fá vinnu þegar upp er staðið? Sumt nám veitir litla verkþjálfun en leggur mesta áherslu á fræðilega þáttinn, bókleg fög eða heimspeki. (Kól. 2:8) Systir frá Indlandi segir: „Námið gaf mér ekki þá hagnýtu færni sem ætlast er til að starfsmenn hafi. Þar af leiðandi fékk ég ekki vinnu í faginu.“ Í sumum öðrum fögum er ekki mikið um vinnu í boði. Sublime frá Mið-Afríkulýðveldinu lærði að gera við loftræstikerfi. En hann segir: „Þar sem ég bý gera flestir við hlutina sjálfir. Það getur því verið erfitt að fá vinnu.“

16. Hvers vegna borgar sig að hugsa um hvers konar vinnu þú getur fengið eftir að hafa menntað þig?

16 Veltu líka fyrir þér hvers konar vinnu þú getir mögulega fengið. Muntu hafa gaman af henni? (Préd. 3:12, 13) Hvernig verður vinnuumhverfið? Er það hættulegt, ríkir samkeppnisandi þar eða er mikið álag? Hvað geturðu reiknað með að fá í laun? Geturðu lifað af þeim? Muntu þurfa viðbótarmenntun til að halda vinnunni? Og síðast en ekki síst, geturðu haft þjónustuna við Jehóva í fyrsta sæti? (Préd. 12:13) Við höfum að sjálfsögðu ekki efni á að vera of vandlát þegar lítið er um vinnu. En það getur haft áhrif á möguleika þína til að fá vinnu í framtíðinni hvaða nám þú velur núna. Tabitha, sem er frá Indlandi, fór á sex mánaða saumanámskeið. Hún segir: „Ég hugsaði að það að vinna við fatasaum myndi auðvelda mér að vera brautryðjandi. Það er alltaf þörf fyrir saumakonur, vinnan er sveigjanleg og krefst ekki mikillar fjárfestingar.“ Námskeiðið gerði Tabithu mögulegt að finna vinnu sem gerði henni kleift að sjá fyrir sér sem brautryðjandi.

17. (a) Hvernig getur þjónn Jehóva fundið þær upplýsingar sem hann þarf til að taka skynsamlega ákvörðun varðandi nám? (b) Hvaða meginreglur Biblíunnar geta hjálpað honum að taka góða ákvörðun? (Sjá ramman „Meginreglur úr Biblíunni til að skoða“.)

17 Við höfum skoðað ýmislegt sem er vert að huga að í sambandi við framhaldsnám. Hvernig geturðu fundið þær upplýsingar sem þú þarft til að taka skynsamlega ákvörðun? Kynntu þér hugsanlegt nám með því að heimsækja skólann eða skoða vefsíðu hans. Skoðaðu atvinnuauglýsingar til að sjá hvaða vinna er í boði í faginu. Þú gætir líka leitað ráða hjá þeim sem hafa lokið námi í faginu eða vinna við það. (Orðskv. 13:10) Spyrðu þá hverjir séu kostirnir og gallarnir við þá menntun eða atvinnu. Talaðu við aðra sem þjóna Jehóva með gleði. (Orðskv. 15:22) Hvaða menntun eða atvinnu mæla þeir með? Kannski stinga þeir upp á einhverju sem þér hefur ekki dottið í hug.

Meginreglur úr Biblíunni til að skoða

  • Hvers vegna vil ég fara í framhaldsnám? (Matt. 6:33; 1. Tím. 6:8–10)

  • Hversu mikinn tíma á viku tekur skólinn og heimanámið? (Fil. 1:10)

  • Hversu mörg ár tekur námið? (Ef. 5:15–17)

  • Hvar mun ég búa? (1. Kor. 15:33)

  • Hvað kostar námið? (Lúk. 14:28)

  • Hjálpar menntunin mér að fá vinnu svo að ég geti séð fyrir mér og náð andlegum markmiðum mínum? (Préd. 12:13)

18. Hvað ættum við að hafa í huga?

18 Eins og við höfum séð hefur framhaldsmenntun bæði kosti og galla. Talaðu því við Jehóva í bæn um möguleikana sem þú hefur. Mundu að þótt meiri menntun kunni að veita ákveðið fjárhagslegt öryggi er sönn hamingja háð því að eiga náið samband við Jehóva. (Sálm. 16:9, 11) Jehóva sér alltaf fyrir þjónum sínum, sama hvaða menntun þeir hafa. (Hebr. 13:5) En hvað ef þú hefur þegar ákveðið að fara í framhaldsnám? Hvað getur hjálpað þér að halda sterku sambandi við Jehóva á meðan þú ert í námi? Það er rætt í næstu námsgrein.

HVERJU SVARAR ÞÚ?

  • Hvernig á Galatabréfið 6:5 við um það að ákveða hvort maður fari í framhaldsnám eða ekki?

  • Hvernig ættu þjónar Jehóva að líta á framhaldsnám?

  • Hvað ættu þjónar Guðs að hugsa um þegar þeir ákveða hvort þeir ættu að fara í frekara nám?

SÖNGUR 45 Hugsun hjarta míns

a ORÐASKÝRING: Í þessari námsgrein og þeirri næstu á „framhaldsnám“ og skyld orð við um alla viðbótarmenntun og verkþjálfun fyrir utan skyldunám. Það getur verið háskólanám, menntaskólanám, nám við fjölbrautaskóla, iðnnám, tækninám, verklegt nám, styttri námskeið og endurmenntun.

b Áður fyrr hefur þjónum Guðs verið ráðlagt í ritunum okkar að fara ekki í háskóla. Til dæmis er talað um hætturnar samfara æðri menntun í greininni „Foreldrar – hvernig viljið þið að framtíð barnanna verði?“ í Varðturninum 1. nóvember 2005. Þessar hættur eru enn til staðar en það er hvers og eins að ákveða hvort hann sæki sér viðbótarmenntun. Þjónn Jehóva ætti að hugleiða í bænarhug meginreglur Biblíunnar og hvers námið myndi krefjast af honum áður en hann tekur ákvörðun. Höfuð fjölskyldunnar ætti að gera það sama fyrir börn sín undir lögaldri. Enginn þjónn Guðs ætti að dæma trúsystkini sín fyrir persónulega ákvörðun þeirra í þessum efnum, ekki heldur öldungar. – Jak. 4:12.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila