BIBLÍUPERSÓNA
Vertu hugrakkur og trúr eins og Benaja
Benaja var hugrakkur stríðskappi í her Davíðs konungs og síðar í her Salómons. Hann var sonur prests en prestar og Levítar tóku yfirleitt ekki þátt í stríði og notuðu ekki vopn. En Benaja tók þátt í bardögum Jehóva og sýndi mikið hugrekki. Hann sigraði til dæmis vopnaðan risa og fór eitt sinn ofan í gryfju og drap ljón. Davíð treysti Benaja svo vel að hann setti hann yfir lífvarðarsveit sína. – 2. Sam. 23:20–23.
Benaja var trúr Davíð þegar Absalon og Adónía gerðu uppreisn. (2. Sam. 8:18; 15:18; 1. Kon. 1:8) Og þegar Davíð var orðinn aldraður var Benaja honum enn trúr og studdi Salómon til konungs. (1. Kon. 1:32–40) Hann var trúr Jehóva og konungunum sem hann valdi, líka þegar aðrir voru ótrúir.
Við þurfum líka að vera hugrökk til að berjast gegn öflugum óvini okkar, Satan, og þeim sem fylgja honum. Og við ættum að vera ákveðin í að halda áfram að lifa eftir mælikvarða Jehóva. (Ef. 6:11; 1. Pét. 5:8, 9) Við höldum áfram að vera Jehóva trú, fullviss um að hann launi okkur, jafnvel þótt sumir ákveði að yfirgefa hann. – 2. Sam. 22:26.